Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af frosinni grænmetisblöndu frá Hortex sem dreift var í verslun Mini Market í Breiðholti og í Kópavogi vegna aðskotahlutar (glerbrot) sem fannst í vörunni. Mini Market hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Neytendur sem hafa þessa vöru undir höndum eru hvattir til að neyta hennar ekki heldur skila henni í næstu Mini Market verslun gegn endurgreiðslu.

Mynd: Aðsend































Athugasemdir