Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristrún heimsótti Samherja

Inn­viða­upp­bygg­ing grund­völlur fyrir starf­semi gagna­vers­ins, sem drifin er áfram af auk­inni eft­ir­spurn á alþjóða­vett­vangi

Kristrún heimsótti Samherja
Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands í tveggja daga kynn­ing­ar­ferð um Reykja­nesskaga og Vest­manna­eyjar Mynd: Stjórnarráðið

Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, fór nýverið í tveggja daga kynn­ing­ar­ferð um Reykja­nesskaga og Vest­manna­eyjar til að kynna sér fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu í íslensku atvinnu­lífi. Meðal þeirra verk­efna sem skoðuð voru eru stór­tæk áform Samherja um land­eldi á laxi á Reykja­nesi. Heim­sóknin á sér stað á sama tíma og emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara vinnur að loka­hnykk rann­sóknar á hendur stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins vegna meintra mútu­greiðslna í Namibíu.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Ólafi Þór Hauks­syni, hér­aðs­sak­sókn­ara, sem Heim­ildin tók saman er nú beðið úrskurðar í ágrein­ings­máli fyrir hér­aðs­dómi áður en tekin verður end­an­leg ákvörðun um hvort ákært verður í Sam­herj­a­mál­inu. Úrskurð­ar­ins er að vænta fljót­lega, en fjöldi kæru­mála og rétt­ar­úr­ræða sak­born­inga hefur tafið ákvörðun ákæru­valds­ins.

Grænn iðnaður og gervigreind á Suðurnesjum

Í máli for­sæt­is­ráð­herra kom fram að vöxtur útflutn­ings­tekna und­an­farin miss­eri megi að miklu leyti rekja til land­eld­is­fyr­ir­tækja og gagna­vera. Hún lagði ríka áherslu á mik­il­vægi þess að stjórn­völd eigi í virku sam­tali við for­svars­fólk í fram­varð­ar­sveit atvinnu­lífs­ins til þess að skilja betur þær áskor­anir og tæki­færi sem við þeim blasa.

Upphaf ferð­ar­innar var markað með heim­sókn til gagna­vers­ins Verne Global á Ásbrú. Fyr­ir­tækið hefur nýverið tekið í notkun nýtt spennu­virki sem eykur afhend­ingar­ör­yggi og raf­orku­getu svæð­is­ins. Þessi inn­viða­upp­bygg­ing er sögð grund­völlur fyr­ir­hug­aðrar stækk­unar á starf­semi gagna­vers­ins, sem drifin er áfram af auk­inni eft­ir­spurn á alþjóða­vett­vangi vegna þró­unar í gervi­greind­ar­iðn­aði.

Þá kynnti þró­un­ar­fé­lagið Kadeco nýja þró­un­ar­á­ætlun fyrir flug­vall­ar­svæðið á Ásbrú, þar sem gert er ráð fyrir nýjum upp­bygg­ing­ar­reitum fyrir bæði íbúðar- og atvinnu­hús­næði. Í Helguvík og Bergvík hafa fyrri áform um álvers­rekstur vikið fyrir metn­að­ar­fullum áætl­unum um græna iðn­garða. Þar er stefnt að upp­bygg­ingu fjöl­breytts hátækni­iðn­aðar, en jap­anskir frum­kvöðlar hafa þegar hafið þar hátækni­ræktun á hágæða jarð­ar­berjum.

Á sviði mat­væla­fram­leiðslu skoð­aði for­sæt­is­ráð­herra fram­kvæmdir við Eld­is­garð Samherja við Reykja­nes­virkjun. Verk­efnið byggir á hringrás­ar­hugsun þar sem nýttur verður jarð­sjór og ylsjó sem er affall frá kæl­ingu virkj­un­ar­innar til land­eldis á laxi. Fram­kvæmdir við þessa tækni­væddu eld­is­stöð hófust haustið 2024 og er áætlað að fyrsti áfangi verði tek­inn í notkun á fyrri hluta næsta árs.

Fjárfesting og samgönguáform í Vestmannaeyjum

Seinni hluti kynn­ing­ar­ferð­ar­innar var helg­aður Vest­manna­eyjum, þar sem land­eld­is­fyr­ir­tækið Laxey er í miklum vexti. Fyr­ir­tækið rekur seiða­eld­is­stöð í Frið­ar­höfn og stóra land­eld­is­stöð í Við­laga­fjöru, en þar hófust fram­kvæmdir í árs­byrjun 2023. Árleg fram­leiðsla stöðv­ar­innar nemur nu þegar um 5.000 tonnum af laxi. Skref í átt að frek­ari stór­sókn voru stígin nýverið þegar Laxey lauk 6,7 millj­arða króna hluta­fjár­út­boði og frá­gangi sam­banka­láns, sem tryggir fjár­mögnun til að auka fram­leiðslu­get­una í 17 þús­und tonn á ári.

Auk atvinnu­upp­bygg­ing­ar­innar voru stór inn­viða­verk­efni til umræðu í Eyjum. For­sæt­is­ráð­herra hitti full­trúa Eyja­ganga og kynnti sér stöðu til­rauna­bor­ana fyrir mögu­legum jarð­göngum á milli lands og Eyja. Þá kynntu Iris Róberts­dóttir bæj­ar­stjóri Vest­mann­eyja fyrir bæj­ar­stjórn og hafn­ar­stjóra áætl­anir um bygg­ingu nýs við­legu­kants norðan megin við Eiði, sem ætlað er að stór­bæta aðstöðu til mót­töku stór­skipa og efla sam­keppn­is­hæfni hafn­ar­innar.

For­sæt­is­ráð­herra segir að miklar vænt­ingar séu bundnar við að þessi verk­efni sem eiga að geta skilað miklum útflutn­ings­tekjum og verð­mætum í þjóð­ar­búið á kom­andi árum.

Óvissa um saksókn og stöðu Samherjamálsins

Á sama tíma og Samherji vinnur að upp­bygg­ingu eld­is­garðs­ins á Reykja­nesi er beðið nið­ur­stöðu í ágrein­ings­máli fyrir hér­aðs­dómi í hinu svo­kall­aða Sam­herj­a­máli. Úrskurðar í því máli er að vænta fljót­lega. Þetta kemur fram í svörum Ólafs Þórs Hauks­sonar hér­aðs­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar en ýmis kæru­mál hafa tafið það að emb­ættið taki ákvörðun um ákæru í mál­inu.

Greint var frá því fyrir rétt tæpu ári, 2. júlí 2025, að rann­sókn emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­inu væri lokið. Málið varðar meintar mútu­greiðslur Samherja til hátt settra emb­ætt­is­manna í Namibíu til að öðl­ast fisk­veiði­heim­ildir í land­inu. Hagn­að­ur­inn var tek­inn út í gegnum flókið net félaga víða um heim sem vakti upp spurn­ingar um skattaund­an­skot. Í vetur var greint frá því að rann­sak­endur í mál­inu teldu að meintar mútu­greiðslur hafi verið nær tvö­falt hærri en upp­haf­lega var talið, eða hátt í 3 millj­arðar króna á tíma­bil­inu 2012 til 2019.

Alls hafa níu Íslend­ingar rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu, þar á meðal Þor­steinn Már Bald­vins­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja, en hann hætti sem for­stjóri síð­asta sumar og Baldvin Þor­steins­son, sonur hans, sem tók við stöðu hans. Bæði Þor­steinn Már og Kristján Vil­helms­son, aðal­eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins, afsöl­uðu sér hlutum sínum í félag­inu til barna sinna árið 2020. Upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu sem steig fram í nóv­em­ber 2019, er einnig á meðal þeirra níu sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings.

Frá því að rann­sókn lauk hafa verið flutt tvö ágrein­ings­mál fyrir dómi. Öðru þeirra lauk með úrskurði Lands­réttar í jan­úar síð­ast­liðnum þar sem kröfu Örnu McClure um dóm­kvaddan mats­mann vegna tölvu­gagna var hafnað. Fljót­lega er að vænta úrskurðar í hér­aðs­dómi hvað varðar seinna málið. Samkvæmt sam­an­tekt RÚV hafa verið höfðuð um tíu mál til að láta reyna á rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­inu, en í mörgum þeirra eru nöfn ekki birt opin­ber­lega. Málið er ennþá til með­ferðar hjá ákæru­vald­inu til að ákveða hvort ákært verður og þá á hendur hverjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum