
Fyrrverandi keppandi í söngvakeppninni American Idol, Caleb Flynn, hefur verið fundinn sekur um að hafa myrt eiginkonu sína, Ashley. Flynn, sem er fertugur, skaut eiginkonu sína til bana á meðan hún svaf á heimili þeirra í Ohio í febrúar á þessu ári.
Flynn á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn vegna morðsins. Lögregla segir að hann hafi skotið eiginkonu sína á meðan dætur þeirra, níu og 11 ára, voru heima.
Flynn hringdi sjálfur í lögregluna eftir skotárásina og hélt því fram að innbrotsþjófur hefði ráðist inn á heimilið og myrt eiginkonu hans. Saksóknarar héldu því hins vegar fram að Flynn, sem starfaði sem prestur, hefði sviðsett innbrotið til að villa um fyrir rannsókn lögreglu.
Átti í ástarsambandi við konu úr kirkjunni
Áður en Ashley lést hafði Flynn um árabil átt í ástarsambandi við Alleighu Botner, sem starfaði sem lofgjörðarstjóri í kirkjunni hans.
Saksóknarar sögðu að Flynn hefði viljað yfirgefa hjónabandið án þess að missa forræði yfir dætrum sínum, stöðu sína innan kirkjunnar og starf sitt hjá fjölskyldufyrirtæki Ashley. Að þeirra mati hafi hann því ákveðið að grípa til morðs.
Botner, sem er 24 ára, bar vitni fyrir dómi og sagði þau Flynn hafa átt í ástarsambandi. Hún sagði hann hafa sagt sér að hann hataði eiginkonu sína og hefði hugleitt að drepa hana.
Botner kynntist Flynn árið 2022, þegar hún var 20 ára og í starfsnámi hjá Christian Life Center. Samband þeirra hófst árið 2024 og stóð í um 18 mánuði.
„Ég var vakandi til klukkan fjögur í nótt“
Botner las upp skilaboð fyrir dómi sem Flynn hafði sent henni. Þar sagði hann meðal annars að eina ástæðan fyrir því að hann væri enn með eiginkonu sinni væri að hann vildi vera með dætrum þeirra.
Síðar sendi hann henni skilaboð þar sem hann sagðist vera tilbúinn að hætta á að missa „dætur sínar, 250 þúsund dollara launað starf, húsnæði, mögulega kirkju sem hann þjónaði í, opinbera skömm og niðurlægingu og miklu meira“ til þess að geta verið með Botner.
Botner sagði að hún hefði ítrekað sett honum úrslitakosti og krafist þess að hann yfirgæfi eiginkonu sína, nú síðast í sama mánuði og Ashley var myrt.
Í öðrum skilaboðum til Botner skrifaði Flynn:
„Ég var vakandi til klukkan fjögur í nótt og grét, bókstaflega að hugsa um leiðir til að drepa hana án þess að fara í fangelsi.“
Botner sagðist hafa svarað honum og reynt að fá hann til að drepa Ashley ekki.
„Ég er auðvitað ekki að biðja þig um að taka líf hennar, því það er ekki það sem þú ættir að gera og ég veit að þú myndir í raun ekki gera það. En ef þú getur látið skilnaðinn ganga í gegn myndi það breyta öllu.“
Skömmu fyrir miðnætti kvöldið áður en Ashley lést sendi Flynn Botner síðustu skilaboðin. Þar skrifaði hann:
„Góða nótt, morgundagurinn er stór dagur. Ég verð að fara að sofa. Ég vel þig, ég er að verða frjáls.“
Morðvopnið ófundið
Lögmenn Flynn héldu því fram að rannsakendur hefðu dregið of hraðar ályktanir eftir að upp komst um ástarsambandið.
Verjandinn Patrick Mulligan benti meðal annars á að byssan sem notuð var við morðið hefði aldrei fundist.
„Það að hann hafi verið ótrúr jafngildir ekki morði. Málið snýst ekki um: „Var hann góður eiginmaður?““
Flynn varð fyrst þekktur þegar hann tók þátt í American Idol árið 2013, fyrir 13 árum. Þá sagði hann áhorfendum að eiginkona hans hefði hvatt hann til að fylgja draumum sínum sem söngvari.
Hann komst þó ekki áfram í aðalkeppnina.
