Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ferðamennirnir sem keyrðu utanvegar skildu óvart eftir sig dróna með upplýsingum

„Félaginn skilar franska ferða­mann­inum dróna sínum og fær rauð­víns­flösku í þakk­ar­skyni.“

Ferðamennirnir sem keyrðu utanvegar skildu óvart eftir sig dróna með upplýsingum

Franskir ferða­menn, sem sektaðir voru fyrir stór­felldan utan­vega­akstur um helg­ina, höfðu verið gripnir við iðj­una áður og fengið til­tal land­varða en létu sér ekki segj­ast.

Dróni sem einn ferða­mann­anna hafði gleymt á svæð­inu fannst með nafni og síma­núm­eri.

Hvaða tæki var þetta sem ferðamaðurinn skildi eftir, hverjir fundu það og hvar fannst það?

Blaða­maður heyrði í Karli Ing­ólfs­syni sem til­heyrir svoköll­uðu hálend­is­sam­félgi. Félagi hans fann dróna í eigu eins þess­ara frönsku ferða­manna. Þá var félagi hans að keyra veg­inn inn að lón­inu 16. júní þegar hann sér dróna sem liggur innst inni á veg­inum. Á drón­anum var nafn og síma­númer eig­and­ans. Félaginn ákveður að heyra í ferða­mann­inum sem verður til þess að þeir ákveða að mæla sér mót í Vík í Mýrdal. Félaginn skilar franska ferða­mann­inum dróna sínum og fær rauð­víns­flösku í þakk­ar­skyni. Nokkru síðar fara að birt­ast fréttir af ólög­legum hálend­isakstri og myndir af utan­vega­akstr­inum inni á sam­fé­lags­miðl­unum. Karl ákveður að sjá hver það hafi verið sem hafi átt þennan dróna og kemst fljót­lega að því að það passar við þennan utan­vega­akstur.

Karl seg­ist hafa verið virki­lega ósáttur við við­brögð lög­reglu sem hann segir að hafi verið engin. Myndir af mönn­unum hafi verið sendar til lög­reglu en hann segir að ekk­ert hafi verið gert í mál­inu lengi vel.

Utanvegaaksturinn

Fyrst var Luc og félagi stað­inn að verki á Mýr­dals­sandi inn undir Kötlu­jökli.

Þegar þeir voru staðnir að verki á Emstrum á Syðri Fjalla­baks­leið voru þeir búnir að keyra alla leið inn að Álfta­vatns­hálsi en þar var það bratt að þeir höfðu ekki treyst sér til að fara fram hjá skafl­inum sem var í sneið­ingum. Fyrstu ummerki um utan­vega­akstur voru við Ein­hyrn­ing og náðu allt inn að Álfta­vatns­hálsi.

Sekt fyrir utanvegaakstur á Íslandi

Í sam­tali við lög­regl­una á Suð­ur­landi hefur 7–14 málum verið lokið með greiðslu þar sem sektin fer hæst í 1.000.000 kr.

Luc Haudeville, einn þess­ara frönsku manna, er þekktur fyrir úti­vist og mót­or­hjóla­ferðir og skráir þær gjarnan inn á Wikiloc. Þar deilir hann GPS-ferlum af ferða­lögum sínum, kortum og myndum þar á meðal sínum ferðum um hálendi Íslands. Á Wikiloc hefur hann skráð hversu marga km hann náði að spanna á ferð sinni um Ísland undir heit­inu J5-Islande.

GPS-leið­irnar sem Luc Haudeville hefur hannað fyrir Ísland eru sér­stak­lega gerðar fyrir utan­vega­akstur og mót­or­hjóla­ferðir (Off-Road / Trail).

Kort af ferðum mannsins inn á Wikiloc

Í kort­unum er hægt að lesa nokkuð nákvæmar hæð­ar­línur og kort. Hann skiptir ferða­lögum sínum gjarnan niður í dag­leiðir þar sem ætla má að „J“ standi fyrir Jour eða dagur á frönsku. Helstu ein­kenni og svæði á Íslands­leið­unum hans á Wikiloc telja þús­undir kíló­metra þar sem hann hannar ferð­irnar sem svo virð­ist fyrir öflug mót­or­hjól eða fjór­hjóla­drifna jeppa sem þola grófa slóða eins og hægt er að finna víðs­vegar á Suð­ur­landi og í Vík.

Margir af hans vin­sæl­ustu punktum og dag­leiðum liggja um nágrenni Víkur í Mýrdal, þar sem hann keyrir um svarta sanda og slóða á milli jökla. Þetta eru hálendis­vegir (F-vegir) sem ein­blína mikið á mið­há­lendið.

Hann ferð­ast um helstu hálend­is­leið­irnar eins og slóð­ana í átt að Land­manna­laugum, um Emstrur og Fjalla­baks­leið syðri, Emstru­leið og Rang­ár­valla­veg, þar sem hann leggur áherslu á vissar nátt­úruperlur en sam­kvæmt korti Vega­gerð­ar­innar eiga þessir vegir að vera lok­aðir.

Hann stoppar gjarnan og skráir hnit við form­fagra staði eins og gljúfur, til dæmis í nágrenni við Sig­öldugljúfur og ýmsa fáfarna fossa. Einnig er hægt að sjá kort af utan­vega­akstri á Aust­ur­landi um Þór­dals­heið­ar­veg vestan Áreyja sem einnig er lok­aður sam­kvæmt Vega­gerð­inni en nokkuð nákvæmt kort, hæð­ar­línur á gps-skránum hans, er hægt að finna inn á Wikiloc.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil