Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

„Það er erfitt að búa á landi þegar maður getur ekki tjáð sig á tungu­máli sam­fé­lags­ins“

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda
Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir Er þing­maður Flokks fólks­ins Mynd: Víkingur

Kolbrún Áslaugar Bald­urs­dóttir, þing­maður Flokks fólks­ins, segir mik­il­vægt að inn­flytj­endur á Íslandi fái raun­veru­leg tæki­færi til að læra íslensku, nýta menntun sína og reynslu og verða virkir þátt­tak­endur í sam­fé­lag­inu.

Kolbrún ræddi fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum inn­flytj­enda fyrir árin 2026–2029 undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær. Áætlunin, sem kemur frá félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er nú til umfjöll­unar í vel­ferð­ar­nefnd Alþingis.

Hún sagði málið mik­il­vægt og löngu tíma­bært. Markmið áætl­un­ar­innar væri meðal ann­ars að bæta stöðu inn­flytj­enda, efla íslensku­nám, auð­velda fólki að nýta menntun sína og starfs­reynslu og tryggja betra aðgengi að þjón­ustu og upp­lýs­ingum.

Kolbrún lagði sér­staka áherslu á mik­il­vægi íslensku­kennslu og sagði erfitt að búa í landi án þess að geta tjáð sig á sama tungu­máli og aðrir.

„Það skilja allir að það er erfitt að búa á landi þegar maður getur ekki tjáð sig á tungu­máli sam­fé­lags­ins. Það er því grund­vall­ar­at­riði að gefa fólki raun­veru­legt tæki­færi til að læra íslensku,“ sagði Kolbrún.

Hún sagði íslensku­námið þurfa að vera skýrt afmarkað og aðgengi­legt, með áherslu á sam­tal og dag­leg sam­skipti. Ekki væri hægt að ætl­ast til þess að fólk lærði tungu­málið ef tæki­færin til þess væru tak­mörkuð.

Þá lagði Kolbrún áherslu á að menntun og hæfi­leikar þeirra sem flytj­ast til lands­ins væru metin að verð­leikum. Menntun væri fjár­fest­ing og þjóð­hags­lega hag­kvæmt væri að nýta þá þekk­ingu og reynslu sem inn­flytj­endur byggju yfir.

Í fram­kvæmda­á­ætl­un­inni er jafn­framt lögð áhersla á rann­sóknir, töl­fræði og grein­ingar svo aðgerðir byggi á raun­veru­legum þörfum. Sér­stak­lega þurfi að huga að við­kvæmum hópum og tryggja að eng­inn verði út undan.

Kolbrún sagði áætl­un­ina leggja grunn að mark­vissum aðgerðum en jafn­framt þyrfti að sýna þol­in­mæði og úthald við fram­kvæmd þeirra.

„Það er hagur okkar allra að fólk sem hér sest að fái tæki­færi til að læra tungu­málið, nýta hæfi­leika sína og verða virkir þátt­tak­endur í íslensku sam­fé­lagi,“ sagði Kolbrún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum