Helga Lára Haarde hefur verið ráðin aðstoðarmaður Hildar Björnsdóttur borgarstjóra Reykjavíkur og hefur störf á skrifstofu borgarstjóra á næstu vikum.
Helga hefur undanfarin tæp tíu ár starfað hjá ráðgjafarfyrirtækinu Attentus sem ráðgjafi í mannauðsmálum og klínískur sálfræðingur. Hún er menntuð í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og starfaði áður hjá Maskínu við gerð viðhorfskannana.
Helga hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og var kosningastjóri flokksins í síðustu borgarstjórnarkosningum.
Hún er dóttir Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ingu Jónu Þórðardóttur, fyrrverandi borgarfulltrúa.


























Athugasemdir