1
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

2
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

3
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

4
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

5
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

6
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

7
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

8
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

9
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

10
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Til baka

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Ólétt kona meðal hinna myrtu

Gaza
Blóði drifinn húsveggurUng verðandi móðir var myrt á þaki heimilis síns af Ísraelsher í gær.
Mynd: Instagram

Að minnsta kosti sjö Palestínumenn hafa fallið og meira en 10 særst í árásum Ísraela á Gasasvæðið síðasta sólarhringinn, en Ísrael heldur áfram að brjóta á tæplega ársgömlu „vopnahléi“. Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig sagt að vopnahléið, sem tók gildi 10. október 2025, sé brothætt og að loftárásir, sprengjuárásir og drónaárásir haldi áfram. Alls hafa því minnst 21 verið drepnir frá 26. september, þar af ólétt kona.

Vitni og heilbrigðisstarfsfólk segja að sex manns hafi látið lífið þegar ísraelskur dróni réðst á fólksflutningabíl í Tal al-Hawa-hverfinu í suðvesturhluta Gaza-borgar í dag.

Palestínski Rauði hálfmáninn, sem rekur sjúkraflutninga og neyðarþjónustu á svæðinu, sagði að sjúkraflutningamenn hefðu flutt 13 særða á al-Quds-sjúkrahúsið.

Heimildir innan heilbrigðiskerfisins sögðu Al Jazeera að ástand þeirra sem særðust í árásinni væri alvarlegt.

„Læknar segja að erfitt sé að bjarga lífi hinna særðu vegna þess að heilbrigðiskerfinu hefur verið rústað eftir margra ára árásir Ísraela og umsátur hersins,“ sagði fréttakonan Hind Khoudary, sem greindi frá málinu frá Gaza-borg. Hún sagði jafnframt að tala látinna gæti hækkað á næstu klukkustundum.

Fyrr um daginn greindi palestínska fréttastofan Wafa frá því að ísraelsk árás á íbúð í nágrenni al-Shifa-sjúkrahússins í Gaza-borg hefði orðið að minnsta kosti einni konu að bana.

Annars staðar á Gaza særðust fjórir Palestínumenn, þar af tvö börn, þegar ísraelskur dróni hæfði skjól fyrir fólk sem hafði flúið heimili sín í suðurhluta Gaza, samkvæmt staðbundnum heimildum sem Wafa vitnaði í.

Tveir aðrir Palestínumenn særðust alvarlega eftir að ísraelskar hersveitir skutu á þá suðaustur af Deir el-Balah í miðhluta Gaza. Þá bárust einnig fregnir af skriðdrekaskothríð Ísraela í Khan Younis í suðurhluta Gaza.

Yfir 1.400 sagðir hafa fallið frá því vopnahlé tók gildi

Heilbrigðisráðuneytið á Gaza, sem tekur saman upplýsingar um mannfall frá sjúkrahúsum víðs vegar um svæðið, sagði í daglegri uppfærslu sinni á miðvikudag að lík að minnsta kosti níu einstaklinga hefðu borist á sjúkrahús síðustu 24 klukkustundir.

Átta þeirra hefðu látist á tímabilinu en ein kona lést af völdum eldri áverka. Samkvæmt ráðuneytinu hefur þá að minnsta kosti 1.431 Palestínumaður látið lífið frá því vopnahlé Ísraels og Hamas tók gildi í október síðastliðnum. Þá hafa 5.026 særst, þar af 31 síðasta sólarhringinn.

„Það á að vera vopnahlé á Gaza en ofbeldi ísraelska hersins er endalaust. Á hverjum degi eru Palestínumenn drepnir og særðir og mannúðarástandið versnar,“ sagði Khoudary.

Hún lýsti ástandinu sem „ógnvekjandi“ og sagði íbúa Gaza óttast að fara í matvöruverslun, fylgja börnum sínum í skóla eða einfaldlega lifa daglegu lífi.

Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum á Gaza hafa alls að minnsta kosti 74.032 Palestínumenn verið drepnir og 175.142 særst frá því stríðið hófst í október 2023. Þá eru þúsundir enn grafnir undir rústum húsa á svæðinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Kristjánsdóttur
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Kristjánsdóttur

Fólk beðið um að fylgjast vel með
Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík
Fólk

Vill sjá Hálfvitastíg, Hákarlagötu og Þjóðhollt í Reykjavík

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu
Innlent

Stórfelld netárás á íslenska ferðaþjónustu

Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Maður í gæsluvarðhaldi eftir alvarlega líkamsárás í Kópavogi

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands
Innlent

Frá Íslandi til Brasilíu og Indlands

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar
Innlent

Tímabundið hverfi fyrir erlent starfsfólk vekur upp margar spurningar

Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

Hringdi svangur og særður í ömmu sína
Söguleg tímamót í Marokkó
Heimur

Söguleg tímamót í Marokkó

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé
Heimur

Á þriðja tug Palestínumanna drepnir þrátt fyrir vopnahlé

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu
Heimur

Aftöku Christu Pike frestað á síðustu stundu

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ
Heimur

Ungur maður grunaður um sex kynferðisbrot í Ábæ

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð
Heimur

Fyrrum American Idol-keppandi fundinn sekur um morð

Loka auglýsingu