Alþjóðlegur minningardagur um Nakba verður haldinn hátíðlegur 15. maí en dagurinn markar upphaf þeirrar atburðarásar sem Palestínumenn nefna Nakba, eða hörmungarnar, árið 1948. Af því tilefni verður efnt til samstöðugöngu upp Esjuna á morgun, laugardag þar sem þátttakendur hyggjast minnast fórnarlamba átaka síðustu áratuga og sýna palestínsku þjóðinni stuðning.
Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að dagurinn sé tileinkaður minningu þeirra sem hafa látist í átökum frá stofnun Ísraelsríkis og sérstaklega þeirra sem fallið hafa frá því að þjóðarmorðið á Gaza hófst í október 2023. Þar kemur einnig fram að aðstæður á Gaza séu enn afar alvarlegar þrátt fyrir vopnahlé að nafninu til.
Sérstök athygli er vakin á framtaki fjallgöngumannsins Mostafa Salameh sem er á leið á topp Mount Everest til að vekja athygli á stöðu Palestínumanna og safna fé til kaupa á lífsnauðsynjum fyrir íbúa Gaza.
Samstöðugangan fer fram laugardaginn 16. maí klukkan 10 og verður lagt af stað frá ysta bílastæðinu við rætur Esjan. Gengið verður upp að Steini og er fólki frjálst að fara á sínum eigin hraða. Það er félagið Ísland-Palestína sem stendur fyrir viðburðinum.































Athugasemdir