Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Séra Bjarni segir Trump vera holdgerving öfgafullrar vestrænnar einstaklingshyggju

„Skilur okkur öll eftir ótta­slegin, skammar­full og ein.“

Séra Bjarni segir Trump vera holdgerving öfgafullrar vestrænnar einstaklingshyggju
Donald Trump þykir umdeildur Hefur í tvígang verið kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: CHARLY TRIBALLEAU / AFP

Fáir menn eru jafn umdeildir og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sem hefur mætt mik­illi mót­stöðu hjá alþjóða­sam­fé­lag­inu vegna hegð­unar sinnar í ýmsum málum. Einn þeirra sem hafa skoðun á for­set­anum banda­ríska og þeirri menn­ingu sem ríkir í Banda­ríkj­unum er séra Bjarni Karlsson en hann birti áhuga­verðan pistil um stöð­una þar í landi í morgun.

„Banda­rískt sam­fé­lag hefur þá sér­stöðu í vest­rænni menn­ingu að það sem þar á sér stað verkar á allt og alla. Nú gengur þetta mátt­uga sam­fé­lag í gegnum sárs­auka­fullt umbreyt­inga­ferli,“ skrifar Bjarni

„Ekkert verk­efni kemst í hálf­kvist við það erf­iði að breyta hug­ar­fari sínu. Það sem sam­einað hefur banda­ríska menn­ingu er trúin á ein­stak­ling­inn og krafan um að allir skuli njóta frelsis til að lifa sínu lífi. Það er fal­leg hugsun,“ segir en telur að eitt­hvað hafi valdið því að í stað hinnar lit­ríku fjöl­menn­ingar hafi banda­rískt sam­fé­lag, og vest­ræn menn­ing að stóru leyti, þró­ast þannig að það er neyslan sem skil­greinir allt og alla.

Allt hefur verðmiða

„Hverfið sem þú býrð í hefur verð­miða, skól­arnir sem börnin þín ganga í, versl­an­irnar þar sem þú sækir nauð­synjar, íþrótta­mið­stöðin þín, afþrey­ingin sem þú sækir – allt hefur verð­miða sem gerir það að verkum við kinkum kunn­ug­lega kolli til ókunn­ugra því við erum í sama neyslu­klúbbi - svo lengi sem kortið virkar,“ heldur prest­ur­inn áfram.

Bjarni telur að innan neyslu­svig­ans sem við til­heyrum sé kurt­eis­lega spjallað um afþr­ey­ingu og notkun á hinu og þessu en fólki segi ekki sögu sína og ræði ekki gildi sín og líf.

„Annað sem ég held að við þurfum að sjá til að skilja banda­rískt sam­fé­lag og sjálf okkur um leið er það að innan neyslu­svigan er þess kraf­ist að fólk sýni ábyrgð. Líka það er fal­leg hugsun. En eitt­hvað hefur valdið því að það að vera ábyrg mann­eskja sem fyrr var í því fólgið að ástunda virð­ingu og sam­líðun snýst nú um það eitt að láta ekk­ert lenda á öðrum,“ skrifar Bjarni.

Vilja ekki þurfa á öðrum að halda

„Eitt sinn var ábyrg mann­eskja per­sóna sem kunni þá list að vera vak­andi vitni að umhverfi sínu. Ein­stak­lingur sem virti fyrir sér menn og mál­efni, greindi sam­hengi, lét sér ekki á sama standa og leit­að­ist við að láta gott af sér leiða í orði og verki. Í banda­rískri menn­ingu hefur ábyrgð­ar­hug­takið þrengst þannig að nú varðar það ein­stak­ling­inn einan og getur yfir­færst á kjarna­fjöl­skyldu hans, maka og börn, en ekki lengra. Ef þú hefur það sem þú þarft til þess að standa undir þinni einka­neyslu ertu ábyrg per­sóna. Ef ekki ertu orð­inn að óreiðu­manni. M.ö.o. gildi þitt og sið­ferð­is­leg staða ræðst af getu þinni til að standa einn og þurfa ekki á öðrum að halda,“ telur Bjarni.

Hann segir einnig að þetta ískalda og níð­þrönga ábyrgð­ar­hug­tak sé ríkur þáttur í kvíða hins vest­ræna manns og geri það að verkum að almenn­ingur vinnur sér svo fús­lega til húðar.

„Donald Trump er ekki fyrst og fremst ein­stak­lingur. Hann er hold­gerv­ingur öfga­fullrar vest­rænnar ein­stak­lings­hyggju með sínu þrönga ábyrgð­ar­hug­taki sem skilur okkur öll eftir ótta­slegin, skammar­full og ein.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ