Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ólíkt tekið á utanvegaakstri á Íslandi og í Frakklandi

„Áhuga­vert að skoða hvernig þetta er í Frakk­landi“

Ólíkt tekið á utanvegaakstri á Íslandi og í Frakklandi

Frönsk umhverf­is­yf­ir­völd og lög­regla hafa gripið til aðgerða gegn erlendum ferða­mönnum sem staðnir voru að stór­felldum utan­vega­akstri á sér­út­búnum jeppum í frönsku ölp­unum.

Ólíkt því sem tíðkast á Íslandi heim­il­aði hér­aðs­sak­sókn­ari taf­ar­lausa upp­töku öku­tækj­anna til að tryggja að sak­born­ingar gætu ekki flúið land undan lög­sókn né valdið frek­ari nátt­úru­spjöllum. Málið komst upp eftir að göngu­fólk á svæð­inu náði mynd­böndum og ljós­myndum af utan­vega­akstr­inum. Í kjöl­farið hófst sam­starf lög­reglu og umhverf­is­eft­ir­lits sem hafði uppi á öku­mönn­unum.

Kristín Helga Gunn­ars­dóttir lætur sig mál utan­vegaaskt­urs Frakk­anna varða í opin­berri færslu og segir: „Aðeins meira af utan­vega­akstr­inum. Það er áhuga­vert að skoða hvernig þetta er í Frakk­landi, heima­landi dólganna sem fá áfram að njóta og þjóta um íslenska hálendið í bjartri sum­arnótt­inni.“

Ökutækin seld á uppboði

Nýlega kom upp svipað mál í frönsku ölp­unum en aug­ljóst að átt er við þessi mál á mjög ólíkan hátt hér og í Frakk­landi.

„Tveir ferða­menn eru góm­aði í utan­vega­akstri í frönsku ölp­unum á sér­út­búnum jeppum. Göngu­fólk nær myndum af athæf­inu. Umhverf­is­eft­ir­litið hefur ásamt lög­reglu uppá del­unum. Hér­aðs­sak­sókn­ari heim­ilar þegar í stað upp­töku öku­tækj­anna, meðal ann­ars til að koma í veg fyrir frek­ari skemmdir og svo flótta undan lög­sókn. Báðir öku­menn greiða strax 3000 evrur sam­an­lagt í sér­lega lög­reglu­sekt, en auk þess og aðal­lega greiða þeir svo mörg þús­und evrur í bætur beint til þjóð­garðs­ins, meðal ann­ars til að standa straum af lag­fær­ingum. Ökutækin eru í vörslu lög­reglu mán­uðum saman. Og það er allt eins lík­legt að þeir fái aldrei bíl­ana til baka. Í mörgum til­fellum þar sem dæmd er var­an­leg upp­taka öku­tækis í einka­eigu í Frakk­landi (confiscation déf­ini­tive) sem við­bót­ar­refs­ing, fá eig­end­urnir bíl­ana ekki aftur. Þegar dóm­ari stað­festir var­an­lega upp­töku ger­ist annað tveggja: Bíllinn er seldur á upp­boði: Franska ríkið (í gegnum sér­staka eigna­stofnun, Service des Domaines) tekur bíl­inn og selur hann á opin­beru upp­boði. Allur ágóð­inn rennur beint í rík­is­sjóð eða til umhverf­is­sjóða til að fjár­magna við­gerðir á nátt­úru­spjöllum. Eða þá að bíl­arnir fara í eyð­ingu, ef þeir eru ólög­lega útbúnir. Svo eru vörslu­gjöld lög­reglu há og tikka hvern dag sem öku­tækin eru í geymslu hjá hinu opin­bera. Já, já, svona er þetta í Frans. Þeir eru að reyna að standa vörð um nátt­úru­leg svæði eða það sem er eftir. Auk þess er bundið í lög hjá frökkum að ekki þarf skilti til að sýna lok­anir eða boð og bönn í villtri nátt­úru. Utan­vega­akstur er ein­fald­lega bann­aður alltaf.“

Eru íslensk stjórn­völd ekki að standa sig þegar kemur að nátt­úru- og umhverf­is­vernd?

Kristín heldur áfram og segir stöð­una hrein­lega vera eins og í villta vestr­inu.

„Ótti land­ans við reglu­verk hefur komið okkur í þá stöðu að reka hér ein­hvers­konar Villta-Vestur, auk þess sem við getum ekki einu sinni komið okkur saman um svo sjálf­sagt fyr­ir­bæri sem alvöru hálendis þjóð­garð hér í Galapa­gos norð­urs­ins. Það væri hið eðli­lega reglu­verk utan um okkar mestu dýr­mæti. Að lokum legg ég til að við end­ur­heimtum sjálf­stætt umhverfis og nátt­úru­VERNDAR ráðu­neyti með ráð­herra í fullu starfi fyrir nátt­úr­una.“

Lög gegn utanvegaakstri í Frakklandi

Strangt reglu­verk Frakka eiga sér sterka stoð í frönskum lögum. Hér eru dæmi um við­ur­lög þar í landi:

  • Lög gegn utan­vega­akstri: Í Frakk­landi hafa gilt ströng lög frá árinu 1991 (Loi Lalonde) sem banna alfarið akstur vél­knú­inna öku­tækja utan mark­aðra vega og slóða í villtri nátt­úru. Þar þarf engin skilti til; reglan er sú að sé slóð­inn ekki aug­ljós­lega opinn almennri umferð, þá er akstur bann­aður.
  • Taf­ar­laust hald og geymslu­gjöld: Frönsk lög­regla og umhverf­is­vernd­ar­sinnar hafa ítrekað stöðvað hópa á jeppum og fjór­hjólum á vernd­uðum svæðum (t.d. í Ölpunum) þar sem beitt er taf­ar­lausum sektum, bílar hlaðnir upp á pall­bíla og hald­lagðir, og eig­endur rukk­aðir um há geymslu­gjöld á dag.
  • Varanleg eigna­upp­taka (Confiscation déf­ini­tive): Samkvæmt frönskum hegn­ing­ar­lögum hafa dóm­arar ríkar heim­ildir til að dæma tæki og tól sem notuð eru við alvar­leg umhverf­is­brot til var­an­legrar upp­töku. Rík­is­stofn­unin Service des Domaines sér þá um að selja tækin á opin­beru upp­boði eða fargar þeim.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil