Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar

Verkin urðu eftir í póst­inum en Jón Adólf dó ekki ráða­laus

Jón Adólf með eina óvenjulegustu listasýningu Kaupmannahafnar
Jóhanna og Jón Adólf Parið dó ekki ráða­laust þegar lista­verkin sátu föst í toll­inum Mynd: Aðsend

Íslenski lista­mað­ur­inn Jón Adólf Stein­ólfs­son lenti í afar óvenju­legri stöðu þegar hann tók þátt í alþjóð­legri lista­sýn­ingu í Kaup­manna­höfn, þegar lista­verkin hans komust aldrei á áfanga­stað.

Jón hafði und­ir­búið þátt­töku sína í sýn­ing­unni Art Nordic í um hálft ár og lagt mikla vinnu í að skapa verk úr íslensku grjóti. Um var að ræða 12 and­lit og eina hendi, sem öll voru mótuð úr grjóti sem hann og sam­býl­is­kona hans báru úr fjöllum á Íslandi.

Sam­býl­is­kona hans, Jóhanna Kristín Hauks­dóttir, lýsir í sam­tali við Mannlíf, und­ir­bún­ingnum sem bæði krefj­andi og metn­að­ar­fullum:

„Hann lagði allt í söl­urnar til að gera lista­verkin (and­litin) flott svo úr urðu 12 and­lit og ein hendi og allt unnið úr grjót­inu. Grjótið var borið heim úr fjöll­unum sem við gengum á og skal ég segja ykkur að stundum jaðr­aði við „her­þjálfun“ því þau voru svo þung.“

Auk verk­anna var lögð áhersla á kynn­ingu á íslenskri nátt­úru og lista­mann­inum sjálfum með ljós­myndum, plakötum og kynn­ing­ar­efni.

„Ég tók myndir af fjöll­unum og svæð­unum sem grjótið átti heima og lét prenta út. Hug­myndin var að sýna gestum landið okkar og svo þeir gætu parað saman and­lit og fjall eða svæði. Einnig útbjó ég tvö stór plaköt af lista­mann­inum til að kynna hann fyrir heim­inum og svo loks A5 flyers með upp­lýs­ingum um hann og QR kóða. Allt var til­búið tím­an­lega og við vorum eins og litlir krakkar og biðum eftir þess­ari sýn­ingu.“

Verkin föst í póstinum

Jón Adólf og Jóhanna sendu síðan verkin til Dan­merkur í fjórum tré­kössum. Fljót­lega kom þó í ljós að eitt­hvað hafði farið úrskeiðis.

Við kom­una til Dan­merkur reyndi parið ítrekað að ná sam­bandi við póst­fyr­ir­tækið PostNord, án árang­urs. Þau fóru jafn­vel beint á aðal­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins með allan far­angur til að leita svara.

„Áður en við stukkum upp í flug­vél­ina fengum við smá nasa­þef af því að lista­verkin væru föst í Postnord í customs … en viti menn, lista­verkin komust aldrei á sýn­ing­una, þau voru og eru enn FÖST í Postnord í Kaup­manna­höfn,“ segir Jóhanna í skrif­legu svari til Mannlífs. „Við skelltum okkur beint af flug­vell­inu og til aðal­stöðvar Postnord í Bröndby með allan far­ang­ur­inn í aft­ur­dragi. Leigu­bíll­inn mátti ekki keyra inn á þetta stóra svæði svo við gengum frá hlið­inu og ansi lagt með töskur, plaköt og bak­poka, verð að segja að við vöktum smá athygli.“

Að lokum fann starf­maður Postnord verkin og sendi tölvu­póst til að for­vitn­ast um málið, en þrátt fyrir það tókst ekki að fá verkin afhent.

„Hittum þar mann sem fann lista­verkin og sendi póst á „rétta“ aðila og þá fannst okkur nú heldur betur opn­ast nýr heimur. En því miður þá gekk ekk­ert að fá lista­verkin. Ægir Már sonur Jóns sem reddar nú ansi mörgu oft á tíðum tókst ekki einu sinni að ná lista­verk­unum út með sinni alkunnu snilld í bréfa­sam­skiptum. Þessi tími var eins og stór rús­sí­bani, fáum við lista­verkin – fáum við þau ekki. Við vorum svo mikið til­búin í upp­still­ing­una á básnum sem voru veggir. En viti menn, lista­verkin komust aldrei á sýn­ing­una, þau voru og eru enn FÖST í Postnord í Kaup­manna­höfn.

Og í raun­inni hefur engin hald­bær skýr­ing komið, hvað nákvæm­lega vantar til að leysa lista­verkin út,“ segir Jóhanna.

Sýning án verka vakti athygli

Þrátt fyrir áfallið ákváðu Jón Adólf og Jóhanna að nýta stöð­una og halda áfram. Þau settu upp bás með myndum, kynn­ing­ar­efni og mynda­sýn­ingu af verk­unum sem ekki komust á áfanga­stað.

„Við skelltum okkur í gír­inn, hengdum upp allt sem við vorum með og settum upp slideshow, bjuggum til slag­orð eins og MISSING ARTWORK FROM ICELAND, KEEP BELIEVING ALWAYS og buðum upp á sögu­st­und.“

Gestir sýn­ing­ar­innar voru hvattir til að hlusta á sög­una á bak við verkin, og við­brögðin létu ekki á sér standa.

„Sagan spurð­ist hratt út og þegar leið á sýn­ing­una kom fólk til þess að heyra sög­una og sjá verkin í slideshow og í port­folio möpp­unni hans Jóns Adólfs.“

Að sögn Jóhönnu vakti þetta mikla athygli og jákvæð við­brögð, þrátt fyrir að verkin sjálf væru fjar­ver­andi.

„Okkur tókst að fá eig­in­hand­ar­á­ritun frá öllum lista­mönn­unum í bók­ina (Catalog) sem var gefin út með öllum lista­mönn­unum sem tóku þátt í sýn­ing­unni,“ segir Jóhanna og bætir við: „En við erum í góðum málum og höfum lært mikið. Gest­irnir voru frá­bærir og tóku okkur af alúð.“

Óvissa um framhaldið

Lista­verkin eru enn í haldi PostNord og ekki liggur fyrir hvenær þau skila sér til baka, né í hvaða ástandi.

„Við erum komin heim, við komum með Icelandair en ekki með Postnord.

Það sem við vitum nú um lista­verkin er að þeir ætla að senda þau til baka en við vitum ekki hvenær, svo spennan heldur áfram. Hver kostn­aður verður þegar þau koma og verða þau heil? Hver veit.?“

Þrátt fyrir von­brigðin segir Jóhanna upp­lifun­ina hafa verið lær­dóms­ríka og kynn­ingin á lista­mann­inum hafi tek­ist vel.

„Við vorum auð­vitað svekkt að fá ekki lista­verkin en um leið erum við alsæl með kynn­ing­una á lista­mann­inum Jóni Adólfi, það mun engin gleyma þessum lista­manni.“

Hún seg­ist jafn­framt sann­færð um að við­tök­urnar hefðu orðið enn meiri ef verkin hefðu skilað sér.

„Ég er með það á hreinu að ef lista­verkin hefðu verið á sýn­ing­unni þá hefði okkar bás verið sá vin­sæl­asti því engin var með lista­verk á við þessi.“

Hægt er að sjá meira um lista­verk Jóns Adólfs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu