Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Regnbogabrú í Mosfellsbæ vekur áhyggjur vegna slysahættu

Vega­gerðin vísar ábyrgð­inni á Mos­fellsbæ

Regnbogabrú í Mosfellsbæ vekur áhyggjur vegna slysahættu
Heil­mál­uðu brúna í Mos­fellsbæ Máluð göngu­brú yfir Vest­ur­lands­veg sögð geta orðið fljúg­andi hál Mynd: Facebook/Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir

Íbúar og veg­far­endur í Mos­fellsbæ lýsa yfir þungum áhyggjum af auk­inni slysa­hættu eftir að yfir­borð göngu- og hjóla­brú­ar­innar yfir Vest­ur­lands­veg var heil­málað á dög­unum í regn­boga­lit­unum.

Vinnu­skóli Mos­fells­bæjar sá um mál­un­ar­vinn­una á aust­ari brúnni, sem á að minna á regn­boga­brúna Bifröst. Þótt mörgum þyki fram­takið fal­legt hefur vinnan vakið upp harðar umræður um umferð­ar­ör­yggi inni í hópnum Mosó-bær­inn okkar. Íbúar ótt­ast að yfir­borðið verði fljúg­andi hált í bleytu, en mik­ill fjöldi barna og full­orð­inna hjólar og gengur um brúna dag­lega.

Guðlaug Sjöfn Jóns­dóttir hrós­aði Mos­fellsbæ fyrir vinn­una:

„Flott fram­tak hjá bænum.

Austari brúin yfir Vest­ur­lands­veg­inn orðin að sann­kall­aðri Bifröst“

Óvissa um ábyrgð og leyfi

Ingi­mundur Stef­áns­son fór á stúf­ana en hann var ekki viss um hvort máln­ing­ar­vinnan stæð­ist strangar kröfur um hálku­vörn. Skoðun á ákvarð­ana­ferl­inu leiddi í ljós ákveðna óvissu á milli stofn­ana um hver beri ábyrgð á við­haldi brú­ar­innar.

Í fyrstu seg­ist hann hafa fengið upp­lýs­ingar hjá skipti­borði Mos­fells­bæjar um að Vega­gerðin sæi um umsjón hennar sam­kvæmt vega­lögum. Við eft­ir­grennslan hjá Vega­gerð­inni reynd­ist eng­inn þekkja til máln­ing­ar­vinn­unnar þar á bæ.

Fram kom hjá full­trúum stofn­un­ar­innar að almennt séu fátíð leyfi gefin fyrir slíkri málun, og þá aðeins ef sér­stöku íblönd­un­ar­efni sé bætt í máln­ing­una til þess að minnka hálku.

Eftir nán­ari skoðun Ingi­mundar með lög­fræð­ingi og sam­skipta­stjóra Vega­gerð­ar­innar liggur hins vegar fyrir skýr­ing á mál­inu. Samkvæmt þeim er allur rekstur, við­hald og umsjón göngu­brúa í höndum sveit­ar­fé­lag­anna sjálfra. Mos­fells­bær þurfti því ekki leyfi frá Vega­gerð­inni til þess að mála yfir­borð stígs­ins.

„Varúð, búið ku vera að heil­mála yfir­borð göngu- og hjóla­brúar í Mos­fellsbæ. Skv. lýs­ingum ku Vinnu­skóli Mosó hafa gert það.

Tel þetta geta aukið sleipu og varði umferð­ar­ör­yggi. Ég taldi Vega­gerðin senni­lega hafa umsjón með brúnni m.v. vega­lög starfs­maður Mos­fell­bæjar í gegnum skipti­borð stað­festi umsjón Vega­gerð­ar­innar

Ég ræddi við Pontíus og Pílatus hjá Vega­gerð­inni um málið og átti gott spjall um hættu af máln­ingu fyrir umferð, fátíð leyfi, og aðeins íblönd­un­ar­efni til að minnka sleipu. Enginn hjá Vega­gerð­inni þekkti til máln­ing­ar­vinn­unnar.

Í til­raunum til að rekja ákvarð­ana­ferlið í Mosó var mér tjáð að bæði Vega­gerðin og Mosó hefðu gefið leyfi, en að allir væru á stífum fund­ar­höldum vegna umhverf­isslyss, og reynd­ist minn­ka­út­slepp­ingar, og gætu ekki rætt málið frekar þá stund­ina.

Eftir sam­tal við lög­fræð­ing Vega­gerðin og sam­skipta­stjóra hennar G. Pétur segja þau að allur rekstur og umsjón göngu­brúa séu í höndum sveit­ar­fé­laga sem ekki þurfi leyfi til að mála yfir­borð göngu­stíga.

Ég er ekki sann­færður þar um, á eftir að skoða betur laga­á­byrgð.

Óháð ástæðum fyrir heil­málun þá þarf hjól­reiða­fólk að hafa var­ann á þegar þarna er farið um. Frekari fyr­ir­spurn til Vinnu­skól­ans og Mosó hefur verið send, þekki ekki hvort máln­ing­unni er ætlað að vera þarna til fram­tíðar eða verði þvegin burt í lok ágúst mán­aðar.“

Fleiri hafa lýst yfir miklum áhyggjum með þessa vinnu, þar á meðal Ingi Örn Krist­jáns­son

„Þó þetta sé voða fínt þá verð ég að velta fyrir mér hvort þetta verði ekki fljúg­andi hált í bleytu?

Mikið af börnum og full­orðnum sem hjóla þarna yfir og það langar engum að detta í grind­verkið á þess­ari brú.“

Varúðarorð til vegfarenda

Enn á eftir að skera úr um hvort máln­ing­unni sé ætlað að vera á brúnni til fram­búðar eða hvort hún verði þvegin burt í lok ágúst­mán­aðar. Formleg fyr­ir­spurn þess efnis hefur verið send til Mos­fells­bæjar og Vinnu­skól­ans.

Á meðan óvissa ríkir um ábyrgð og hálku­varnir eru hjól­reiða­fólk og aðrir veg­far­endur hvattir til að sýna ýtr­ustu var­kárni og hafa var­ann á þegar farið er yfir brúna í bleytu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum