Matvælastofnun varar við neyslu á tiltekinni framleiðslulotu af ferskum kjúklingalærum frá Stjörnugrís vegna gruns um salmonellu. Varan hefur verið innkölluð í samráði fyrirtækisins og Matvælastofnunar.
Einungis er um að ræða eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vöruheiti: BM Kjúklingalæri, skinn- og beinlaus
- Lotunúmer: 8001-26035
- Strikamerki: 2328013
- Framleiðandi: Stjörnugrís hf.
- Dreifing: Verslanir Krónan um allt land
Neytendur sem hafa keypt vöruna með ofangreindum rekjanleikanúmerum eru beðnir um að neyta hennar ekki, heldur farga henni eða skila í verslun þar sem hún var keypt.
Matvælastofnun fylgist með málinu og hvetur neytendur til að hafa samband við heilbrigðisyfirvöld ef einkenni matareitrunar koma fram.































Athugasemdir