Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Við vorum bara alltaf að borða afganga og höfðum úr litlu að moða“

Hera Gísla­dóttir opnar sig um æsku sína í nýju við­tali

„Við vorum bara alltaf að borða afganga og höfðum úr litlu að moða“
Hera Gísla­dóttir Mynd: Skjáskot/YouTube

Hera Gísla­dóttir, heilsu­m­ark­þjálfi og stjörnu­spek­ingur, seg­ist ein­læg­lega trúa því að allt í líf­inu hafi þýð­ingu.

Að hennar mati leiðir dýpri sjálfs­skoðun á hegðun okkar til þess að við áttum okkur betur á eigin ábyrgð og getum með­vitað valið við­brögð okkar. Hera, sem er nýjasti gestur í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar, segir að hún hafi frá unga aldri litið á lífið þannig að allar athafnir hafi afleið­ingar og því sé mik­il­vægt að lifa í með­vit­und.

„Ég var mjög ung þegar ég fór að hugsa hlut­ina þannig að öll smá­at­riði skipti máli. Það skiptir allt máli í því hvernig við hegðum lífi okkar og hvað við gerum frá degi til dags. Hvort sem við köllum þetta karma eða eitt­hvað annað er það bara þannig fyrir mér að litlu atriðin í því hvernig við komum fram skipti miklu máli. Þegar ég fer í Bónus og tek vöru úr hill­unni vil ég skila henni á réttan stað og í mínum huga er alltaf orsök og afleið­ing í öllu. Ég legg líka mikið upp úr því að taka til í kringum mig og hafa umhverfi mitt í röð og reglu, af því að það end­ur­speglar innra ástand okkar. Núna er ég að æfa mig í að vera bein í baki, af því að lík­ams­staðan okkar skiptir máli og lík­am­inn og boð­efna­kerfið eru að hlusta á það hvernig við berum okkur. Ég sé þetta þannig að við séum hluti af ein­hverri stærri heild og að allt sem við gerum hér á jörð­inni skipti máli.“

Byrjaði að vinna 11 ára

Hera seg­ist afar þakk­lát fyrir upp­eldið sitt, sem ein­kennd­ist af nægju­semi og því að hafa lítið á milli hand­anna, en hún þurfti að fara snemma út á vinnu­mark­að­inn og vinna fyrir sér ung að árum.

„Ég ólst upp við lítið, sem kenndi mér að vera nægju­söm og þakk­lát. Mamma og pabbi skildu og á tíma­bili var staðan þannig að við vorum bara alltaf að borða afganga og höfðum úr litlu að moða. En mamma mín er þannig gerð að hún náði alltaf að búa til ævin­týri úr þessu og kenndi okkur að sjá það jákvæða í öllu. Hún sá alltaf sól­ina frekar en skýin og í gegnum hana lærði ég að það er alltaf hægt að velja við­bragð í líf­inu og velja með hvaða gler­augum við sjáum hlut­ina. Við veljum ekki alltaf hvað kemur fyrir okkur, en við getum alltaf valið hvernig við bregð­umst við. Með auk­inni með­vit­und verður maður betri og betri í að læra að velja við­bragð. En það að alast upp við lítið kenndi mér hluti og ég er þakk­lát fyrir það. Ég fór mjög ung að vinna í fiski. Ég var lík­lega 11-12 ára gömul þegar ég byrj­aði að vinna í humar­vinnslu og svo fisk­vinnslu. Ég stóð upp á bast­körfu í vinn­unni af því að ég var svo lítil. Svo þegar ég stóð mig vel fékk ég að vinna þar sem hum­ar­inn var nýkom­inn úr fryst­inum. Þar voru minni pásur, en maður fékk meira borgað. En putt­arnir voru nán­ast frosnir af því að hum­ar­inn var svo kaldur. Þannig að ég lærði í raun að það þyrfti að vera sárs­auka­fullt að fá meiri pen­ing. Sem mér finnst í raun röng skil­yrð­ing í dag, af því að pen­ingar eru bara orka og flæði og maður á ekki að þurfa að beita sig hörðu til að fá pen­ing. En þrátt fyrir þessar skil­yrð­ingar hef ég alltaf upp­lifað mig sem nóg og hef ekki þjáðst af því að finn­ast ég ekki eiga allt gott skilið“

Hera og Ásgeir Kol­beins­son hafa verið par í yfir tíu ár og eiga einn son saman. Þau standa saman að rekstri fyr­ir­tæk­is­ins Orku­grein­ingar og stýra einnig vin­sælu hlað­varpi ásamt stjörnu­spek­ingnum Gunn­laugi Guð­munds­syni. Hera lýsir djúpu þakk­læti í garð Ásgeirs og segir sam­band þeirra byggj­ast á traustum grunni gagn­kvæms stuðn­ings og virð­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina