Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag

„Við erum komin í heim upp­lif­un­ar­stjórn­mála“

Ríkisstjórnin sökuð um að svíkja skriflegt samkomulag
Nokkrir þing­menn tóku þátt í umræð­unni Mynd: Samsett

Harðar deilur brut­ust út á Alþingi í dag um skrif­legt sam­komu­lag þing­flokks­for­manna frá því í vor og reglu­gerð sem inn­við­a­ráð­herra setti í sept­em­ber. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar sök­uðu rík­is­stjórn­ina um að hafa brotið sam­komu­lagið og vör­uðu við því að traust milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu væri í hættu.

Stjórn­ar­liðar höfn­uðu því hins vegar að sam­komu­lagið hefði verið brotið og sögðu það hafa varðað fyr­ir­hug­aðar laga­breyt­ingar en ekki heim­ild ráð­herra til reglu­gerð­ar­setn­ingar.

Ólafur Adolfs­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hóf umræð­una og vís­aði til sam­komu­lags sem þing­flokks­for­menn und­ir­rit­uðu í apríl. Samkvæmt því hefðu 2.700 tonn bæst við strand­veiðar gegn því að ekki yrði hróflað við línuí­vilnun eða rækju og skel­bótum án sam­ráðs.

„Hvað eigum við hér í stjórn­ar­and­stöð­unni að gera þegar samn­ingar þessa eðlis eru ekki efndir, skrif­legir samn­ingar, og ráð­herra ætlar sér hrein­lega ekki að gera neinar ráð­staf­anir til að breyta þessu máli?“ spurði Ólafur.

Stefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, tók undir gagn­rýn­ina og sagð­ist hafa orðið fyrir miklum von­brigðum.

„Það er dap­ur­legt og sorg­legt að upp­lifa það að það sé ekki gert í þessu máli,“ sagði Stefán um að sam­komu­lagið hefði að hans mati ekki verið virt. Hann sagði málið jafn­framt lík­legt til að gera sam­starf þing­flokks­for­manna erf­ið­ara.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, sagði stöð­una grafal­var­lega og kall­aði eftir því að for­seti Alþingis gripi inn í.

„Í eina tíð var hægt að semja munn­lega um frá­gang og fram­gang mála. Síðan hefur þurft að gera það skrif­lega á seinni tímum en nú er skyndi­lega komin upp sú staða að skrif­legt sam­komu­lag þing­flokks­for­manna um fyr­ir­komu­lag og fram­gang til lúkn­ingar máls heldur ekki,“ sagði Bergþór.

Jens Garðar Helgason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gekk enn lengra og spurði hvort þing­menn þyrftu fram­vegis að kalla til lög­fræð­inga við gerð sam­komu­laga.

„Er það orðið þannig, virðu­legur for­seti, að við þing­lok þurfi hér að fara að mæta með lög­fræð­inga eða þarf rík­is­lög­maður eða umboðs­maður Alþingis að vera við­staddur til að votta?“ spurði Jens og bætti við: „Við erum komin á vondan stað.“

„Reglugerðin alveg innan samkomulagsins“

Sigurjón Þórð­ar­son, þing­maður Flokks fólks­ins, hafn­aði þess­ari túlkun máls­ins. Hann benti á að fyr­ir­hugað væri að ræða málið á opnum fundi atvinnu­vega­nefndar.

„Ef skrif­lega sam­komu­lagið er lesið þá er nokkuð ljóst að reglu­gerðin sem var sett er alveg innan sam­komu­lags­ins,“ sagði Sigurjón. Hann við­ur­kenndi þó að sam­ráðið hefði mátt vera meira: „Mögulega hefði ráð­herra átt að hafa sam­ráð áður en reglu­gerðin var sett.“

Ingi­björg Dav­íðs­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, sagði þá stöðu óþol­andi að skrif­legt sam­komu­lag héldi ekki.

„Ef það er skrifað undir sam­komu­lag þá ætl­ast ég til þess að það haldi. Að öðrum kosti er ekki hægt að semja um nokkurn skap­aðan hlut við þann meiri hluta sem er í þing­inu,“ sagði Ingi­björg og kall­aði eftir því að ráð­herra drægi reglu­gerð­ina til baka.

Stefán Vagn steig aftur í pontu og sagði fyr­ir­hug­aða umfjöllun atvinnu­vega­nefndar ekki skipta máli í deil­unni.

„Þetta fjallar nefni­lega um að standa við gefin orð og samn­inga og skuld­bind­ingar, skrif­lega í þessu til­felli,“ sagði Stefán. Hann sagði öllum sem hefðu tekið þátt í gerð sam­komu­lags­ins hafa verið ljóst hvað í því fælist.

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, tók næst til máls og greip sér­stak­lega á lofti orð Sig­ur­jóns um að ráð­herra hefði mögu­lega átt að hafa sam­ráð.

„Hann átti hrein­lega að gera það í ljósi sam­komu­lags sem hér var sett undir lok síð­asta þings,“ sagði Sigríður. „Ráð­herrar verða að hafa það í huga að þeir eru ekk­ert eyland hér með sín mál á þing­inu.“

Guð­mundur Ari Sig­ur­jóns­son, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði alvar­legt að þing­menn upp­lifðu að sam­komu­lag hefði verið brotið en hafn­aði því að reglu­gerð­ar­setn­ingin félli undir sam­komu­lagið.

„Það er nóg að það sé upp­lifun fólks að sam­komu­lag hafi verið brotið, það er miður, því traust milli þing­flokks­for­manna skiptir miklu máli,“ sagði Guð­mundur Ari.

Hann sagði sam­komu­lagið hafa snú­ist um laga­breyt­ingar og fyr­ir­hugað frum­varp. „Sam­komu­lagið sneri ekki að reglu­gerð,“ sagði hann og bætti við að boðað hefði verið til þess sam­ráðs­fundar sem kveðið væri á um.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði óvenju­legt að sam­komu­lög þing­flokks­for­manna væru yfir­leitt sett á blað. Almennt hefði verið hægt að treysta munn­legum sam­komu­lögum.

„En ef við erum komin á þann stað að það er ekki hægt að treysta því sem er skrifað, hvernig ætla menn þá að vinna hér áfram?“ spurði Guð­laugur.

Ólafur Adolfs­son steig þá aftur í pontu og mót­mælti túlkun Guð­mundar Ara harð­lega. Hann sagði óhugs­andi að sam­komu­lagið mætti túlka þannig að ráð­herra gæti skömmu síðar breytt rækju og skel­bótum og línuí­vilnun með reglu­gerð.

„Það vissu allir sem voru á þessum fundi um hvað væri verið að semja. Það vissu allir þing­flokks­for­menn nákvæm­lega um hvað menn voru að semja,“ sagði Ólafur og spurði hvort ekki hefði verið skyn­sam­legra að „biðj­ast bara ein­fald­lega afsök­unar á þess­ari dellu í ráð­herra“.

Sigurjón Þórð­ar­son svar­aði og ítrek­aði að sam­komu­lagið hefði fyrst og fremst varðað frum­varp og laga­breyt­ingu.

„Ef maður les sam­komu­lagið eins og það er skrifað stendur það upp úr,“ sagði Sigurjón. Hann spurði jafn­framt hvers vegna stjórn­ar­and­staðan legði svo mikla áherslu á að við­halda bótum vegna áfalla í skel og rækju­veiðum fyrir um ald­ar­fjórð­ungi.

Sigurjón við­ur­kenndi þó á ný að betur hefði mátt standa að sam­ráði. „Ég ítreka að það hefði farið betur á því ef sam­ráð hefði verið haft áður en reglu­gerðin var sett.“

„Við erum komin í heim upplifunarstjórnmála“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son steig aftur í pontu og sagði kjarna máls­ins ekki vera efn­is­legt inni­hald reglu­gerð­ar­innar heldur traust milli flokka.

„Það sem við erum að ræða er í hvaða stöðu Alþingi Íslend­inga er þegar ekki er hægt að treysta skrif­legum samn­ingum við þing­lok,“ sagði Guð­laugur. „Nú er það búið. Það er það sem er langal­var­leg­ast í þessu.“

Bergþór Ólason tók næstur til máls og sagði stjórn­ar­and­stöð­una hafa staðið við sinn hluta sam­komu­lags­ins en stjórn­ar­flokk­ana ekki.

„Staðan hvað slík sam­töl varðar er auð­vitað gjör­breytt ef þetta verður nið­ur­staðan,“ sagði Bergþór og kall­aði eftir aðkomu for­seta Alþingis. „Ef menn ætla að koma sér á þann stað að skrif­legt sam­komu­lag, skrif­legir samn­ingar, haldi ekki þá verð ég bara að biðja um aðstoð virðu­legs for­seta við að finna með hvaða hætti við í stjórn­ar­and­stöð­unni eigum að geta treyst stjórn­ar­flokk­unum aftur.“

Jens Garðar Helgason kom þá aftur í pontu og beindi spjótum sínum að orða­lagi stjórn­ar­liða um „upp­lifun“ þing­manna.

„Við erum komin í heim upp­lif­un­ar­stjórn­mála,“ sagði Jens. Hann spurði jafn­framt: „Hvernig í ósköp­unum, virðu­legur for­seti, eigum við í stjórn­ar­and­stöðu í fram­hald­inu að semja við upp­lif­un­ar­rík­is­stjórn þar sem upp­lif­un­ar­stjórn­mál eru það sem ræður för?“

Sigríður Á. Andersen tók aftur til máls og kall­aði eftir nán­ari skýr­ingum frá Guðmundi Ara vegna ummæla sem hún sagði fela í sér vísun til þess að munn­leg sam­komu­lög hefðu áður verið brotin.

„Mér finnst það ómak­legt að koma hér upp í ræðu­stól Alþingis og vísa með óljósum hætti til þess að menn hafi gengið á bak orða sinna í munn­legum sam­komu­lögum í ann­ars ágætu sam­starfi sem þing­flokks­for­menn hafa átt á þessu kjör­tíma­bili saman,“ sagði Sigríður.

Bryndís Har­alds­dóttir, for­seti Alþingis, batt loks enda á umræð­una með stuttri yfir­lýs­ingu.

„Forseti vill við þetta til­efni segja að þessum athuga­semdum hefur verið komið skýrt til skila og for­seti ber metnað til þess að traust ríki á milli flokka sem hér starfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum