Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

„Er það virki­lega vilji Loga Ein­ars­sonar að við séum með slakasta þjóð­bókar- og háskóla­bóka­safn í Evrópu?“

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Kamilla Ein­ars­dóttir Kamilla er ósátt við ákvörðun Loga Ein­ars­sonar Mynd: Instagram

Kamilla Ein­ars­dóttir rit­höf­undur lýsir yfir miklum áhyggjum af fyr­ir­hug­uðum breyt­ingum á þjón­ustu í Lands­bóka­safni Íslands – Háskóla­bóka­safni, þar sem meðal ann­ars stendur til að draga úr við­veru bóka­safnsvarða og fela örygg­is­vörðum hluta af þeim verk­efnum sem þeir hafa sinnt.

Í Facebook-færslu sem hún birti í kjöl­far fréttar mbl.is segir Kamilla að málið hafi ekki fengið mikla athygli, þrátt fyrir að hún telji það mjög alvar­legt.

Að hennar sögn hafa reglu­legir not­endur safns­ins orðið varir við sífelldan nið­ur­skurð á þjón­ustu und­an­farin ár. Hún bendir meðal ann­ars á að opn­un­ar­tími Íslands­safns á fyrstu hæð hafi verið styttur, laug­ar­dagsopnun dregin saman og sum­ar­lok­anir teknar upp.

„Einu sinni var opið alla virka daga allt sum­arið, enda nýttu margir þann árs­tíma í fræða­störf, en nú er alveg lokað í tvær vikur á ári,“ skrifar hún.

Kamilla nefnir einnig að kaffi­tería sé ekki lengur starf­rækt á safn­inu, prent­urum hafi fækkað og aðeins ein ljós­rit­un­ar­vél sé eftir.

Segir þjónustuna skerðast enn frekar

Samkvæmt upp­lýs­ingum sem hún vísar til mun safnið fram­vegis ekki opna fyrr en klukkan níu á morgn­ana. Þá verði tak­mörkuð þjón­usta bóka­safnsvarða eftir klukkan 17 á virkum dögum og sums staðar engin þjón­usta á ákveðnum hæðum safns­ins.

Kamilla segir að breyt­ing­arnar séu sagðar skila sparn­aði, en bendir á að bóka­safnsverðir séu meðal lægst laun­uðu starfs­manna stofn­un­ar­innar.

„Bóka­verðir eru reyndar lang­lægst laun­uðu starfs­menn safns­ins en með því að fækka þeim umtals­vert og lækka laun þeirra kvenna sem eftir eru með því að fækka vöktum þeirra þá næst sjálf­sagt fram ein­hver sparn­aður,“ skrifar hún.

Beinir spjótum að Loga Einarssyni

Í færsl­unni veltir Kamilla fyrir sér hvort stjórn­völd telji þessa þróun ásætt­an­lega.

Hún nefnir sér­stak­lega Logi Ein­ars­son háskóla­ráð­herra og spyr hvort það sé raun­veru­lega mark­mið hans að Ísland verði með eitt lakasta þjóð- og háskóla­bóka­safn Evrópu.

„Finnst honum það sæma þjóð sem gefur sig út fyrir að vera bók­mennta­þjóð?“ spyr hún.

Jafn­framt veltir hún því upp hvort nem­endur við Háskóli Íslands sætti sig við að þjón­usta við þá sé skert á sama tíma og skrá­setn­ing­ar­gjöld hækki.

Kamilla seg­ist eiga erfitt með að trúa því að Logi, sem sé sjálfur bók­mennta­maður, telji þró­un­ina ásætt­an­lega. Þá seg­ist hún skilja vel áhyggjur bæði starfs­fólks og not­enda safns­ins.

Að lokum nefnir hún einnig að starfs­menn og not­endur Kvik­mynda­safn Íslands hafi áhyggjur af því að þeirra starf­semi fari undir sömu stjórn­sýslu og hún telur bera ábyrgð á nið­ur­skurð­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum