Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

„Við höfum hætt öllum við­skiptum við Rússa sem hefur kostað okkur millj­arða“

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Hilmar Garðars Þor­steins­son Tjáði sig á Alþingi fyrr í dag. Mynd: Miðflokkurinn

Hilmar Garðars Þor­steins­son, vara­þing­maður Mið­flokks­ins, gagn­rýndi utan­rík­is­stefnu Íslands í umræðum um störf þings­ins á Alþingi í dag. Hann sagði stjórn­völd ganga of langt í aðgerðum gagn­vart Rúss­landi og taka of lítið mið af íslenskum hags­munum.

„Utan­rík­is­stefna Íslands tekur nú iðu­lega sára­lítið mið af hags­munum þjóð­ar­innar og þetta þarf að breyt­ast. Það er kom­inn tími til að gæta á ný íslenskra hags­muna fyrst og síð­ast.“

Segir Ísland hafa notið mikils trausts

Hilmar minnti á að 11. októ­ber yrðu fjöru­tíu ár frá upp­hafi leið­toga­fundar Mikhails Gorbachevs og Ronalds Reagans í Höfða. Hann sagði fund­inn hafa skapað traust milli leið­tog­anna og Ísland hafa haft mik­inn sóma af honum.

„Á þessum tíma nutu Íslend­ingar mik­ils trausts á alþjóða­vett­vangi og áttu í vin­sam­legum sam­skiptum við þjóðir bæði austan tjalds og vestan. Ólíklegt er að Ísland hefði verið valið sem fund­ar­staður ef svo hefði ekki verið.“

Að sögn Hilmars hefði verið hægt að gagn­rýna báða leið­tog­ana en íslensk stjórn­völd hefðu sýnt þeim virð­ingu án þess að styðja þar með allar athafnir ríkja þeirra.

„Við höfðum um ára­tugi átt mikil við­skipti við báðar þessar þjóðir og sýndum leið­togum þeirra staka virð­ingu án þess að í því fælist stuðn­ingur við hvað eina sem ríki þeirra höfðu tekið sér fyrir hendur.“

Hann taldi aðra nálgun ein­kenna utan­rík­is­stefn­una nú.

„Hún virð­ist vera þannig að ef komið er auga á eitt­hvert órétt­læti í heim­inum er farið af stað og gripið til hörð­ustu aðgerða sem völ er á, jafn­vel umfram aðrar vest­rænar þjóðir.“

Gagnrýnir aðgerðir gagnvart Rússlandi

Hilmar hélt því fram að við­skipta­stefnan gagn­vart Rúss­landi hefði kostað Íslend­inga millj­arða.

„Við höfum hætt öllum við­skiptum við Rússa sem hefur kostað okkur millj­arða meðan aðrar þjóðir Evrópu hafa haldið áfram marg­vís­legum við­skiptum við þá.“

Hann nefndi gjald­þrot Skagans á Akranesi í því sam­hengi og sak­aði Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, um að hafa ákveðið að „slátra millj­arða­fyr­ir­tæk­inu Vélfagi vegna lítt sann­aðra tengsla við Rússland“.

Þá gagn­rýndi Hilmar að starf­semi sendi­ráðs Íslands í Moskvu hefði verið hætt og gerði athuga­semdir við skýr­ingar sem hann vís­aði til í ræð­unni.

„Ekki bætir um sú eft­irá­skýr­ing að það hafi ekki síst verið gert vegna kjöt­bita sem fund­ist hafi í kæli­skáp græn­metisætu starf­andi í sendi­ráð­inu.“

Í lok ræð­unnar ítrek­aði Hilmar ósk sína um breytta for­gangs­röðun í utan­rík­is­málum.

„Ég lýsi yfir þeirri von minni að svo megi verða hið allra fyrsta og að Íslandi verði ekki flækt í mál sem það getur ekki haft raun­hæf áhrif á til gagns.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum