Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Stórmynd Balta „sennilega“ fjármögnuð af rússneskum glæpamönnum

Var beðin um að leik­stýra tveimur Fast and the Furious myndum

Stórmynd Balta „sennilega“ fjármögnuð af rússneskum glæpamönnum
Hafnaði risa­til­boðum frá Fast & Furious og Marvel Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Kvik­mynda­leik­stjór­inn Baltasar Kormákur var gestur í 325. þætti af hinu vin­sæla hlað­varpi Chess After Dark, í umsjón þeirra Birkis Karls Sig­urðs­sonar og Leifs Þor­steins­sonar. Í þætt­inum ræðir Baltasar opin­skátt um fer­il­inn, komu sína inn í banda­ríska kvik­mynda­heim­inn og hvernig hann hefur náð að halda velli þar ára­tugum saman.

Í spjall­inu ljóstr­aði hann því upp að honum hafi snemma á ferl­inum boð­ist tæki­færi sem flestir kvik­mynda­gerð­ar­menn gætu aðeins látið sig dreyma um.

Setti listrænan heiðarleika fram yfir peningana

Í þætt­inum spurði hlað­varps­stjórn­and­inn Baltasar beint út í lyk­il­inn að vel­gengn­inni vest­an­hafs: „Hvernig kemst maður inn í Hollywood og kannski mik­il­væg­ara hvernig heldur maður sér þar?“

Baltasar sagði mik­il­væg­ast að elta eigin ástríðu frekar en kröfur mark­að­ar­ins eða pen­inga. „Hvernig myndir finnst þér mest gaman að horfa á? Gerðu þær! Ekki gera myndir sem aðrir vilja að þú gerir. Ég held að þú sért bestur í að gera það sem þér finnst skemmti­leg­ast,“ svar­aði Baltasar og nefndi sem dæmi að hann væri lík­lega ekki rétti mað­ur­inn í að leik­stýra banda­rískri póli­tískri satíru.

Hann útskýrði málið frekar og sagði sögu af risa­stórum til­boðum sem hann fékk á borð sitt á yngri árum en ákvað að hafna.

„Það er mik­il­vægt að reyna að hlusta, alveg eins og þegar mér var boðið að gera Fast and the Furious, tvær myndir, mjög snemma á ferl­inum. Það þýddi bara að ég hefði ekki þurft að hugsa um pen­inga það sem eftir væri ævinnar [...] En það er bara þannig að ég hef aldrei haft gaman af þessum myndum. Og af hverju ætti ég þá að fara að gera þær? Sama með Marvel, ég hef aldrei haft gaman af þessum myndum.“

Hann bætti því við að þótt þetta gætu verið prýði­legar myndir fyrir aðra, þá yrði maður að vera trúr sjálfum sér. „Ég er bara ekki rétti mað­ur­inn til að gera það [...] Vertu sam­kvæmur sjálfum þér. Reyndu það í öllu þessu, þar sem allir eru að reyna að toga í þig í allar áttir.“

„Hollywood er bara hugmynd“

Aðspurður um Hollywood-kerfið sjálft og hvernig það virkar, sagði Baltasar að fólk skyldi ekki ímynda sér það sem ákveð­inn eða afmark­aðan stað.

„Hollywood er nátt­úru­lega bara mjög ein­hvern veg­inn allt og ekk­ert. Það er engin hurð að Hollywood, það er ekk­ert and­dyri. Þú getur ekki bankað upp á nein­staðar,“ sagði Baltasar.

Hann benti á að skil­grein­ingin á „Hollywood-mynd“ væri mun víð­tæk­ari en fólk heldur og nefndi eigin verk­efni sem dæmi. „Everest var til dæmis gerð af bresku kvik­mynda­fyr­ir­tæki, tekin upp á Ítalíu, Englandi og Nepal en samt Hollywood-mynd. 2 Guns var fjár­mögnuð af Rússum, senni­lega glæpa­mönnum. Og hún var líka Hollywood-mynd. Hollywood er bara hug­mynd um stórar myndir, oft­ast á ensku sem fólk fer almennt á í bíó. Það er ekk­ert í raun og veru skil­grein­ing á því.“

Rússneskir glæpamenn, kókaínsmygl og sýndarsjóðir

Fjár­mögnun kvik­mynd­ar­innar 2 Guns (2013) var mjög flókin og tengd­ist mönnum með dökka glæpafor­tíð og tengsl við Rússland, en aldrei var sannað að pen­ing­arnir sjálfir hefðu verið afrakstur rúss­neskrar skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi.

Rann­sókn­ar­blaða­maður hjá The Hollywood Reporter fletti ofan af bak­hjarla mynd­ar­innar og komst að eft­ir­far­andi. Hluti af fjár­mögnun mynd­ar­innar kom í gegnum fyr­ir­tækið Envision Enterta­in­ment, sem var stýrt af mönn­unum Stepan Mart­irosyan og Rem­ington Chase. Þeir kynntu sig sem við­skipta­menn með auð­æfi úr rúss­nesku atvinnu­lífi.

Í ljós kom að bæði Mart­irosyan og Chase höfðu áður hlotið þunga dóma í Banda­ríkj­unum fyrir stór­fellt kóka­ínsmygl á 9. og 10. ára­tugnum. Þá var Mart­irosyan bendl­aður við rann­sókn á samn­ings­bundnu leyni­morði á rúss­neskum olíu- og gasauð­jöfri í Moskvu árið 2009, þar sem morð­ing­inn full­yrti að Mart­irosyan hefði útvegað vopnin.

2 Guns treysti alls ekki bara á þessa tvo menn. Myndin kost­aði um 61 milljón Banda­ríkja­dala í fram­leiðslu og nýtti meðal ann­ars 17,6 millj­ónir dala í opin­bera skatta­af­slætti frá Louisiana-fylki, auk þess sem stór fjár­fest­ing­ar­sjóður í Dubai (Oasis Ventures) og kvik­mynda­verið Uni­ver­sal Pictures fjár­mögn­uðu verk­efnið.

Sagan er því sú að menn með mjög vafa­sama for­tíð og rúss­neskar teng­ingar settu raun­veru­lega pen­inga í mynd­ina (og töp­uðu þeim reyndar), en þeir voru aðeins einn af mörgum í lög­mætri og marg­skiptri fjár­mögnun mynd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina