Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Isavia staðfestir komu vélar sem BDS Ísland tengir við brottvísanir ICE

„Isavia ohf. býr ekki yfir upp­lýs­ingum um það sem spurt er um, svo sem hver til­gangur flugs­ins var“

Isavia staðfestir komu vélar sem BDS Ísland tengir við brottvísanir ICE
Leifs­stöð ISAVIA stað­festir flugið en veit ekki um til­gang­inn Mynd: Víkingur

Isavia stað­festir að flug­vél með skrán­ing­ar­núm­erið N62FF hafi lent á Kefla­vík­ur­flug­velli aðfara­nótt 10. sept­em­ber síð­ast­lið­ins og farið aftur tæpum 70 mín­útum síðar. Isavia seg­ist hins vegar ekki búa yfir upp­lýs­ingum um til­gang flugs­ins.

Þetta kemur fram í svari Isavia við fyr­ir­spurn Mannlífs vegna full­yrð­inga BDS Íslands um að flug­vélar tengdar brott­vís­un­ar­að­gerðum banda­rískra yfir­valda hafi tekið elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Í svari Isavia segir að vél með skrán­ing­ar­núm­erið N62FF lent þar klukkan 00.38 og farið aftur klukkan 01.47.

„Isavia ohf. býr ekki yfir upp­lýs­ingum um það sem spurt er um, svo sem hver til­gangur flugs­ins var,“ segir í svar­inu.

BDS Ísland tengir vélina við brottvísanir

BDS Ísland hefur birt mynd­skeið á sam­fé­lags­miðlum þar sem sam­tökin halda því fram að fjögur flug tengd brott­vís­un­ar­að­gerðum banda­rísku inn­flytj­enda- og toll­gæsl­unnar, ICE, hafi tekið elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli á þessu ári.

Samkvæmt upp­lýs­ingum sam­tak­anna áttu flugin sér stað 27. apríl, 29. júlí, 1. ágúst og 10. sept­em­ber. Þau segja vél­arnar hafa verið reknar af fyr­ir­tæk­inu Journey Aviation og tengj­ast brott­vís­unum frá Banda­ríkj­unum.

BDS Ísland hefur sér­stak­lega bent á vél­ina N62FF, sem sam­tökin segja hafa tekið elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli 10. sept­em­ber.

Samtökin hafa einnig vísað til umfjöll­unar The Guardian og +972 Magazine um flug sem tengj­ast brott­vísun Palest­ínu­manna frá Banda­ríkj­unum. Samkvæmt þeirri umfjöllun voru Palest­ínu­menn sem banda­rísk yfir­völd höfðu hand­tekið fluttir úr landi með flug­vél sem tengd­ist Journey Aviation.

Svara beðið frá dómsmálaráðuneytinu

Svar Isavia stað­festir komu vél­ar­innar N62FF til Kefla­vík­ur­flug­vallar aðfara­nótt 10. sept­em­ber, en veitir ekki upp­lýs­ingar um til­gang ferð­ar­innar eða hvort flugið tengd­ist brott­vís­un­ar­að­gerðum banda­rískra yfir­valda.

BDS Ísland hefur gagn­rýnt íslenska fjöl­miðla fyrir að fjalla ekki um málið og kallað eftir því að íslensk stjórn­völd rann­saki flugin og kanni hvort notkun Kefla­vík­ur­flug­vallar í þessum til­gangi sam­ræm­ist íslenskum lögum og alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands.

Í fyrri umfjöllun Mannlífs kom fram að fyr­ir­spurnir hefðu verið sendar til Isavia og utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins vegna máls­ins. Svar Isavia liggur nú fyrir, en það skýrir ekki hvort eða hvernig flugið tengd­ist þeim brott­vís­unum sem BDS Ísland hefur fjallað um. Utan­rík­is­ráðu­neytið benti Mannlífi á að fyr­ir­spurn­irnar ættu frekar að send­ast á dóms­mála­ráðu­neytið, og hafa þær því verið sendar á téð ráðu­neyti.

Spurn­ingar Mannlífs til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins eru eft­ir­far­andi þó svar sé komið frá ISAVIA við fyrstu spurn­ing­unni:

  1. Getur dóms­mála­ráðu­neytið stað­fest að einka­þota með skrán­ing­ar­núm­erið N62FF hafi tekið elds­neyti á Kefla­vík­ur­flug­velli 10. sept­em­ber í tengslum við brott­vís­anir Palest­ínu­manna frá Banda­ríkj­unum?
  2. BDS Ísland segir að þrjú önnur sam­bæri­leg flug hafi tekið elds­neyti hér á landi í apríl, júlí og ágúst, þó ekki endi­lega með Palest­ínu­menn inn­an­borðs. Hefur ráðu­neytið kannað þau flug? 
  3. Ef þessar upp­lýs­ingar reyn­ast réttar, tel­urðu að íslensk stjórn­völd beri ábyrgð á að kanna hvort íslensk aðstaða hafi verið nýtt til að greiða fyrir brott­vís­unum sem kunna að brjóta gegn alþjóða­lögum?
  4. Hefur ráðu­neytið óskað eftir skýr­ingum frá banda­rískum stjórn­völdum eða Isavia?
  5. Hvaða heim­ildir hafa íslensk stjórn­völd til að koma í veg fyrir að flug­vellir hér á landi séu nýttir í þessum til­gangi?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum