
Hildur Björnsdóttir
Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, kynnti í vikunni, ásamt félögum sínum, kosningaáherslur flokksins í komandi kosningum.
Lítið nýtt var að frétta á þeim bænum en í grófum dráttum er um að ræða sama efni og flokkurinn hefur kynnt undanfarinn áratug í borginni, við dræmar undirtektir borgarbúa.
Það sem var hins vegar athyglisvert var sú ákvörðun Sjálfstæðismanna að halda fundinn í Bragganum í Nauthólsvík en eins og margir muna hefur flokkurinn eytt mörg hundruð klukkustundum í að níða Braggann og allt sem honum tengist. Mögulega eru þetta merki um nýja tíma í Sjálfstæðisflokknum en líklegra er um innanhús kaldhæðni að ræða ...
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment
Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
