Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar

Kín­verjar segj­ast hafa boðið vara­for­mann­inum í heim­sókn

Guðmundur Árni og Kommúnistaflokkurinn ósammála um ástæðu Kínaferðar
Guð­mundur Árni Stef­áns­son ásamt Lu Kang Er vara­ráð­herra í rík­is­stjórn Kína. Mynd: Kommúnistaflokkur Kína

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og bæj­ar­full­trúi í Hafn­ar­firði, og Komm­ún­ista­flokkur Kína eru ósam­mála um til­gang heim­sóknar Guð­mundar til Kína í októ­ber í fyrra.

Samkvæmt vef­síðu Komm­ún­ista­flokks­ins var Guðmundi boðið til Kína af flokknum og hann farið fyrir sendi­nefnd á vegum Sam­fylk­ing­ar­innar, sem á líka að hafa verið í heim­sókn. Á síð­unni er svo birt mynd af Guðmundi með Lu Kang, vara­ráð­herra í alþjóða­ráðu­neyti Kína.

Á vef­síð­unni er einnig sagt að Komm­ún­ista­flokkur Kína muni halda áfram að styrkja sam­skipti sín við Sam­fylk­ing­una og að heim­sókn þessi hafi verið nýtt í slíkt. Sömu­leiðis kemur fram að þeir Guð­mundur og Kang hafi rætt ýmsa hluti er varðar sam­skipti Íslands og Kína.

Fór sem ferðamaður

„Það eru skemmti­legar og óvæntar fréttir,“ sagði Guð­mundur Árni þegar blaða­maður greindi honum frá því að Komm­ún­ista­flokk­ur­inn full­yrti að Guðmundi hefði verið boðið til Kína en hann seg­ist hafa verið í land­inu á eigin vegum.

„Ég var í einka­er­indum í Kína í októ­ber síð­ast­liðnum og greiddi því eðli­lega ferða­kostnað úr eigin vasa. Fór þangað að frum­kvæði Tryggva Harð­ar­sonar æsku­vinar míns, sem var meðal fyrstu stúd­enta frá Íslandi í Kína árið 1975. Hópurinn sam­an­stóð af fjöl­skyldu Tryggva og nokkrum vinum hans,“ sagði vara­for­mað­ur­inn við Mannlíf.

Þá kann­ast hann ekki við að Sam­fylk­ingin hafi verið með sendi­nefnd í Kína og slíkt sé ekki framundan.

„Við hittum auð­vitað mann og annan í heim­sókn­inni og kynntum okkur ýmis­leg mál­efni,“ sagði Guð­mundur þegar hann var spurður út í að hafa hitt Lu Kang. Sagðist hann einnig hafa farið víða um Kína í heim­sókn sinni en þá sem ferða­maður.

„Tengsl Íslands og Kína í ára­tugi, átak Kínverja í lofts­lags­málum, sam­göngu­mál og ferða­mál, þar á meðal hugs­an­legt beint flug milli land­anna, voru meðal umræðu­efna í sam­tölum við heima­menn,“ sagði Guð­mundur um hvað hann ræddi um við Lu Kang.

„Þá staldr­aði hóp­ur­inn við í vinabæ Hafn­ar­fjarðar, Baoding, þar sem við hittum vara­bæj­ar­stjóra og fleiri emb­ætt­is­menn og ræddum sam­skipti bæj­anna.“

Tók hann fram að allt hafi þetta verið gott og gagn­legt.

Þarf að láta vita

Mannlíf spurði Dr. Hauk Arn­þórs­son stjórn­sýslu­fræð­ing hvort hann sæi eitt­hvað athuga­vert við að íslenskir stjórn­mála­menn hittu erlenda emb­ætt­is­menn þegar þeir væru að ferð­ast í einka­er­indum.

„Ef íslenski stjórn­mála­mað­ur­inn er ekki í umboði neins nema sjálfs síns er þetta eðli­legt. Að því sögðu þarf að taka fram að hann getur búið yfir upp­lýs­ingum um lands­hagi sem hann má ekki gera opin­skátt um og honum ber líka skylda til að láta erlendu emb­ætt­is­menn­ina vita að hann hafi ekki umboð til neinna gern­inga fyrir Íslands hönd. Óformleg sam­töl umboðs­lauss stjórn­mála­manns geta haft á sér tor­tryggi­legan svip.“

Öðru Samfylkingarfólki boðið til Kína

Guð­mundur Árni er þó ekki eini hátt setti mað­ur­inn innan Sam­fylk­ing­ar­innar sem fór til Kína í fyrra en Jón Grétar Þórsson, gjald­keri flokks­ins, fór með þremur öðrum Íslend­ingum til lands­ins.

„Mér og nokkrum Íslend­ingum af yngri kyn­slóð var boðið að vera hluti af 15 manna hópi frá öllum Norð­ur­lönd­unum í kynn­ing­ar­ferð til Kína,“ sagði Jón Grétar í svari við fyr­ir­spurn Mannlífs. „Okkur var boðið af Kín­verjum og hafði kín­verska sendi­ráðið milli­göngu um málið. Frá Íslandi voru ein­stak­lingar frá ólíkum stjórn­mála­flokkum.“

Aðrir Íslend­ingar sem fóru í ferð­ina voru þeir Steinar Sig­ur­jóns­son, með­limur E-list­ans í Grímsnes- og Grafn­ings­hreppi, Tryggvi Rafnsson, fyrrum for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, og Sveinn Ægir Birg­is­son, bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Árborg

„Ég var á eigin vegum eins og við öll sem þarna vorum, en ekki full­trúar sam­taka eða félaga. Þetta var 15 manna hópur með ólíkan bak­grunn. Stúd­entar, fram­kvæmda­stjóri, leik­ari, rit­höf­undur, starfs­maður í félags­þjón­ustu og svo fram­vegis,“ sagði Jón Grétar við Mannlíf

„Nokkrar ræður voru haldnar í ferð­inni og lögðu flestir úr hópnum orð í belg. Ég hélt ræður, oft­ast þakkir fyrir góðar mót­tökur. Þær voru mæltar af munni fram. Meðal umræðu­efna voru umhverf­is­mál og sam­skipti þjóð­anna á vett­vangi ferða­mála,“ sagði gjald­ker­inn þegar hann var spurður hvort að Mannlíf gæti fengið afrit af þeim ræðum sem hann hélt í Kína.

Til­gangur ferð­ar­innar að sögn Jóns var að læra og fræð­ast um Kína og að skilja heim­inn betur.

„Móttökur og við­mót gest­gjafa okkar voru með ágætum. Árangur þeirra t.d. á vett­vangi umhverf­is­mála er eft­ir­tekt­ar­verður og menn­ing þeirra og stjórn­kerfi, þar á meðal lýð­ræð­is­venjur, er okkur fram­andi. Kín­verjar með sína 1400 millj­ónir manna eru stór­veldi á hinu alþjóð­lega sviði. Það er ávallt lær­dóms­ríkt að kynn­ast siðum og venjum ann­arra þjóða,“ sagði Jón þegar hann var spurður út í hverju þessi ferð hafi skilað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum