Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Seinna komu þeir með hund sem nauðgaði mér líka“

Ný skýrsla lýsir kerf­is­bundnum og hrotta­fengnum nauðg­unum á palest­ínskum föngum

„Seinna komu þeir með hund sem nauðgaði mér líka“
Konur mót­mæla á Vest­ur­bakk­anum Konur halda uppi myndum af ást­vinum sem eru í haldi Ísraela Mynd: JAAFAR ASHTIYEH / AFP

Euro-Med Human Rights Monitor segir í nýrri skýrslu að kyn­ferð­is­of­beldi gegn Palest­ínu­mönnum í ísra­elskum fang­elsum og varð­halds­stöðvum sé í reynd opin­ber stefna rík­is­ins og notað sem tæki til kúg­unar og eyði­legg­ingar, sér­stak­lega eftir 7. októ­ber 2023. Við­kvæmir les­endur eru var­aði við lestr­inum.

Euro-Med Human Rights Monitor segir í nýrri skýrslu að kyn­ferð­is­of­beldi gegn Palest­ínu­mönnum í ísra­elskum fang­elsum og varð­halds­stöðvum sé í reynd opin­ber stefna rík­is­ins og notað sem tæki til kúg­unar og eyði­legg­ingar, sér­stak­lega eftir 7. októ­ber 2023. auk þess sem árásir hafi verið teknar upp á mynd­band og fram­kvæmdar í við­ur­vist margra örygg­is­varða. BBC hefur áður fjallað um frá­sagnir fyrr­ver­andi fanga sem lýst hafa nauðg­unum í haldi Ísraela.

Samtökin segja að mark­miðið hafi verið að brjóta niður bæði ein­stak­linga og sam­fé­lagið í heild með alvar­legum lík­am­legum og and­legum skaða.

Skýrslan byggir að stórum hluta á vitn­is­burði fyrr­ver­andi palest­ínskra fanga frá Gaza sem hafi verið látnir lausir und­an­farna mán­uði og greint frá kerf­is­bundnu kyn­ferð­is­of­beldi í haldi Ísraela.

Khaled Ahmad, rann­sak­andi hjá sam­tök­unum, sagði að það hefði verið „nán­ast ómögu­legt“ að nálg­ast vitn­is­burði um kyn­ferð­is­of­beldi.

„Við vissum að um tugi nauð­gana og kyn­ferð­is­árása væri að ræða, en í íhalds­sömu sam­fé­lagi er gríð­ar­lega erfitt fyrir fólk að segja frá því að það hafi verið nauðgað,“ sagði hann. Bætti hann við: „Þrátt fyrir erf­ið­leik­ana tókst okkur að ná til nokk­urra til­vika, en flestir voru karl­menn, því sam­hengi kyn­ferð­is­of­beldis gegn konum í palest­ínsku sam­fé­lagi hefur í för með sér meiri og flókn­ari afleið­ingar. Þess vegna er afar erfitt fyrir konu að segja frá því að hún hafi orðið fyrir árás.“

Hann bætti við að sam­tökin teldu raun­veru­legan fjölda fórn­ar­lamba mun hærri en þau hefðu getað stað­fest.

Í einni frá­sögn sem birt er í skýrsl­unni segir 43 ára gam­all palest­ínskur maður, Wajdi, að her­menn hafi ítrekað nauðgað honum meðan á yfir­heyrslum stóð.

„Í yfir­heyrsl­unni bundu þeir mig nak­inn við málm­rúm og einn her­mann­anna spurði mig hversu mörgum ísra­elskum konum ég hefði nauðgað í Ísrael. Ég neit­aði því að hafa nokkurn tíma farið til Ísraels. Þá nauðg­aði her­maður mér. Ég fann fyrir miklum sárs­auka í enda­þarmi og öskr­aði, en í hvert skipti sem ég öskr­aði var ég bar­inn. Þetta stóð yfir í nokkrar mín­útur á meðan her­menn tóku það upp og hædd­ust að mér. Her­mað­ur­inn fór eftir að hafa fengið sáð­lát inn í mig. Ég var skil­inn eftir í nið­ur­lægj­andi stell­ingu. Ég óskaði mér dauða. Mér blæddi,““ sagði hann sam­kvæmt skýrsl­unni.

Hann segir einnig að hundur hafi verið not­aður við ofbeldið og að hann hafi síðar verið neyddur til munn­maka og síðan hafi verið pissað á hann.

„Seinna leystu þeir mig og komu með hund sem nauðg­aði mér líka. Sama dag var mér nauðgað að minnsta kosti tvisvar sinnum í við­bót eftir að hafa verið bundin við rúmið. Einn her­mann­anna setti lim­inn upp í munn­inn á mér og piss­aði svo á mig. Nauðg­unin var end­ur­tekin tveimur dögum síðar af þremur her­mönnum. Ég var í mjög slæmu lík­am­legu og and­legu ástandi.“

Samkvæmt sam­tök­unum hafa karlar og drengir verið beittir sér­stak­lega grófu kyn­ferð­is­of­beldi, meðal ann­ars þar sem málm­stöngum, tré­kylfum og öðrum hlutum var stungið í enda­þarm þeirra, auk raf­losts og bar­smíða á kyn­færi.

Fangar voru einnig beittir raf­lostum og sparkað eða slegið var beint í kyn­færin með höndum eða her­manna­klossum. Þessar mis­þyrm­ingar leiddu til skráðra til­vika um var­an­lega lík­am­lega áverka, þar á meðal missi á æxl­unar- eða hluta af melt­ing­ar­færum, brott­nám eistna og í sumum til­fellum dauða af völdum pynt­inga.

Skýrslan segir einnig að palest­ínskar konur og stúlkur frá Gaza hafi orðið fyrir kerf­is­bundnu kyn­ferð­is­of­beldi frá októ­ber 2023, þar á meðal hafi þær verið þving­aðar til að afklæð­ast, þær orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni, orðið fyrir nauðg­un­ar­hót­unum og verið nauðgað.

Euro-Med Human Rights Monitor segir ísra­elska dóms­kerfið hafa brugð­ist algjör­lega sem eft­ir­lits­kerfi og í stað­inn skapað refsi­leysi fyrir glæpi gegn Palest­ínu­mönnum.

Í fyrri skýrslu sem birt var í maí 2024 skrá­setti Euro-Med Monitor um 100 vitn­is­burði sem lýstu að minnsta kosti 40 mis­mun­andi pynt­ing­ar­að­ferðum sem beitt var gegn föngum. Þar á meðal voru alvar­legar og ítrek­aðar bar­smíðar, þvinguð fjötrun, svipt­ing svefns, matar og vatns, nið­ur­lægj­andi og ómann­úð­legar aðstæður í varð­haldi og stöðugar hót­anir, ásamt munn­legu og sál­rænu ofbeldi.

Samtökin telja að brotin upp­fylli skil­yrði fyrir stríðs­glæpi, glæpi gegn mann­kyn­inu og mögu­lega þjóð­ar­morð sam­kvæmt Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stólnum og Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Þau kalla nú eftir því að Alþjóð­legi saka­mála­dóm­stóll­inn rann­saki sér­stak­lega kyn­ferð­is­of­beldi og pynt­ingar gegn palest­ínskum föngum og að ríki sem eiga aðild að Róm­ar­sam­þykkt­inni beiti lög­sögu sinni til að lög­sækja þá sem bera ábyrgð.

Hér má lesa skýrsl­una í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco