Ungur drengur slasaðist lítillega þegar hoppukastali fauk upp í skyndilegri vindhviðu í Neskaupstað á laugardag. Lögreglan á Austurlandi segir mikilvægt að draga lærdóm af atvikinu. Þetta kemur fram í frétt Austurfréttar.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu var veður gott þegar óvænt vindhviða skall á og lyfti upp uppblásna leiktækinu. Drengurinn var inni í kastalanum þegar hann fauk og var fluttur á sjúkrahúsið í Neskaupstað. Meiðsli hans reyndust þó minniháttar.
Lögreglan rannsakar nú málið og hyggst í framhaldinu ítreka við skipuleggjendur bæjar- og útihátíða mikilvægi þess að hoppukastalar og önnur uppblásin leiktæki séu tryggilega fest niður.































Athugasemdir