Húsnæðis- og mannvirkjastofnun vill vekja athygli á að AMO Toys AB innkallar leikfangið Happy Baby Pull String Activity Toy.
Ástæða innköllunarinnar er að smáir hlutar geta losnað af togörmum vörunnar. Ef barn setur slíka smáhluti upp í sig getur það skapað köfnunarhættu.
Neytendur sem eiga vöruna eru beðnir um að hætta notkun hennar þegar í stað og farga vörunni. Gott er að klippa togarma vörunnar til að koma í veg fyrir endurnýtingu. Varan var meðal annars seld hjá KidsCoolshop hérlendis og hugsanlega á öðrum stöðum. Hægt er að hafa samband við söluaðila varðandi skil og endurgreiðslu á vörunni.

Mynd: HMS































Athugasemdir