Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

„Er þessi grát­kór ekki með réttu ráði?“

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Össur Skarp­héð­ins­son Össur hjólar í Hildi og stjórn­ar­and­stöð­una Mynd: Facebook

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir Hildi Sverr­is­dóttur, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, harð­lega í Facebook-færslu þar sem hann líkir henni við „prinsess­una á baun­inni“. Hann segir stjórn­ar­and­stöð­una lík­lega þá slöpp­ustu frá alda­mótum og sakar hana um að ein­blína á smá­vægi­leg ágrein­ings­mál í stað þess að veita rík­is­stjórn­inni raun­veru­legt aðhald.

Tilefni skrif­anna eru við­brögð Hildar við ummælum Daða Más Krist­ó­fers­sonar fjár­mála­ráð­herra um fjár­mála­stjórn fyrri rík­is­stjórna Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

„Hildur Sverr­is­dóttir rauk upp á nef sér þegar Daði fjár­mála­ráð­herra tal­aði loks­ins tæpitungu­laust um ábyrgð­ar­lausa fjár­mála­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins síð­ustu sjö árin áður en rík­is­stjórn Kristrúnar tók við,“ skrifar Össur.

Hann segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn hafa skilið eftir sig meiri skuldir en nokkur annar flokkur.

„Enginn flokkur hefur þó skilið eftir sig annan eins skulda­slóða og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Á sjö árum hlóð hann upp sam­tals 800 millj­arða tapi á ríkið. Þennan flór er Daði nú að moka,“ skrifar hann.

Össur vísar einnig til ummæla fjár­mála­ráð­herr­ans á fundi Samtaka ferða­þjón­ust­unnar þar sem hann hafi sagt að „þetta lið“ virt­ist halda að ókeypis væri að hlaða fjall­háum skuldum á ríkið.

Viðbrögð Hildar við orða­lag­inu urðu Össuri til­efni til háðs. Hann vísar til ævin­týr­is­ins um prinsess­una á baun­inni og skrifar:

„Hildur hefur síðan gengið eiskrandi um miðl­ana einsog prinsessan á baun­inni sem var svo við­kvæm að hún fékk mar­blett á sinn kon­ung­lega aft­ur­enda þegar lætt var lít­illi baun undir dúnsæng­urnar sjö sem hún svaf á.“

Hann segir Hildi hafa tekið sér­stak­lega nærri sér að vera kölluð „þetta lið“ og spyr hvers vegna stjórn­mála­menn bregð­ist með þessum hætti við bein­skeyttum ummælum.

„Til hvers er „þetta lið“ eig­in­lega í póli­tík? Til að kveina í fjöl­miðlum þegar talað er umbúða­laust á hreinni og tærri íslensku?“ spyr Össur og bætir við: „Svona fólk er ein­fald­lega utan erindis; hefur ekk­ert að segja við þjóð­ina.“

Össur lætur ekki þar við sitja heldur gagn­rýnir einnig Guðrúnu Haf­steins­dóttur, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrir að blanda sér í inn­an­flokks­mál Flokks fólks­ins.

„Á sama tíma eyðir for­maður Hildar, Guðrún Haf­steins­dóttir, púðri sínu í ræðu­stól Alþingis til að skipta sér af inn­an­flokks­málum Flokks fólks­ins og rambar beint í „skíta­pott“ Ingu Sæland. Er þessi grát­kór ekki með réttu ráði?“ skrifar hann.

Að mati Össurar hefur stjórn­ar­and­staðan ekki náð að nýta sér efna­hags­legan mót­byr rík­is­stjórn­ar­innar. Hann bendir á að Sam­fylk­ingin hafi styrkt stöðu sína í skoð­ana­könn­unum á sama tíma og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi dalað.

„Þetta er vita­skuld ástæðan fyrir því að þó rík­is­stjórnin sé í miðjum efna­hags­skafli þá rýkur Sam­fylk­ingin upp í Gallup en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn dalar. Rík­is­stjórnin heldur m.a.s. jöfnu í könn­unum þrátt fyrir að vera í efna­hags­legum mót­byr,“ skrifar hann.

Hann lýkur færsl­unni með enn harð­ari gagn­rýni á stjórn­ar­and­stöð­una og segir hana lík­lega þá slöpp­ustu frá alda­mótum.

„Kristrún og kó munu sigla örugg áfram meðan hún er upp­tekin af því að vera í fýlu yfir sára­saklausum orðum ráð­herra eða átökum innan ann­arra flokka sem þeim koma ekk­ert við,“ skrifar Össur.

Að lokum beinir hann aftur spjótum sínum að Hildi og segir hana ætti að ein­beita sér að stöðu eigin flokks.

„Prinsessan á baun­inni ætti fremur að huga að stöðu eigin flokks en snapa fæt­ing um mál sem engu skipta,“ segir Össur að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum