1
Fólk

Selja töfrandi heimili við Elliðaárdal

2
Landið

Nafnlaus gagnrýni á bæjarstjórn birtist á götum Fjarðabyggðar

3
Innlent

Starfsmaður fluttur á sjúkrahús eftir eldhússlys

4
Heimur

Björguðu lífi 20 daga gamals barns

5
Fólk

„Það eru allir jafnir undir sturtunni“

6
Innlent

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði

7
Fólk

Risastórt gluggahús á sölulista

8
Innlent

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu

9
Innlent

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi

10
Heimur

47 konur drepnar á Gaza daglega

Til baka

Aðalheiður segir Hreyfil hafa brugðist konum

Reyndi að koma upplýsingum geranda sinn til fyrirtækisins

Leigubílar í röð í Hverfisgötu
Leigubílar að bíða eftir farþegumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Í pistli sem Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir ritar á Facebook telur hún Hreyfil hafa hunsað brot bílstjóra fyrirtækisins lengi og setur það í samhengi við meinta árás leigubílstjóra sem átti sér stað um helgina í Dugguvogi en greint hefur verið frá því að þeim bílstjóra hafi verið sagt upp störfum.

„Ég fagna því að í þessu máli var stigið strax inn, annað en í mínu máli,“ skrifar Aðalheiður.

„Á sama tíma er sárt fyrir aðra þolendur að horfa upp á að sumstaðar er stigið inn, annarstaðar ekki. Það óskiljanlegt að þetta verklag gangi ekki yfir alla starfsmenn Hreyfils.“

Aðalheiður segir að þar til í síðustu viku hafi hún reynt að koma upplýsingum um geranda hennar til Hreyfils í marga mánuði.

„Upplýsingum sem sýndu fram á brot gagnvart mér og fleiri konum. Einnig ræddi ég við einstakling í stjórn Hreyfils vegna gagna sem varðar öryggi farþega þeirra. Þeir kusu að horfa í hina áttina og vonast til þess að ég myndi með tímanum þegja. Hreyfill hafði engan áhuga á að taka við neinum af þessum upplýsingum, ráku hann ekki fyrr en almenningur hafði samband eftir að ég talaði opinberlega um geranda minn, réttarkerfið og Hreyfil,“ heldur hún áfram.

Leibubílakeila
Mynd: Víkingur

„Þeir þurfa ekki að trúa mér. Þetta snýst ekki eingöngu um mig ef þeir halda það - hann náði mér, svo það er of seint að spá í því núna,“

Hún segir að þetta snúist um að taka ábyrgð og öryggi farþega fyrirtækisins.

„Hvers vegna Hreyfill vill ekki taka við gögnum og mynda sér skoðun út frá þeim er óskiljanlegt - eitthvað sem þeir einir geta svarað fyrir. Ef þetta eru vinnubrögðin sem þeir tileinka sér þá eru þeir ekki í neinni stöðu til að auglýsa örugga þjónustu. Þessi vinnubrögð hafa valdið því að fleiri þolendur urðu til, eitthvað sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir.“

Gerandi hennar er ekki lengur bílstjóri hjá Hreyfli og er Aðalheiður þakklát almenningi sem stóð upp fyrir henni og öðrum þolendum.

„Almenningi sem lét heyra í sér með þeim afleiðingum að þeir gátu ekki annað en látið hann fara,“ segir Aðalheiður.

„Til ykkar allra sem stóðuð og standið með okkur - takk!
Stuðningur og samstaða ykkar síðustu daga hefur gefið mér meira réttlæti og stuðning en réttarkerfið og Hreyfill gerðu á 834 dögum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku
Innlent

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku

„Sérstakt fagnaðarefni“
Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu
Innlent

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu

Risastórt gluggahús á sölulista
Myndir
Fólk

Risastórt gluggahús á sölulista

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði
Innlent

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði

Nafnlaus gagnrýni á bæjarstjórn birtist á götum Fjarðabyggðar
Landið

Nafnlaus gagnrýni á bæjarstjórn birtist á götum Fjarðabyggðar

47 konur drepnar á Gaza daglega
Heimur

47 konur drepnar á Gaza daglega

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi
Innlent

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi

Björguðu lífi 20 daga gamals barns
Heimur

Björguðu lífi 20 daga gamals barns

„Það eru allir jafnir undir sturtunni“
Fólk

„Það eru allir jafnir undir sturtunni“

Selja töfrandi heimili við Elliðaárdal
Myndir
Fólk

Selja töfrandi heimili við Elliðaárdal

Starfsmaður fluttur á sjúkrahús eftir eldhússlys
Innlent

Starfsmaður fluttur á sjúkrahús eftir eldhússlys

Hinsegin kórinn svarar Snorra með gæsahúðarmyndbandi
Myndband
Innlent

Hinsegin kórinn svarar Snorra með gæsahúðarmyndbandi

Myndir á netinu afhjúpuðu maraþonsvindl í Höfðaborg
Heimur

Myndir á netinu afhjúpuðu maraþonsvindl í Höfðaborg

Innlent

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku
Innlent

Ísland styður kyn- og frjósemisheilbrigðisverkefni í Afríku

„Sérstakt fagnaðarefni“
Hinsegin kórinn svarar Snorra með gæsahúðarmyndbandi
Myndband
Innlent

Hinsegin kórinn svarar Snorra með gæsahúðarmyndbandi

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu
Innlent

Askja innkallar Benz-bifreiðar vegna slysahættu

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði
Innlent

Flatbökuunnandi bakaði sér vandræði í Hafnarfirði

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi
Innlent

Kona lamdi lögreglumenn í hausinn með vasaljósi

Starfsmaður fluttur á sjúkrahús eftir eldhússlys
Innlent

Starfsmaður fluttur á sjúkrahús eftir eldhússlys

Loka auglýsingu