Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis

„Ég byrj­aði í end­ur­hæf­ingu þegar ég var 21 árs“

Ingiríður er í ólgusjó vegna verkja og svefnleysis
Ingiríður Hall­dórs­dóttir Opnaði sig í Sofum saman Mynd: Aðsend

Ingiríður Hall­dórs­dóttir er nýjasta gest­ur­inn í hlað­varp­inu Sofum saman.

Hún er þrí­tug lista­kona sem hefur frá barn­æsku tek­ist á við verki sem hafa haft áhrif á svefn hennar. Hún lýsir því í þætt­inum hvernig hún hefur nýtt húmor og list­sköpun til að finna jafn­vægi í þeim áskor­unum sem fylgja verkjum og svefn­leysi.

„Ég verð þrí­tug á næsta ári og kynni mig oft sem mjög greinda konu því að ég er með dálítið mikið af grein­ingum,“ segir Ingiríður í þætt­inum.

„En ég er líka lista­kona, er að vinna að skúlp­t­úr­gerð og sam­fé­lags­skipu­lagi. Já og er ljóð­skáld og brand­ara­kell­ing sem kann ekki að taka hlut­unum mjög alvar­lega, og er búin að vera á örorku síðan 2021 held ég, svo það er alveg svona komið dálítið langur tími og ég byrj­aði í end­ur­hæf­ingu þegar ég var 21 árs,“ heldur hún áfram.

„Ég var með of mik­inn lið­leika og band­vefs­sjúk­dóm eða band­vefss­heil­kenni þannig að alltaf þegar ég var að fara að sofa þá var mér svo illt í fót­unum og það er einmitt eitt­hvað sem mamma og pappi tóku eftir strax því ég var grát­andi á næt­urnar og ég mig rámar í hluta af þessu, það var af því að ilj­arnar mínar voru svo rosa­lega flatar og að þegar lík­am­inn var að reyna að passa liða­mótin væru ekki að fara í allar áttir að þá myndar það bólgu. Ég fór í sjúkra­þjálfun og var eig­in­lega í gegnum leik­skóla og grunn­skóla í því og síðan þegar ég er ung­lingur þá byrj­aði ég að fá ein­kenni af vefja­gigt,“ og seg­ist hafa farið einu sinni í í svefn­rann­sókn með heila­línu­rit og að hún hafi vaknað átján sinnum yfir nótt­ina.

Uppfull af koltvísýringi

Eftir að hafa farið í blóðprufu hafi komið í ljós að hún sé ekki að fá nægi­lega mikið súr­efni.

„Ég er ekki að skila koltví­sýr­ingi til baka. Svo ég er bara eins og kók­flaska þegar ég vakna, upp­full af koltví­sýr­ingi,“ segir Ingiríður sem seg­ist vera læra ýmis­konar tækni við svefn og nefnir sjálfsleiðslu­tækni

„Er búin að blanda saman að því að það er mjög mikið af tækni sér­stak­lega fyrir mið­tauga­kerf­is­sjúk­dóma sem er svona þessir tveir flokkar sem er ann­ars vegar band­vef­ur­inn og hins vegar mið­tauga­kerfið að því að kerfið mitt slakar ekki á, fight or flight er alltaf í gangi. En það eru ákveðnar tæknir sem eru not­aðar til að koma því yfir í and­stæð­una við fight or flight sem er rest and dig­est. Þegar lík­am­inn upp­lifir öryggi þá leyfir hann melt­ing­unni og svefn­inum að koma,“ segir lista­konan í þætt­inum.

„Þessi taug liggur frá höfði og niður í kvið og öll örvun sem fylgir þess­ari taug, hvort sem það sé að öskra, gráta, humma eða eitt­hvað annað þá kveikir það á þessu við­bragði. En þetta er svona vagus-tauga sjálfs­dá­leiðsla, er svona grunn­ur­inn sem hent­aði mínu kerfi rosa­lega vel. Þegar börn eru að gráta en gráta með tárum að þá er auð­veld­ara að róa þau niður heldur en ekki. Þá eru þau að kveikja á þessu vagus-tauga við­bragði með því að vera að gráta og þá hefur það áhrif á taug­ina og við getum róað okkur niður, það virkar eins og að humma.“

Hún segir að það sé margt sem fólk geti ekki stjórnað en hún geti hins vegar beitt húmornum þó að allt þetta sé pirr­andi. „Ég sætti mig við raskið en ég er ekki að leyfa því þó að raska öllu,“ heldur hún áfram.

Vel meinandi en stundum meiðandi

„Ég hef líka svo mik­inn áhuga á að skilja hluti og líka að finna fyrir hlut­ina og það er líka sem listin hefur gefið mér svo mikið, þú veist, ég er oft að yrkja mig út úr þessu ástandi að. Ég er að nota mitt lyfjarusl mitt sem medium bæði, þú veist, tákn­rænt og líka bara að gera fal­lega hluti úr ein­hverju sem ekki allir finna fal­legt en ég ætla að koma út úr tann­lækna­stof­unni og segja: þú ert tann­garð­yrkju­maður og ég ætla að búa til tann­blóma­pott og búa til fígúrur og tann­þráð og rósir með,“ segir lista­konan.

„Oft er ég bara að tala um lífið mitt en fólk ætlar, oft­ast frá mjög vel mein­andi stað, að hjálpa en það er samt líka meið­andi. Oft er und­ir­liggj­andi boð­skap­ur­inn sem fólk kannski áttar sig ekki á: Ef þú þekkir þetta svona vel, ef þú sérð vand­ann, af hverju ertu ekki bara búin að laga þetta? Af hverju ertu ekki búin að lækna þig? En kannski get ég það aldrei. Og það er bara allt í lagi. Ég ætla bara að njóta þess­arar sjó­ferðar meðan ég er í sjó­inn fær. Og ég er að mynd­lík­inga yfir mig, ég get ekki sagt neitt án þess að það sé komið út hálft ljóð! 

Það er eitt ljóð sem ég skrif­aði sem einmitt kom út frá sam­tali sem ég átti við lækni. Hún er sér­stak­lega áhuga­söm um band­vefs­breyti­leika eins og ég er með og hún var að tala um að fólkið sem hefur þann fjöl­breyti­leika, allir sjá það stand­andi á kletta­brún­inni og skilja ekk­ert hvað þau eru að gera þarna og af hverju þau fara ekki frá brún­inni en sjá hvorki það sem er að halda þeim niðri en heldur ekki útsýnið sem þau sjá. Þó að ég sé alveg þreytt á að fá salt í augun allan dag­inn kann ég að meta fal­lega útsýnið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur