Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Líklega ein furðulegasta frétt í fjölmiðlasögu Íslands“

Nýjustu áform Krist­jáns Lofts­sonar vekja athygli

„Líklega ein furðulegasta frétt í fjölmiðlasögu Íslands“
Morg­un­blaðs­húsið í Árbænum Mynd: Víkingur

Hvalur hf. hyggst leggja sölu á hval­kjöti til Japans til hliðar, að minnsta kosti tíma­bundið, og nýta kjöt af lang­reyðum til fram­leiðslu á járn­bæti­efni. Rit­höf­und­ur­inn Andri Snær Magnason gerir áformin að umtals­efni og gagn­rýnir þau harð­lega.

Kristján Loftsson, fram­kvæmda­stjóri Hvals, greindi frá áformunum í sam­tali við Morg­un­blaðið. Bæti­efnið, sem nefn­ist „Reyð­ar­járn“, verður fram­leitt í duft­formi og selt í hylkjum. Kristján bendir á að blóð­leysi hrjái stóran hluta mann­kyns og að járn­skortur sé orsök veru­legs hluta til­fella.

Hann telur jafn­framt að nýt­ing hvala með þessum hætti geti orðið liður í bar­átt­unni gegn járn­skorti, meðal ann­ars í Afríku.

Hefur litla trú á verkefninu

Andri Snær gefur lítið fyrir þær skýr­ingar og spyr hvort raun­hæft sé að veiða lang­reyðar í þeim til­gangi að vinna úr þeim járn.

„Heilög Theresa hvað þetta er fal­lega hugsað! Hér er lík­lega ein furðu­leg­asta frétt í fjöl­miðla­sögu Íslands,“ skrifar Andri Snær.

Hann veltir meðal ann­ars fyrir sér hag­kvæmni fram­leiðsl­unnar og bendir á að ef járn­inni­hald kjöts­ins sé um 300 milli­grömm í hverju kílói fengjust um 20 kíló af járni úr 70 tonna lang­reyð.

Andri Snær spyr hvað kílóið af járn­inu þyrfti þá að kosta svo útgerðin borg­aði sig og hvort hefð­bundnar aðferðir lyfja­fram­leið­enda við að vinna gegn járn­skorti séu ekki mun ódýr­ari.

Þá spyr hann hvað verði um þann mikla massa hvals­ins sem ekki nýt­ist í járn­bæti­efnið og hvort verk­efnið geti verið leið til að losna við mikið magn hval­kjöts sem þegar hafi verið veitt og þurfi að geyma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum