1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

3
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

4
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

5
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

6
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

7
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

8
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

9
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

10
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

Til baka

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Prófessorinn gantast með ný götuheiti í borginni.

Eiríkur Rögn
Eiríkur RögnvaldssonEiríkur er með húmorinn í lagi
Mynd: Árnastofnun

Eiríkur Rögnvaldsson, uppgjafaprófessor í íslenskri málfræði, hefur fengið ýmsar hugmyndir að nýjum götunöfnum í Reykjavík á morgungöngum sínum með eiginkonu sinni.

Eiríkur segir í spaugilegri Facebook-færslu að hann fái „ýmsar góðar hugmyndir að vannýttum götunöfnum í stíl við nöfn sem fyrir eru“.

Í Rauða hverfinu í Holtunum telur hann til að mynda að mætti bæta við götunum Meinhollti, Óhollti og jafnvel Þjóðhollti.

„Háteigskirkja gæti staðið við Drottinhollt,“ skrifar Eiríkur og bætir við að hann viti vel að „hin holtin eru bara með einu l-i en framburðurinn er eins“.

Eiríkur sér einnig ýmsa möguleika í kringum Hrefnugötu.

„Í grennd við Hrefnugötu mætti hafa fleiri hvalaheiti,“ segir hann og nefnir Búrhvalsgötu, Háhyrningsgötu og Steypireyðargötu.

Hann tekur þó fram að hann viti að „Hrefnugata er ekki kennd við hval“.

Karlagata gefur honum sömuleiðis tilefni til orðaleikja. Þar mætti að hans mati bæta við Hákarlagötu og Stórkarlagötu.

„Já, ég veit að hún er kennd við þrælinn Karla,“ bætir Eiríkur við.

Hann fer síðan enn lengra í hugmyndunum og beinir sjónum sínum að Vitastíg.

„Svo að farið sé aðeins lengra mætti skipta Vitastíg niður þannig að helmingurinn af honum héti Hálfvitastígur, eða oddatölumegin héti hann Oddvitastígur,“ stingur hann upp á í gríni.

Eiríkur virðist því hafa nóg af hugmyndum fyrir götunafnanefnd og lýkur færslunni á orðunum:

„Ég ætti líklega að bjóða mig fram í götunafnanefnd.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda
Myndir
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu
Myndir
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku
Fólk

Tíu nammitegundir sem slá í gegn á hrekkjavöku

Loka auglýsingu