Alls bárust 127 umsóknir um starf dagskrárgerðarmanns í Síðdegisútvarpinu á Rás 2 sem nýlega var auglýst.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir, blaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is, varð fyrir valinu og mun hefja störf að loknum páskum en Morgunblaðið greindi frá þessu.
Margir frægir einstaklingar sóttu um starfið og er hægt að nefna Krumma Björgvinsson, Ara Matthíasson og Lilju Nótt Þórarinsdóttir. Auk þeirra var mikill fjöldi þekktra fjölmiðlamanna sem sótti um.































Athugasemdir