1
Fólk

Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Árás Hamas á Ísrael hafði mikil áhrif á hjónaband Ólafs og Dorritar

4
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

5
Innlent

Hafnfirsk móðir höfðar mál til að fá faðerni barns staðfest

6
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

7
Innlent

Einföld tilraun sýnir hvað getur leynst í eldhústuskunni

8
Heimur

Borgaði ókunnugu fólki fyrir að reima skóna sína

9
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

10
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

Til baka

Adam Driver svarar ásökunum Dunham með kaldhæðni

Hún lýsir honum sem hálfum manni og hálfri skepnu.

Adam Driver og Lena Dunham
Aðstandendur Girls-þáttannaAdam er þessi hávaxni og Lena er sú stuttklippta
Mynd: DIMITRIOS KAMBOURIS / GETTY IMAGES VIA AFP

Adam Driver hefur brugðist kaldhæðnislega við ásökunum frá Lenu Dunham um hegðun hans við tökur á sjónvarpsþáttunum Girls.

Í nýrri ævisögu sinni, Famesick, heldur Lena því fram að Driver hafi stundum sýnt „villimannslega“ hegðun á tökustað. Þegar Driver var spurður út í ummælin á blaðamannafundi á kvikmyndahátíðinni í Cannes vegna kvikmyndarinnar Paper Tiger svaraði hann:

„Ég hef enga athugasemd við neitt af þessu. Ég geymi þetta allt fyrir bókina mína.“

Svar hans vakti hlátur meðal viðstaddra samkvæmt Variety, en Dunham lýsir hegðun hans í bókinni sem langt frá því að vera fyndinni. Lýsti hún Driver sem hálfum manni og hálfri skepnu.

Hún rifjar meðal annars upp atvik þegar þau voru að æfa línur saman og segir Driver hafa misst stjórn á skapi sínu.

„Adam öskraði: „Segðu eitthvað fjandinn hafi það!“ og kastaði stól í vegginn við hliðina á mér,“ skrifar hún. Þá hafi hann einnig sagt við hana: „Vaknaðu andskotinn hafi það! Ég er orðinn þreyttur á að horfa á þig bara stara.“

Á þeim tíma segist Dunham hafa glímt við hugrofsástand tengt ógreindu legslímuflakki.

Hún fjallar einnig um tökur á kynlífssenum þeirra í þáttunum, þar sem þau léku parið Hannah Horvath og Adam Sackler. Samkvæmt Dunham hafi fyrirfram ákveðin uppsetning senanna oft farið út um gluggann þegar myndavélarnar fóru í gang.

Hún segir Driver í hlutverki sínu hafa hent sér til og frá í senunum og viðurkennir að hún hafi stundum óttast að atriðin færu of langt áður en hún stöðvaði upptökurnar.

„Hluti af mér var hræddur um að þegar ég sneri mér við myndi ég uppgötva að ég væri allt í einu stödd í klámmynd frá áttunda áratugnum með fullu samræði,“ viðurkenndi Lena. „En eftir nokkrar leiknar samfarahreyfingar kallaði ég stopp.“

Þrátt fyrir ásakanirnar rifjar Dunham upp að Driver hafi sagt sér þegar tökum lauk árið 2017 að hann myndi „alltaf elska“ hana, en að hún hafi aldrei heyrt frá honum aftur eftir það.

Driver hefur áður talað mjög jákvætt um samstarf sitt við Dunham. Í viðtali við Larry King árið 2017 sagði hann að vinnuumhverfið á þáttunum hefði verið eitt það besta sem hann hefði upplifað.

„Hún er mjög nákvæm í skrifum sínum og skapar opið rými þar sem allir geta prófað það sem þeir vilja,“ sagði hann þá um Dunham.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

„2027 lítur vel út“
Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi
Innlent

María óttast um öryggi sex ára dóttur sinnar á Kársnesi

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar
Innlent

Tók starfsmenn upp án vitneskju þeirra eftir símahremmingar

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Stefán má loksins gefa blóð aftur
Fólk

Stefán má loksins gefa blóð aftur

Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Maðurinn var með reiðhjólahjálm
Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað
Heimur

Mannfall og miklar skemmdir í drónaárás á Moskvu-hérað

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði
Heimur

Óvissa ríkir um mögulegt pestarsmit í Irkutsk-héraði

Loka auglýsingu