Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mæðgur grunaðar um fjöldamorð og sjálfsvíg

Skipu­lögðu morð á fjórum börnum á meðan fað­ir­inn beið eftir mynd­sím­tali

Mæðgur grunaðar um fjöldamorð og sjálfsvíg
Sara Mayers ásamt fjórum börnum sínum Lögregla upp­lýsir um skelfi­legt morð- og sjálfs­vígs­sam­særi mæðgna Mynd: Facebook

Lög­reglu­yf­ir­völd til­kynntu að mæðgur í norð­ur­hluta New York-ríkis hafi myrt fjögur börn sín áður en þær sviptu sig lífi. Í kjöl­far nýrra upp­lýs­inga frá lög­reglu hefur faðir barn­anna opin­berað hinstu texta­skila­boðin sem hann fékk frá fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, en þau sýna hvernig hún nýtti maga­pest barn­anna sem afsökun til þess að fresta mynd­sím­tali á meðan eitr­unin stóð yfir.

Fórn­ar­lömbin voru systk­inin Harper (13 ára), Hudson (11 ára) og hinir tíu ára gömlu tví­burar Gavin og Gracelynn. Þau fund­ust látin á heim­ili sínu ásamt móður sinni, Sarah Myers (44 ára), og ömmu, Amy Steadman (64 ára). For­eldrar barn­anna stóðu í harðri for­ræð­is­deilu og áttu börnin að fara í sína fyrstu sum­ar­heim­sókn til föð­ur­ins, Brady Harmon, í Utah síðan árið 2019.

Skipulögðu eitrunina í smáatriðum

Rannsókn lög­reglu sýnir að mæðgurnar höfðu skipu­lagt verkn­að­inn dögum saman. Lög­reglu­stjór­inn Bill Rabbitt greindi frá því að fund­ist hafi texta­skila­boð á milli Myers og Steadman þar sem rætt var um lyfja­gjafir til barn­anna. Myers fyr­ir­skip­aði móður sinni að gefa börn­unum lyfin á milli klukkan 10:30 og hádegis, svo verk­inu yrði lokið fyrir áætlað sím­tal við föð­ur­inn síðar um dag­inn.

Sama morgun sendi Myers skila­boð til föð­ur­ins þar sem hún full­yrti að börnin væru með maga­pest og bað hann um að fresta FaceTime-sím­tali þeirra. Lög­reglan telur þetta hafa verið gert til að dylja það sem var að ger­ast á heim­il­inu.

Hrollvekjandi vísbendingar á vettvangi

Áætlun mæðgn­anna virð­ist hins vegar hafa tekið aðra stefnu þegar lyfin virk­uðu ekki sem skyldi. Í skila­boðum á milli kvenn­anna kom fram: „Þetta virkar ekki. Við þurfum annan val­kost.“ Rann­sak­endur fundu vís­bend­ingar um fjölda­eitrun en ljóst er að grípa þurfti til ann­arra ráða þar sem að eitrið virk­aði ekki á hinn tíu ára gamla Gavin sem var þá stung­inn marg­sinnis með hníf.

Netsaga á tölvum heim­il­is­ins sýndi að leitir höfðu verið gerðar að lyfja­milli­verk­unum, áhrifum insúl­íns á fólk án syk­ur­sýki, dóm­stóla­kerf­inu í Utah og spurn­ing­unni: „Hvar er ban­væn­ast að vera stung­inn?“ Á vett­vangi fannst jafn­framt hand­skrifuð og und­ir­rituð játn­ing frá ömm­unni, Amy Steadman, ásamt óund­ir­rit­uðum bréfum þar sem full­yrt var að fjöl­skyldan hefði sætt ofbeldi í Utah.

Börnin voru ekki peð í valdatafli

Brady Harmon deildi sam­skipt­unum á Facebook til að sýna hvernig hann hafði und­ir­búið komu barna sinna, pantað flug og skipu­lagt afþr­ey­ingu á sama tíma og verið var að ráða þeim bana.

„Börnin mín voru ekki peð til að fórna þegar stjórnin rann þeim úr greipum,“ skrif­aði Harmon. „Þau voru fjórar fal­legar mann­verur með per­sónu­leika, drauma, ótta, hlátur og heila fjöl­skyldu sem beið eftir að elska þau.“

Sarah Myers (44) og móðir hennar, Amy Steadman (64), eitr­uðu fyrir fjórum börnum Myers í New York-ríki áður en þær sviptu sig lífi, en rann­sókn sýndi að atvikið var vand­lega skipu­lagt í tengslum við harða for­ræð­is­deilu. Skilaboð á milli mæðgn­anna leiddu í ljós til­raunir til að fresta fyr­ir­hug­uðu mynd­sím­tali föð­ur­ins, Brady Harmon, sama dag og börnin áttu að fara í sum­ar­heim­sókn til hans í fyrsta skipti síðan 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco