Tveir létust og ellefu særðust þegar árlegt nautahlaup fór fram í bænum Huamantla í Tlaxcala-ríki í Mexíkó um helgina.
Alls var 21 nauti sleppt lausum um götur bæjarins á svonefndri Huamantlada-hátíð. Myndskeið sem dreift hefur verið á samfélagsmiðlum sýna óhugnanleg atvik þar sem naut ráðast á þátttakendur og áhorfendur.
Í einu myndskeiðinu sést naut ítrekað traðka á karlmanni sem síðar þurfti að draga af götunni. Í öðru sést naut ráðast á konu og kasta henni til jarðar. Henni tókst þó að komast undan á eigin fótum.
Tveir karlmenn létust af völdum áverka sem þeir hlutu á hátíðinni. Annar þeirra hefur verið nafngreindur sem hinn 29 ára gamli Juan Manuel Filomeno Herrera. Ellefu aðrir slösuðust í tengslum við nautahlaupið.
Huamantlada-hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1954 og er sögð vera eitt stærsta nautahlaup heims. Fyrirmynd hátíðarinnar var hið þekkta nautahlaup í Pamplona á Spáni.
Banvæn slys hafa verið fátíð á Huamantlada undanfarin ár og er þetta í fyrsta sinn um nokkurt skeið sem dauðsföll verða á hátíðinni.































Athugasemdir