Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna

Fram­leiðsla á minka­skinna minnkar um 80 pró­sent

Nettókostnaður loðdýraræktar á Íslandi 981 milljón króna
Loðskinn Samkvæmt skýrsl­unni er loð­dýra­rækt fok­dýrt fyrir Ísland Mynd: Marjan Blan/Unsplash

Ný skýrsla um íslenskan loð­dýra­iðnað metur að nettó­kostn­aður loð­dýra­ræktar fyrir íslenskt sam­fé­lag hafi numið 981 milljón króna árið 2025. Nið­ur­stöður skýrsl­unnar verða kynntar á mál­þing­inu Af minkum og mönnum í Norræna hús­inu á morgun, 9. októ­ber.

Skýrslan ber heitið A full-cost account of the Icelandic fur industry og var unnin af hag­fræð­ing­unum Griffin Carpenter og Artūrs Kaņepājs fyrir Humane World for Animals og Samtök um dýra­vel­ferð á Íslandi. Þar er efna­hags­legt fram­lag loð­dýra­ræktar borið saman við kostnað sem teng­ist meðal ann­ars umhverf­is­á­hrifum, ágengum minkum og lýð­heilsu.

Samkvæmt skýrsl­unni nam efna­hags­legt fram­lag grein­ar­innar 86 millj­ónum króna árið 2025, en þegar met­inn umhverfis- og lýð­heilsu­kostn­aður hefur verið dreg­inn frá hafi nettó­kostn­að­ur­inn numið 981 milljón króna. Í þeirri upp­hæð er kostn­aður vegna dýra­vel­ferðar ekki met­inn til fjár.

Artūrs Kaņepājs, annar höf­unda skýrsl­unnar, mun kynna nið­ur­stöð­urnar á mál­þing­inu og fjalla um efna­hags­legt umfang og sam­fé­lags­legan kostnað loð­dýra­ræktar hér á landi.

Segja greinina hafa lítið efnahagslegt umfang

Í skýrsl­unni kemur fram að virð­is­auki loð­dýra­ræktar hafi verið um 86 millj­ónir króna árið 2025, sem jafn­gildi um 0,002 pró­sentum af íslenska hag­kerf­inu. Þá hafi um tíu stöðu­gildi verið tengd grein­inni á árinu.

Höfundar skýrsl­unnar segja jafn­framt að loð­dýra­rækt hafi verið rekin með tapi öll ár frá 2014 til 2025 að árinu 2021 und­an­skildu. Samkvæmt skýrsl­unni hafi rík­is­styrkir haft áhrif á afkom­una árið 2021.

Fram­leiðsla minka­skinna hafi einnig dreg­ist veru­lega saman á tíma­bil­inu. Hún hafi minnkað úr um 200 þús­und skinnum árið 2015 í um 40 þús­und árið 2025, eða um 80 pró­sent. Tekjur grein­ar­innar hafi á sama tíma minnkað meira en tífalt.

Fjallað um dýravelferð og áhrif minksins

Á mál­þing­inu verður einnig fjallað um dýra­vel­ferð, sögu minks­ins hér á landi og áhrif hans á íslenska nátt­úru.

Þóra Jóhanna Jón­as­dóttir, yfir­dýra­læknir hjá Mat­væla­stofnun, mun fjalla um dýra­vel­ferð í tengslum við loð­dýra­rækt og vel­ferð minka. Róbert A. Stef­áns­son, líf­fræð­ingur, fjallar um mink­inn, sögu hans og áhrif í íslenskri nátt­úru.

Mike Moser, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri British Fur Trade Association, flytur einnig erindi. Moser starf­aði í meira en ára­tug innan alþjóð­lega loð­dýra­iðn­að­ar­ins en yfir­gaf grein­ina árið 2018 og hefur síðan talað fyrir því að loð­dýra­rækt og verslun með loð­feldi verði lögð af.

Þá mun Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir fjalla um hlut­verk sveit­ar­fé­laga í dýra­vel­ferð.

Í póli­tísku pall­borði verður rætt um fram­tíð loð­dýra­ræktar á Íslandi. Þar taka þátt full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar­innar, Flokks fólks­ins, Mið­flokks­ins, Vinstri grænna, Pírata og Sós­í­alista­flokks­ins. Katrín Odds­dóttir verður fund­ar­stjóri.

Ragn­heiður Gröndal og Guð­mundur Pét­urs­son sjá um tón­list­ar­at­riði og sýndar verða stutt­myndir eftir lista­kon­una Anahitu Babaei.

Mál­þingið fer fram í Norræna hús­inu 9. októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum