Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Erfið fortíð mesti styrkleikinn

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga, er odd­viti Fólks fólks­ins í Reykja­vík. Í við­tali við Mannlíf ræðir hann áherslu­mál sín og flokks­ins varð­andi hús­næð­is­mál, mál­efni eldri borg­ara og þeirra sem minna mega sín í sam­fé­lag­inu, til að mynda þeirra sem lokið hafa afplánun. Þá vill Flokkur fólks­ins taka áherslur borg­ar­línu í sam­göngusátt­mála sveit­ar­fé­laga við ríkið til end­ur­skoð­unar. Guð­mundur Ingi fer einnig yfir eigin reynslu af því að sitja inni en hann segir erf­iða for­tíð hluta af styrk­leikum hans í dag. Hann vill hjálpa öðrum og reyna þannig að bæta fyrir það sem hann gerði áður.

Erfið fortíð mesti styrkleikinn
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son Formaður Afstöðu og odd­viti hjá Flokki fólks­ins Mynd: Golli

„Þó að allir ráð­leggi mér að segja það ekki þá hef ég í raun og veru engan sér­stakan áhuga á að verða borg­ar­full­trúi. Ástæðan fyrir því að ég gef kost á mér teng­ist því að vinna með fólki alla daga og að reyna að leysa vanda­mál á öllum sviðum fjöl­skyld­unnar,“ segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, odd­viti Flokks fólks­ins í Reykja­vík og for­maður Afstöðu, félags fanga.

Hann segir að til Afstöðu leiti fólk með fjöl­þættan vanda, vímu­efna­vanda og hegð­un­ar­vanda, fólk sem sé í fang­elsi eða að koma úr fang­elsi.

„Það er ekki til staðar nógu gott stuðn­ings­kerfi og svarið er allt of oft: „Tölvan segir nei.“ Það er lít­ill skiln­ingur á mörgum þess­ara mála og þess vegna breyt­ast hlut­irnir ekki.“

Hann situr á skrif­stofu sinni hjá Afstöðu. Í mynd­ara­mma er svart­hvít mynd af ungum manni sem nú er lát­inn. Hann tók eigið líf.

„Það hafa til dæmis sam­band við okkur ráða­lausir for­eldrar þótt börn þeirra séu ekki í fang­elsi eða í afbrotum en fá engan stuðn­ing og vita ekk­ert hvert þeir eiga að leita. Barna­verndir eru farnar að leita til okkar og búsetu­úr­ræði með börn eru farin að leita til okkar,“ segir Guð­mundur Ingi.

Þetta sé meðal ann­ars ástæðan fyrir því að hann gefi kost á sér.

Þegar fólk brotnar niður

„Ég vil nýta þá þekk­ingu og reynslu sem ég hef, auk þess sem ég hef menntað mig í þessu,“ segir Guð­mundur Ingi, sem er með BA-próf í félags­ráð­gjöf og er að klára meistara­gráðu í for­ystu og stjórnun.

„Ég vil laga þessa hluti. Við sjáum afleið­ing­arnar af því að ekki var gripið inn í mál á fyrri stigum. Þegar fólk brotnar niður. Þegar fólk fær ekki aðstoð og þegar eitt­hvað ger­ist í kjöl­farið sem felur í sér enn meiri vanda og geð­deildir, ung­linga­heim­ili, fang­elsi taka við eða dauði,“ segir hann.

Þegar hann mæti í eina jarð­ar­för í mán­uði vilji hann sjá breyt­ingar. Það knýi hann áfram í bar­átt­unni.

„Ég hafði lengi trú á að ég kæmi þessum málum áfram innan Sam­fylk­ing­ar­innar en á end­anum reynd­ist svo ekki vera. Þar var mjög tak­mörkuð reynsla og þekk­ing á þessum málum og ég átti alltaf erfitt upp­dráttar þar,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann seg­ist samt hafa þrjóskaðst við og viljað breyta þessu, ýta á og fræða fólk. Það hafi tek­ist í mörgum til­fellum og hann eigi marga góða vini í Sam­fylk­ing­unni. Hann sé hins vegar mjög sáttur við að fá tæki­færi til að leiða lista Flokks fólks­ins.

„Það er nátt­úr­lega ekki hægt annað en taka eftir því hvernig Inga Sæland og Flokkur fólks­ins hafa barist fyrir mál­efnum eldri borg­ara, öryrkja, efna­m­inna fólks og margs konar minni­hluta­hópa. Ég hef séð hana taka slag fyrir Afstöðu, til dæmis inni á Alþingi. Það er aðdá­un­ar­vert og maður tekur eftir því,“ segir hann.

Þegar sím­talið kom hafi málið ekki endi­lega verið að hann yrði odd­viti. Inga hafi viljað fá hann í flokk­inn og hann verið til í það.

„Það er alveg sama hver nið­ur­staðan verður í þessum kosn­ingum, ég verð áfram í flokknum og hjálpa til við að byggja hann upp og ég mun auð­vitað halda mínum mál­efnum á lofti,“ segir Guð­mundur Ingi.

Ein­hverjir hafi kallað hann flokka­flakk­ara þegar hann fór yfir til Flokks fólks­ins.

„Stað­reyndin er hins vegar sú að ég var að hætta í stjórn­mála­flokki í fyrsta skipti á ævinni. Það er allt flokka­flakkið. Ég er alla­vega ekki hug­sjónaflakk­ari og það skiptir höf­uð­máli.“

Hann segir að Afstaða og Flokkur fólks­ins tvinn­ist svo­lítið saman hjá sér.

„Ég get nátt­úr­lega alltaf gripið í mál­efni Afstöðu þegar mig rekur í vörð­urnar því stefna Flokks fólks­ins og Afstöðu er í grunn­inn hin sama. Í fang­els­unum má finna öryrkja, fatl­aða ein­stak­linga, fólk með fram­heilaskaða, fólk með alzheimer, hinsegin fólk, trans fólk, ung­menni og eldri borg­ara,“ segir hann.

Þar sé öll flóra mann­lífs­ins. Útlend­ingar og Íslend­ingar erlendis.

„Þannig að þetta er kannski mála­flokkur manns­ins.“

Leikskóli fyrir dagmæður

Guð­mundur Ingi seg­ist rýna í sögu fólks í fang­elsum, ekki ein­ungis það hvað það hafi gert af sér.

„Það er hægt að spyrja mig fyrir hvað við­kom­andi situr eða sat inni en oft hef ég ekki hug­mynd um það og er í raun alveg sama um það. Það eru ára­tugir síðan ég hætti að lesa um slíkt,“ segir hann.

Hjá Afstöðu sé hins vegar rýnt í fólkið. Þar sé spurt hvort hugs­an­lega hafi verið hægt að grípa fyrr inn í atburða­rás­ina. Það hafi oft­ast verið hægt en sjaldn­ast verið gert.

„Íslenskt sam­fé­lag er fram­ar­lega í jafn­rétt­is­bar­áttu til dæmis, sem er mjög gott. Við eigum lífs­gæði okkar og líf jafn­rétt­is­bar­áttu kvenna að þakka. Það er þeim að þakka að við stöndum eins vel og við gerum í dag. Það er ekk­ert hægt að segja annað,“ segir Guð­mundur Ingi.

Á sama tíma hafi sam­fé­lagið breyst mikið. Hann segir að sam­fé­lagið hafi lítið velt leik­skól­anum fyrir sér út frá and­legri heilsu barna. Leik­skól­inn hafi mikið verið ræddur út frá jafn­rétt­is­bar­átt­unni og stöðu kvenna á vinnu­mark­aði, en þar þurfi að huga að fleiri hliðum.

„Við hjá Afstöðu förum mikið til útlanda að skoða úrræði fyrir börn og ung­menni, til að kynna okkur hvernig aðrar þjóðir eru að taka á mál­unum. Mörg lönd standa fram­ar­lega í þessu, eins og til dæmis Tékkland. Þar er allt kerfið hugsað út frá and­legri heilsu barna, ung­menna og fólks með alls konar kennslu og fræðslu,“ segir hann.

Í löndum sem standi fram­ar­lega sé sér­stak­lega hugað að áföllum sem fólk hafi lent í á lífs­leið­inni. Hann segir Íslend­inga þurfa að ein­blína á þetta líka og skoða sig sem sam­fé­lag.

„Er til dæmis best fyrir börnin að þau fari í leik­skóla tólf mán­aða? Við þurfum að þora að spyrja okkur erf­iðra spurn­inga. Annars höldum við áfram að fá fólk með vanda allt frá leik­skóla­aldri í fang­elsin,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann seg­ist hafa skrifað grein um þetta og því hafi ekki verið vel tekið, meðal ann­ars af sumum hörðum femínistum.

„Við þurfum að finna leið til að for­eldrar geti verið lengur í fæð­ing­ar­or­lofi eða þá að börn geti farið fyrst til dag­mömmu eða í dag­vistun. Að for­eldrum verði gert betur kleift að skipta fyrstu mán­uðum barns­ins á milli sín og börnin fari síðar, kannski átján mán­aða, á leik­skóla,“ segir hann.

Mik­il­vægt sé fyrir börn að fá félags­lega örvun, hitta og umgang­ast önnur börn. Málið sé því flókið og jafn­vel erfitt. Hann segir að alltaf verði að hugsa þessi mál út frá and­legri heilsu barna og jafn­rétti for­eldra, ekki bara kvenna. Einnig þurfi að huga að aðstæðum starfs­fólks.

„Und­an­farið hefur ríkt algjör krísa í leik­skóla­málum í Reykja­vík. Það skortir kannski ekki skoð­anir en það er mjög erfitt að gera eitt­hvað í mál­unum. Ég held að það sé mik­il­vægt að fundin sé við­un­andi lausn þar sem horft verði á þessi atriði sem ég var að telja upp,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann segir einnig þurfa að gera betur fyrir dag­mæður.

„Við hjá Flokki fólks­ins erum mjög hrifin af því að opna sam­eig­in­legt rými fyrir dag­mæður þar sem þær gætu komið saman með börnin. Þannig gætu þær kynnst öðrum dag­mæðrum og myndað net. Það ætti líka að styðja þær með sams konar greiðslum og fara til leik­skóla,“ segir hann.

Flokkur fólks­ins vilji hugsa þessa hluti til lengri tíma á fag­legum grunni en bráða­vand­ann þurfi að leysa strax. Þegar flokk­ur­inn mæli með heim­greiðslum fyrir börn sem séu á biðlista sé miðað við tíma­bilið sem beðið er eftir leik­skóla­plássi. Sumir séu á móti því.

„Svo eru það fyr­ir­tækja­leik­skólar. Í dag eru flokkar í borg­ar­stjórn sem eru alfarið á móti því að fyr­ir­tæki reki leik­skóla fyrir börn starfs­manna og á móti heim­greiðslum. Það end­ur­speglar úrræða­leysi í mínum huga,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann segir að koma verði fram með lausnir strax sem virka. Biðlist­arnir séu allt of langir og ekki sé verið að grípa börn og ung­menni nógu snemma og þegar þau þurfi á því að halda.

„Það pirrar mig að áhrifa­miklir flokkar telji að hægt sé að leysa allan vanda með einni stórri upp­hæð en leggi í raun ekki fram neinar hug­myndir um hvernig eigi að leysa málin til lang­frama.“

Uppbygging í Úlfarsárdal

Guð­mundur Ingi segir að innan Flokks fólks­ins hafi fólk auð­vitað skoð­anir á öllu. Fyrst og fremst vilji þau öll hins vegar að kosn­inga­bar­áttan snú­ist um fólk og að borgin virki þegar íbúar þurfi á þjón­ustu hennar að halda.

„Hún er ekki að gera það í dag. Ég gæti orðið fatl­aður á morgun eða lent í fang­elsi. Borgin þarf að grípa fólk í svo ólíkum aðstæðum. Við sjáum fullt af fötl­uðu fólki eða fólki með grein­ingar sem fær ekki lög­bundna þjón­ustu hjá borg­inni. Það er alveg ljóst,“ segir hann.

Flokkur fólks­ins vilji að borgin komi fólki í aðstæðum sem það ráði ekki við til aðstoðar.

„Velferð fyrir okkur öll. Þetta er kjarn­inn.“

Öruggt hús­næði snerti alla tekju- og ald­urs­hópa. Guð­mundur Ingi segir Flokk fólks­ins hafa sett aðgerðir í hús­næð­is­málum sem algjört grunn­skil­yrði fyrir núver­andi meiri­hluta­sam­starfi. Hluti af því hafi verið að finna svæði fyrir fólk í hjól­hýsum þannig að það hefði öruggan stað.

„Aðal­málið var síðan að stór­auka fram­boð á hag­stæðum íbúðum með því að brjóta nýtt land undir íbúð­ar­hús­næði. Það er okkur að þakka að und­ir­bún­ingur er haf­inn fyrir upp­bygg­ingu á um fjögur þús­und íbúðum í Úlf­arsár­dal. Þar verður sér­stak­lega horft til hag­stæðs eignar- og leigu­hús­næðis,“ segir hann.

Þetta væri ekki einu sinni komið á kortið ef ekki hefði verið fyrir Flokk fólks­ins, að sögn Guð­mundar Inga.

„Þetta nýja hverfi á að heita Hallar og verður byggt af inn­viða­fé­lagi sem borgin, ríkið og verka­lýðs­hreyf­ingin standa að. Borgin leggur til lóð­irnar og svo kemur inn­viða­fé­lagið og byggir allt hverfið, leggur götur, raf­magn, vatn og frá­veitur, byggir skóla, leik­skóla og hjúkr­un­ar­heim­ili á sama tíma,“ segir hann.

Þannig þurfi borgin ekki að leggja út fyrir upp­bygg­ingu inn­við­anna eða taka lán fyrir þeim með til­heyr­andi áhrifum á fjár­mál borg­ar­innar. Þegar leigu­greiðslum borg­ar­innar ljúki eign­ist hún síðan inn­við­ina.

„Þetta er rosa­lega flott konsept, fyrir utan það að þegar fólk flytur inn þá verður allt klárt. Það þarf ekki að ferja fólk með rútum hingað og þangað um önnur hverfi til að fara í skóla,“ segir Guð­mundur Ingi.

Öruggt hús­næði sé grunnur að öllu. Ekki sé hægt að fóta sig í líf­inu án þess að eiga öruggt heim­ili. Ekki sé hægt að jafna sig á veik­indum eða ná bata vegna áfengis- eða vímu­efna­neyslu án þess að vera með húsa­skjól.

„Það er númer eitt, tvö og þrjú. Við erum að hugsa um efna­minnstu hópana, öryrkja, eldri borg­ara og börn með fjöl­þættan vanda, ýmsa minni­hluta­hópa og jað­ar­setta hópa.“

Þarf að endurskoða Borgarlínuna

Borg­ar­línan er hita­mál og skoð­anir á verk­efn­inu eru mis­jafnar. Hvað segir odd­viti Flokks fólks­ins um það?

„Borg­ar­línan er í fyrsta lagi hluti af sam­eig­in­legum sam­göngusátt­mála sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­ins. Þetta er risa­verk­efni þar sem Borg­ar­lína er vissu­lega stór hluti en alls ekki eini hlut­inn,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann segir óábyrgt að segja að Flokkur fólks­ins sé á móti Borg­ar­línu, en hins vegar megi end­ur­skoða mjög margt í henni. Flokk­ur­inn vilji nýta end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði sátt­mál­ans til þess. Eðlilegt sé að hlutar í svo stóru verk­efni séu end­ur­skoð­aðir með reglu­legu milli­bili.

„Allir flokkar í borg­inni segj­ast hlynntir bættum almenn­ings­sam­göngum. Bættar almenn­ings­sam­göngur gætu orðið mikil kjara­bót fyrir marga. Allir virð­ast sam­mála um að þörf sé á sér­a­kreinum fyrir almenn­ings­sam­göngur, neyðar- og leigu­bíla,“ segir hann.

Þá sé spurn­ingin hvernig best verði að skipu­leggja Borg­ar­lín­una eða bættar almenn­ings­sam­göngur. Talað hafi verið um að vagnar Borg­ar­lín­unnar verði svo stórir að þeir verði að vera í miðju gatna með aðra umferð í báðar áttir sitt­hvoru megin við sig. Kannski sé hægt að finna aðra útfærslu.

„Þetta er okkar skoðun. Við erum ekki hrifin af Borg­ar­línu eins og hún er upp­sett.“

Eitt sé ljóst, að hans sögn. Brýn þörf sé á bættum almenn­ings­sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og það geti reynst mjög erfitt að byggja upp ný hverfi án betri almenn­ings­sam­gangna.

Laga fangelsi að samfélaginu

Guð­mundur Ingi er einn stofn­enda Afstöðu, félags fanga. Félagið var stofnað fyrir tutt­ugu og einu ári og haldið var upp á tutt­ugu ára afmælið í fyrra, meðal ann­ars með ráð­stefnu. Af því til­efni komu erlendir sér­fræð­ingar í fang­els­is­málum til lands­ins.

„Það mættu líka nokkrir ráð­herrar og Inga Sæland söng afmæl­is­söng­inn. Þetta var ótrú­lega flott.“

Guð­mundur Ingi seg­ist hafa tekið þátt í stofnun Afstöðu eftir að hafa orðið vitni að því hvernig kerfið brjóti fólk enn frekar niður og eyði­leggi jafn­vel heilu fjöl­skyld­urnar.

„Fólk sem brýtur af sér er ekki alltaf með sjálfu sér þegar brotið á sér stað. Þess vegna seg­ist ég aldrei hafa hitt neinn í fang­elsi sem er ein­fald­lega vondur; sem fædd­ist vondur. Allir geta breyst og þurfa að fá tæki­færi til þess,“ segir hann.

Þegar sama fólkið komi aftur og aftur inn í fang­elsin, jafn­vel allt til dauða­dags, sé greini­lega mikið að. Þá fari maður að berj­ast í þessum málum. Stundum sé það eins og að berja hausnum í vegg. Ekkert ger­ist.

„Ég held ég hafi fengið ein­hvers konar áráttu fyrir verk­efn­inu. Ég og sam­verka­fólk mitt ætlum að ná fram breyt­ingum. Þess vegna vinnum við dag og nótt, alla daga og um helgar. Við gerðum það í sjálf­boða­vinnu þangað til nýlega og erum núna þrír starfs­menn á launum,“ segir Guð­mundur Ingi.

Guð­mundur Ingi sat inni á Litla-Hrauni þegar hann stofn­aði Afstöðu ásamt öðrum. Síðan þá hefur hann meðal ann­ars reynt fyrir sér í veit­inga­rekstri, en hann hefur í gegnum tíð­ina rekið nokkra veit­inga­staði, eða eins og hann orðar það:

„Með mis­jöfnum árangri, alltaf á milli þess sem ég bý ekki á Spáni.“

Eiginlega allt neikvætt

Guð­mundur Ingi seg­ist fara í jarð­ar­farir um einu sinni í mán­uði og stundum oftar, jafn­vel þótt hann fari ekki í allar jarð­ar­farir sem hann gæti farið í. Ákveðnir ein­stak­lingar verða alltaf í huga hans. Margir þeirra sem hann hefur veitt aðstoð eru látnir.

„Hérna er einn,“ segir Guð­mundur Ingi og horfir á ljós­mynd­ina af unga mann­inum í ramma á skrif­stof­unni.

Hann var í miklum sam­skiptum við ætt­ingja hans.

„Ég man að á tíma­bili vissi maður ekki hvað var í gangi. Það var svo mikið um and­lát, bæði sjálfs­víg og ofneyslu. Þetta tekur á og í okkar umhverfi er alltaf eitt­hvað nei­kvætt að ger­ast,“ segir hann.

Afstaða fái sím­töl alla daga frá aðstand­endum, föngum og alls konar fólki sem sé að reyna að hjálpa öðrum að ná tökum á til­ver­unni eða gera eitt­hvað en viti ekki hvert það eigi að snúa sér.

„Við reynum að ýta á málin, hringja og spyrja til dæmis hvort ekki sé hægt að koma við­kom­andi strax í með­ferð. Við reynum allt til að finna lausnir. Við höfum stundum styrkt fólk sjálf eða að hluta. Við reynum allt þótt þetta séu ekki fjár­sterk sam­tök,“ segir Guð­mundur Ingi.

Margt af því sem félagið geri sé kannski ekki hlut­verk þess.

„Ég og okkar fólk erum búin að byggja upp þetta félag í rúm tutt­ugu ár, mest síð­asta ára­tug­inn. Ég hef setið í mörgum starfs­hópum og nefndum og það er stöðugt leitað til okkar um umsagnir,“ segir hann.

Hann segir Afstöðu vera meðal helstu sér­fræð­inga í mála­flokknum, ekki aðeins í fang­els­is­málum heldur einnig tengdum málum eins og áfengis- og vímu­efna­málum. Þar sé félagið á heima­velli og hafi einnig tekið þátt í starfs­hópum.

„Við höfum aðstoðað ótrú­lega marga. Við erum með í kringum þrjú þús­und mál á ári sem er ótrú­legur fjöldi miðað við að fangar eru bara um tvö hund­ruð. En hver ein­stak­lingur getur verið með mörg mál og sum mál geta tengst fjöl­skyldum þeirra, fjölda stofn­ana og jafn­vel fjöl­miðlum,“ segir hann.

Þetta sé mjög viða­mikið.

„Við höfum ekki ein­göngu beint sjónum okkar að föngum. Við erum í raun og veru tals­menn allra sem hafa verið sviptir frelsi. Það getur líka verið fólk sem er læst inni á geð­deildum eða sjúkra­húsum,“ segir Guð­mundur Ingi.

Þetta geti verið börn jafnt sem full­orðnir, ung­menni í búsetu­úr­ræðum sem eru lokuð þar inni eða eru í gæslu­varð­haldi. Afstaða sé því tals­maður mjög stórs hóps sem fáir vilji vita af eða tala mikið fyrir.

Blóð- og hrákasýni

Eins og fram hefur komið er Guð­mundur Ingi með BA-próf í félags­ráð­gjöf, en hann seg­ist ekki hafa áhuga á að starfa sem félags­ráð­gjafi.

„Ég hef engan áhuga á að vinna á skrif­stofu. Það er bara ekki fyrir mig. Ég er með skrif­stofu en ég er á ferð­inni úti að hitta fólk og fer inn í fang­elsin og á erf­iða staði,“ segir hann.

Hann vann til dæmis í nokkur ár hjá Reykja­vík­ur­borg í mál­efnum heim­il­is­lausra og fór í neyð­ar­skýlin, sem gaf honum aðra sýn á lífið.

„Ég get sagt þér að við fórum til dæmis með geð­læknum að hitta skjól­stæð­inga af því að þeir treystu sér ekki til þess að fara einir. Við vorum að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft, að standa sig og bregð­ast rétt við,“ segir hann.

Guð­mundur Ingi segir þau til að mynda hafa sinnt ein­stak­lingum sem hafi verið titl­aðir erf­iðir og hættu­legir. Hann starfi nú í hluta­starfi á göngu­deild smit­sjúk­dóma hjá Land­spít­al­anum.

„Ég er þar í vett­vangsteymi þar sem við þurfum að ná í alls konar blóð­sýni og hráka­sýni og hitt og þetta varð­andi berkla og lifr­ar­bólgu og við sinnum líka lyfja­gjöf. Þarna eru ein­stak­lingar sem vilja ekki láta sinna sér eða vilja ekki taka lyfin sín en þeir gera það af því að þeir treysta okkur.“

Rak ýmis fyrirtæki

Guð­mundur Ingi seg­ist eiga öðru­vísi sögu en margir sem sitja í fang­elsum.

„Ég kem úr góðri fjöl­skyldu. Það voru engin áföll sem komu upp. Ég er úr Breið­holti, Selja­hverfi, og gekk í Öldusels­skóla og svo fluttum við reyndar í Ártúns­holtið og ég varð Árbæ­ingur.“

Hann seg­ist ungur hafa byrjað að fara í alls konar rekstur. Hann byrj­aði á að reka víd­eó­leigu í Selja­hverfi, auk þess að vera versl­un­ar­stjóri sextán ára gam­all í Selja­kaupum við Kleif­ar­sel.

„Þegar ég var sautján ára var ég með ham­borg­ara­stað niðri í bæ sem hét Heims­borg­ar­inn. Geiri í Gold­finger keypti hann af mér eða okkur sem vorum með hann og breytti honum í stað sem hét Skipp­er­inn,“ segir hann.

Síðan var hann, ásamt öðrum, með mat­væla­fram­leiðslu.

„Við vorum frum­kvöðlar í vegan­réttum, græn­met­is­réttum, bauna­réttum og fleiru. Það er eitt af því sem ég sé mest eftir að hafa hætt með á sínum tíma. Það hefði verið hægt að reka það fyr­ir­tæki áfram og þróa það,“ segir Guð­mundur Ingi.

Guð­mundur Ingi fór rúm­lega tví­tugur, ásamt fleirum, að flytja inn drykki til lands­ins. Það hafi verið fyrstu alkópopp-drykkirnir sem fluttir voru inn til lands­ins. Þá var hann veit­inga­maður á skemmti­staðnum Tunglinu á árunum 1995 til 1997.

„Það var mjög skemmti­legt tíma­bil.“

Hann hefur til dæmis líka verið með örygg­is­þjón­ustu sem sá um næt­ur­vörslu í fyr­ir­tækjum. Síðar rak hann meðal ann­ars veit­inga­húsið Rakang Thai og sport­bar­inn Blástein í Hraunbæ, rétt í þann mund sem Covid-far­ald­ur­inn skall á.

„Ég hef verið svo­lítið í því að byrja upp á nýtt. Ég hef verið með rekstur í Reykja­vík með mis­jöfnum árangri í þrjá­tíu og fimm ár þannig að ég þekki kerfið í borg­inni mjög vel. Þar er margt sem ég myndi vilja laga,“ segir hann.

Hann seg­ist til dæmis vita hvernig starfað sé hjá bygg­ing­ar­full­trúa, heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu og slökkvi­lið­inu.

„Þar eru ferlar sem þarf að taka í gegn og ein­falda.“

Það bara heltók mig strax

Guð­mundur Ingi flutti til Spánar tutt­ugu og fimm ára gam­all.

„Ég hafði verið mikið á ferð og flugi. Það var mik­ill haus­verkur að vera með rekstur á Íslandi og mig dreymdi um að vera með ein­hvern lít­inn bar á Spáni þar sem væri bara einn pen­inga­kassi. En þetta tók smá dýfu þar. Ég var þar reyndar í þrjú ár og með rekstur en þarna fór ég í ruglið.“

Guð­mundur Ingi rak veit­inga­stað á Benidorm og þekkti mann og annan.

„Þarna fór ég í neyslu á vímu­efnum. Ég myndi segja að það hafi verið vegna félags­legs þrýst­ings. Þarna virt­ist þetta ein­hvern veg­inn svo eðli­legt.“

Fyrst var það kókaín.

„Það bara heltók mig strax. Mér fannst ég ná að opna mig miklu meira og vera ein­hvern veg­inn meira lif­andi og fær í að spjalla. Mér fannst þetta stór­kost­legt og átti erfitt með að hætta neysl­unni,“ segir hann.

Síðan hafi þetta fljótt tekið dýfu. Hann varð háður efn­inu og vakn­aði varla án þess að fá sér kókaín.

„Þetta var mjög slæmt ástand þannig að fljót­lega var allt á nið­ur­leið hjá mér pen­inga­lega séð og í rekstr­inum. Ég missti í raun­inni allt út úr hönd­unum á mér á mjög stuttum tíma.“

Hann segir að aldrei nokkurn tím­ann hafi honum liðið vel í neysl­unni, nema kannski fyrsta kvöldið. Hann naut ekki vímunnar en lík­am­inn kall­aði á hana.

„Ég hélt mér liði vel og mér leið kannski vel í tíu mín­útur en svo var þetta leið­in­legt.“

Hugsaði hann aldrei um af hverju hann væri að þessu?

„Jú, algjör­lega. Ég hafði hins vegar ekki trú á sjálfum mér að ég gæti kom­ist út úr þessu. Þetta var ein­hvern veg­inn orðið mitt líf. Þess vegna erum við alltaf að berj­ast fyrir því að fá stuðn­ing fyrir fólk til að efla trúna á sjálfu sér,“ segir hann.

Það þurfi að byggja upp sjálfs­traust og heil­ann til að kom­ast út úr aðstæð­unum.

„Það er það sem þarf að gera. Þegar ég var háður efnum þurfti auð­vitað að fjár­magna neysl­una. Þá fór ég að gera hluti sem á end­anum skil­uðu mér í fang­elsi.“

Mórallinn og menningin svört

Guð­mundur Ingi var í neyslu þegar hann fór inn á Litla-Hraun í fyrra skiptið, en hann hefur tvisvar setið þar inni.

„Fangelsi eru vett­vangur allra vímu­efna, nýrra efna og þró­unar á vímu­efnum. Það er vegna þess að fólk hefur ekk­ert að gera. Fólk er að reyna að breyta hug­ar­á­standi sínu og líðan til að þurfa ekki að hugsa um áföllin,“ segir hann.

Þegar ekk­ert upp­byggi­legt sé í gangi og dóm­arnir, eða fang­els­is­vistin, hafi ekki til­gang sé fólk að reyna að deyfa sig. Þess vegna snú­ist lífið í fang­elsi oft um vímu­efni.

„Þar eru mynduð sam­bönd við aðra á svip­uðu róli. Fólk veit ekki hvað bíður þess þegar það kemur út og það vill halda öllum mögu­leikum opnum. Þetta er svo­lítið þannig.“

Hvernig er þessi heimur innan fang­els­is­ins? Að vera í stein­inum. Grjótinu.

„Ég held að ég geti sagt að þetta sé erf­iður staður að vera á. Mórall­inn og menn­ingin er svört. Það er ekk­ert sem dregur mann áfram, hjálpar manni, styður mann eða er að vinna í málum manns. Þetta er ein­hvers konar veru­leiki þar sem allir dagar eru eins,“ segir hann.

Maður eign­ist ekki mikið af vinum á þessum stöðum.

„Þetta er fyrst og fremst mjög sorg­legt. Maður sér sama fólkið koma inn aftur og aftur jafn­vel þangað til það deyr. Menn eru ekki mikið að þroskast þarna inni til dæmis. Þessu þarf að breyta,“ segir Guð­mundur Ingi.

Þess vegna séu þau svo fók­useruð á að breyta refsi­menn­ing­unni.

„Menn reyna að stytta sér stundir með póker, fara út að æfa eða út að labba, elda saman eða horfa á sjón­varpið. Þannig að það er eitt­hvað reynt. En þetta getur verið mjög erf­iður staður,“ segir hann.

Þarna sé blanda af alls konar fólki. Þar geti verið mjög and­lega veikt fólk og fólk með alls konar rask­anir, og svo komi neyslan inn í það. Þetta geti verið mjög flókið.

„Ég get alla­vega sagt eitt. Þegar maður er búinn að vera þarna í svo­lít­inn tíma getur maður í raun og veru unnið með hvaða stjórn­mála­manni og stjórn­mála­flokki sem er,“ segir Guð­mundur Ingi og hlær.

Maður læri að bera virð­ingu fyrir öllum og skoð­unum allra, láta ekk­ert fara í taug­arnar á sér og hlusta á sjón­ar­mið ann­arra. Það sé góður eig­in­leiki, að hans mati.

„Ég sagði nýlega við ein­hvern að hann hefði gott af því að vera á Litla-Hrauni í tvo, þrjá mán­uði til að læra að umgang­ast annað fólk, bera virð­ingu fyrir skoð­unum ann­arra og láta ekki æsa sig yfir smá­vægi­legum hlutum.“

Hvernig var per­sónu­leik­inn þegar hann sat inni?

„Ég hef alltaf verið frekar jákvæður, rólegur, yfir­veg­aður og með jafn­að­ar­geð. Ég held að það hafi bjargað mér svo­lítið í fang­els­unum að taka aðstæðum með æðru­leysi.“

Var hann góði gæinn?

„Já, ég hef alltaf verið góður. Ég meina, ég kem úr aðstæðum þar sem ekki allt var gott og ég hef tengst mörgum, upp­lifað margt og séð margt. En jú jú, í seinni afplán­un­inni óskaði ég þess að ég hefði breytt um stefnu í fyrri afplán­un­inni,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann seg­ist hafa óskað þess að hann hefði lært meira og farið í skóla. Það hafi hann gert í seinni afplán­un­inni, sem hann nýtti vel með fjar­námi í nokkrum skólum.

„Ég útskrif­að­ist með stúd­ents­próf frá Versl­un­ar­skóla Íslands og fór síðan í BA-nám í spænsku sem ég kláraði reyndar ekki. Eftir það fór ég í BA-nám í félags­ráð­gjöf og kláraði það frá Háskóla Íslands,“ segir Guð­mundur Ingi.

Síðan fór hann í nám í umbreyt­inga­stjórnun með diplómu við Yale-háskóla í Banda­ríkj­unum, þaðan sem hann útskrif­að­ist í fyrra. Eftir það fór hann í diplóma­nám í opin­berri stjórn­sýslu við Háskóla Íslands og kláraði það í vor.

„Núna er ég í masters­námi í for­ystu og stjórnun við Háskól­ann á Bifröst og á bara masters­rit­gerð­ina eftir. Búinn með öll fögin. Svo hef ég að auki tekið nám­skeið í hinu og þessu sem snýr mest allt að jafn­inga­stuðn­ingi og and­legri heilsu og leið­toga­stjórnun.“

Ástin bjargaði mér

Guð­mundur Ingi var frels­inu feg­inn eftir að hafa setið inni á Litla-Hrauni. Hann fór ekki í með­ferð því ástin bjarg­aði honum. Hann kynnt­ist eig­in­manni sínum áður en hann var settur inn í seinna skiptið og hætti þá í neyslu hans vegna. Hann hefur verið edrú síðan. Ástin í lífi Guð­mundar Inga er frá Rúmeníu, en þeir kynnt­ust og bjuggu fyrst saman á Spáni.

„Í raun og veru fékk ég ekki að bjóða honum út nema að vera edrú. Það var það sem hjálp­aði mér. Það er alveg ljóst að það var ástin sem bjarg­aði mér í raun og veru og breytti minni stefnu,“ segir hann.

Ástin hafi verið klett­ur­inn í bata hans.

„Ég væri ekki að gera það sem ég er að gera í dag, alveg sama hvað það er, ef ekki væri fyrir Tito eins og hann er kall­aður. Það er alveg ljóst. Ég og sam­fé­lagið eigum honum það að þakka.“

Þeir hafa verið saman í átján ár og giftir í þrettán ár.

„Það sem dreif mig líka áfram var að ég sá hvað ég var að gera ást­vini mínum með neysl­unni. Það getur tekið menn tíma að átta sig á aðstæðum sínum en ég rank­aði við mér fyrir alvöru í seinna skiptið sem ég sat inni,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann fann að hann vildi sanna sig, byggja upp traust aftur og ná ein­hverjum árangri. Kannski hafi hann reynt of mikið með enda­lausri vinnu, en vinnan gefi honum einnig mikið.

Alltaf kallaður „fanginn“ eða „formaður fanga“

Guð­mundur Ingi var á góðri leið með að eyði­leggja líf sitt til lang­frama með neysl­unni og smygli.

„Algjör­lega. Maður hefur misst af mörgu upp­byggi­legu. Ég missti tengsl við bestu vini mína sem áttu eðli­legt líf, kvænt­ust og eign­uð­ust börn og héldu hóp­inn. Ég var allt í einu ekki hluti af hópnum,“ segir hann.

Það séu ekki margir af æsku­fé­lögum hans sem bjóði honum í brúð­kaup, skírn­ar­veislur eða ferm­ing­ar­veislur. Það taki tíma að vinna aftur upp vin­áttu og traust og hann sé að vinna í því þessi miss­erin.

„Maður datt ein­hvern veg­inn út og var stöðugt minna og minna í sam­bandi við fólk og það er sorg­legt. Auðvitað hef ég eign­ast nýja vini og er í sam­bandi við margt fólk en það kemur ekk­ert í stað æsku­vina,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann þurfti að læra margt upp á nýtt þegar hann kom út. Hann sé enn hálf­tækni­heftur og það hái honum aðeins. Hann hugsi þó lítið um það núna.

Guð­mundur Ingi við­ur­kennir að ein­hverjir hafi snúið við honum baki þegar hann fór í fang­elsi.

„Það er bara eðli­legt held ég en það bara ger­ist. Fólk er alls konar.“

Hann segir það áfall að vera hand­tek­inn, áfall að fá dóm og áfall að fara í fang­elsi. Í fang­elsi upp­lifi maður síðan áföll dag­lega.

„Það er líka visst áfall þegar maður kemur út og lítið eða ekk­ert stuðn­ings­net tekur við. Það er áfall að vera hafnað og fólk upp­lifir mikið mót­læti. Það ráða ekki allir við það,“ segir hann.

Guð­mundur Ingi seg­ist vera með gott bak­land en ef fólk hafi lítið eða ekk­ert bak­land eigi það erfitt með að finna til­gang með líf­inu.

Hugsaði hann ekk­ert um ungt fólk sem gæti eyði­lagt líf sitt á því að neyta fíkni­efn­anna sem hann smyglaði til lands­ins?

„Fólk sem er í neyslu eða er að standa í þessu hugsar ekki út í það. Þetta nær ekki inn.“

Hann var orð­inn edrú þegar hann fór að smygla aftur.

„Þá var það pen­ing­ur­inn sem tók yfir hugs­anir mínar. Það getur reynst erf­ið­ari fíkn heldur en hin. Þetta var erf­ið­ara vegna þess að ég var orð­inn vanur ákveðnu líf­erni og það getur verið hættu­legt. Það getur tekið langan tíma að kom­ast að því,“ segir hann.

Í dag hugsi hann mikið um af hverju hann hafi gert þetta. Hann sé alltaf að hugsa um það. Þetta sé eitt­hvað sem gleym­ist aldrei og sé í höfð­inu á honum alla ævi. Hann þurfi að lifa með þessu og viti í raun ekki hvaða áhrif þetta hafði.

„Ég fer reglu­lega inn í skóla­stofn­anir og held fyr­ir­lestra, bæði í fram­halds­skólum og háskólum, til dæmis fyrir nem­endur í félags­ráð­gjöf og hjúkr­un­ar­fræði, jafn­vel í lög­reglu­fræðum sem og fyrir verð­andi fanga­verði,“ segir hann.

Það sé mik­il­vægt að koma þess­ari reynslu áfram til að leggja sitt af mörkum við að laga ástandið.

„Eitt af því allra mik­il­væg­asta er að fólk fari að átta sig á því hvernig á að taka á þessum erf­iðu málum, hvernig á að tala við fólk í þess­ari stöðu og mæta því á þeim stað sem það er,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann segir að bæta verði hug­myndum skaða­minnk­unar inn í allt með­ferð­ar­ferli. Hann hafi skrifað BA-rit­gerð sína í félags­ráð­gjöf um skaða­minnkun. Rauði þráð­ur­inn í henni sé fræðsla og skiln­ingur.

„Það vantar svo­lítið upp á þann hluta með­ferð­ar­úr­ræða hjá okkur hér á Íslandi.“

Hvað lærði Guð­mundur Ingi af reynsl­unni?

Guð­mundur hugsar málið í þögn.

„Ég lærði að það geta allir lent í ein­hverju hvenær sem er og það ger­ist dag­lega. Fólk hugsar ekki alltaf út í afleið­ingar gjörða sinna. Þess vegna verður vel­ferð­ar­kerfið okkar að virka betur en það gerir í dag,“ segir hann.

Hann telur sig líka hafa lært þol­in­mæði og að elska, sem hann kunni ekki áður. Kannski hafi það verið ástæðan fyrir því að hann hafði ekki ást á sjálfum sér.

„Kannski er ástæðan fyrir því að ég er að vinna í þessum málum að ég vil reyna að bæta fyrir það sem ég gerði rangt. Það er líka hluti af þessu,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann segir að hluti af þessu sé að hann sé pott­þétt með ein­hverjar grein­ingar sem hann hafi ekki fengið, til dæmis ADHD. Hann hafi til dæmis verið með þús­und hluti á heil­anum allan tím­ann sem við­talið hafi staðið yfir.

„Mér finnst hins vegar ekki taka því að fara í grein­ingu og ég vil heldur ekki vera á neinum lyfjum. Þessi ofvirkni hefur líka á vissan hátt hjálpað mér. Ég get feng­ist við milljón hluti í einu,“ segir hann.

Hann sé til að mynda í hund­rað pró­sent vinnu hjá Afstöðu, tutt­ugu pró­senta starfi hjá Land­spít­al­anum og í masters­námi á Bifröst. Þá hafi hann verið í diplóma­námi í opin­berri stjórn­sýslu og námi við Yale á sama tíma.

„Námið í Yale er reyndar búið og ég kláraði diplóma­námið í opin­berri stjórn­sýslu í vor. En þá er ég líka kom­inn í fram­boð sem tekur tölu­verðan tíma á hverjum sól­ar­hring. Að auki sæki ég ráð­stefnur hér og þar. Þetta er allt að ger­ast á sama tíma.“

Hvenær sefur mað­ur­inn?

„Ég fer að sofa eitt til tvö á nótt­unni og er vakn­aður átta.“

Hann er breyttur maður. Hefur lært af mis­tökum sínum og vill hjálpa öðrum sem eru í dag í svip­uðum sporum og hann var áður fyrr.

Ljót­leiki heims­ins er alls konar.

„Það er margt sem ger­ist í þessum heimi og það fylgir manni alltaf.“

Hann vill hjálpa og þetta ljóta ýtir honum út í það. Og svo vill hann bæta fyrir syndir sínar.

„Ég held ég verði alltaf kall­aður „fang­inn“ eða eitt­hvað slíkt. Ef ég fer um helgar í mið­bæ­inn er ég stundum spurður hvort ég sé ekki „fang­inn“ eða for­maður fanga. Það er allt í lagi. Það skiptir mig engu máli,“ segir Guð­mundur Ingi.

Hann er ekki feim­inn við að ræða for­tíð sína.

„Mín for­tíð hefur aldrei verið neitt leynd­ar­mál og hún er öllum sem vilja kunn. Ég við­ur­kenni það sem ég hef gert. Ég hef iðr­ast, ég hef kannski ekki iðr­ast í fjöl­miðlum en hver og einn iðr­ast á sinn hátt,“ segir hann.

Þetta hafi ekki verið leynd­ar­mál.

„Í dag tel ég for­tíð mína vera hluta af mínum helsta styrk­leika.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum