1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Innlent

Konan er fundin

3
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

4
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

5
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

6
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

7
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

8
Innlent

Bylting við flugstöðina

9
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

10
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Til baka

Andri Snær ósáttur: „Apaheilar“

Brotalamir í samgöngum á Keflavíkurflugvöll.

Andri Snær Magnason
Andri Snær MagnasonRithöfundurinn er alls ekki sáttur.

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er allt annað en ánægður með rútufyrirtæki sem auglýsir ferðir á Keflavíkurflugvöll frá Skógarhlíð.

Á sama tíma og misbrestur er í rútusamgöngum hefur Isavia ráðlagt fólki að panta bílastæði fyrirfram um páskana.

Andri Snær varð fyrir því óláni að mæta í Skógarhlíðina snemma morguns til að taka rútu til Keflavíkur samkvæmt plani. Rútan hins vegar mætti ekki og hafði Andri Snær aðeins eitt um starfsmenn fyrirtækisins að segja, kallaði hann þá apaheila, í Facebook-færslu sem hann birti í dag í hópnum Bakland ferðaþjónustunnar:

„Ætlaði að taka þessa rútu hér til Keflavíkur frá Skógarhlíð, skv plani færi rútan kl 5, (hentaði betur Flybus 4:30 og 5:30 hjá BSí) Kem þangað og allt er óvenju tómlegt. Þá er bara engin rúta í förum og engin tilkynning um það á vefsíðunni. Apaheilar.“

Margir tóku undir færslu Andra Snæs og kvörtuðu sáran yfir þjónustuleysinu. Einn þeirra, Ingimar Eydal skrifaði: „Eina landið í veröldinni þar sem þú þarft eiginlega að vera skyggn til að vita hvernig þú átt að komast til og frá alþjóðaflugvellinum ef þú ætlar að nota einhvers konar almenningssamgöngur...“

Skortur á bílastæðum á Keflavíkurflugvelli

Varðandi Keflavíkurflugvöll þá sendi Isavia frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem fólk er ráðlagt að bóka bílastæði fyrirfram á flugvellinum um páskana.

Þar segir að búist sé við mikilli umferð um Keflavíkurflugvöll um komandi páska en frá og með fimmtudeginum 10. apríl næstkomandi og fram yfir páska er ekki hægt að leggja bílum á betri og almennum stæðum, P1 og P3 við flugvöllinn án þess að búið sé að bóka þau fyrirfram á vef KEF.

„Fyrirsjáanlegt er að bílastæðin verði fullnýtt fyrir og yfir hátíðarnar og því er þetta gert til að tryggja að farþegar sem eiga bókuð stæði fái þau. Það er mikilvægt að benda farþegum á að frá fimmtudeginum næsta verður ekki hægt að fá bílastæði á P1 og P3 nema þau séu bókuð.

Bókunarkerfið vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggir farþegum stæði um páskana. Ferðalöngum sem ekki eru með bókuð bílastæði er bent á aðra samgöngumáta til og frá KEF,“ segir meðal annars í fréttatilkynningunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Innlent

Konan er fundin
Innlent

Konan er fundin

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Loka auglýsingu