1
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

2
Innlent

Hildi sagt upp hjá borginni

3
Innlent

Stórmoskan svarar fyrir heimsókn Usmani

4
Innlent

Vill fá konu borna út úr sumarbústað í Mosfellsbæ

5
Fólk

Selja eitt fallegasta parhús landsins

6
Innlent

María Lilja rekin af Samstöðinni

7
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

8
Fólk

„Hún Marta María er kannski bara ekki alveg á réttri hillu“

9
Pólitík

„Af hverju þykir það eðlilegt að henda fólki út með skít og skömm?“

10
Fólk

Íslandsferðin breytti lífi Jonathons

Til baka

Branson segir heiminn betur settan með Höllu sem forseta

„Svo dásamlegt að hitta vinkonu mína“

Halla og Branson
Halla og RichardHalla virðist hafa fært vini sínum afmælisgjöf en hann átti afmæli 18. júlí.
Mynd: Facebook

Breski milljarðamæringurinn Richard Branson fer fögrum orðum um Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann að heimurinn sé betur settur með Höllu í embætti forseta, þótt The B Team hafi misst einn besta framkvæmdastjóra sem samtökin hafi haft. Þau virðast hafa hist á dögunum á Íslandi en með færslunni birtir Branson ljósmyndir sem teknar voru nýlega. Skrifar hann í upphafi færslunnar:

„Svo dásamlegt að hitta vinkonu mína, fyrrverandi samstarfskonu og forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur.“

Branson rifjar upp að Halla hafi haft samband við sig þegar hún gegndi starfi forstjóra The B Team, sem hann var meðal stofnenda að, og beðið um mánaðarleyfi til að bjóða sig fram til forseta Íslands. Hún hafi þá aðeins mælst með tvö prósent fylgi.

„Ég sagði í gríni: „Gangi þér vel – þá sé ég þig eftir mánuð!““ skrifar Branson og bætir við að hann hafi haft rangt fyrir sér. Halla hafi unnið kosningarnar og dafnað í embætti. „Þótt við höfum misst einn besta forstjóra sem við höfum nokkru sinni haft er heimurinn betur settur með Höllu sem forseta,“ segir hann.

Tengsl Branson við Epstein

Branson hefur á undanförnum árum þó einnig verið í sviðsljósinu vegna fyrri samskipta sinna við Jeffrey Epstein. Nafn hans kom fyrir í þónokkrum gögnum sem birt voru úr Epstein-rannsókninni og sýndu meðal annars tölvupóstaskipti þeirra frá árinu 2013 en þar má sjá að nokkuð hlýtt var á milli þeirra.

Í þeim tölvupósti leggur Branson til hvernig Bill Gates gæti varið Epstein opinberlega. Hann stingur upp á að Gates segði að Epstein hefði verið „frábær ráðgjafi“, að hann hefði „misstigið sig“ fyrir mörgum árum með því að sofa hjá 17 og hálfs árs konu, hefði tekið út refsingu sína og lært af mistökunum. Þá skrifar Branson einnig að ekkert væri athugavert við að Epstein, sem einhleypur maður, hefði dálæti á konum.

Í sama pósti býður Branson Epstein að heimsækja sig á ný og skrifar meðal annars: „Það var virkilega gaman að sjá þig í gær. Strákarnir í vatnaíþróttunum geta ekki hætt að tala um heimsóknina! Komdu endilega aftur þegar þú átt leið um. Svo lengi sem þú kemur með kvennabúrið þitt!“

branson
Branson og EpsteinMilljarðamæringarnir á góðri stundu
Mynd: Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna

Virgin Group hefur ítrekað hafnað því að Branson hafi átt náin tengsl við Epstein. Fyrirtækið segir samskiptin hafa verið takmörkuð við fáein tækifæri í viðskipta- og góðgerðarsamhengi og að Branson hafi slitið öllum tengslum við Epstein eftir að áreiðanleikakönnun vegna fyrirhugaðs styrks leiddi í ljós alvarlegar ásakanir á hendur honum. Þá hefur Branson lýst gjörðum Epsteins sem „viðurstyggilegum“ og sagst styðja rétt fórnarlamba hans til réttlætis. Þá sagði í tilkynningu frá Branson að hann hafi átt við þrjár fullorðnar konur úr starfsteymi Epsteins þegar hann talaði um kvennabúrið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt
Heimur

Barry Keoghan fór í húðmeðferð eftir neikvæð ummæli um útlit sitt

Dró sig í hlé vegna netníðs
Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans
Sport

Lakers-goðsögn mætir á OnlyFans

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi
Pólitík

Jón Gnarr segir úrræðaleysi gagnvart börnum ólíðandi

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver
Heimur

Úlfar leita inn í finnsk þorp eftir að Google ruddi 526 hektara skóglendi fyrir gagnaver

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael
Heimur

Þrjár mögulegar sviðsmyndir eftir kosningarnar í Ísrael

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna
Heimur

Stærsta bókaverslanakeðja Rússlands hefur eytt bókum fyrir 100 milljónir rúblna

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig
Heimur

William Shatner og George Takei minnast Walter Koenig

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns
Innlent

Þrír dæmdir eftir íkveikju á Teslu lögreglumanns

Við rannsókn málsins fundust bensín og leifar af bensíni í skóm
„Barnið mitt er ekki í geymslu“
Innlent

„Barnið mitt er ekki í geymslu“

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani
Innlent

Stefán Einar sakar kirkjuna um tvískinnung í máli Usmani

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027
Innlent

Ísland ekki á lista yfir þátttökulönd í Eurovision 2027

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann
Innlent

Fyrrverandi eiginkona Eiðs Smára fer í mál við hann

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur
Innlent

Kanilsnúðakaka innkölluð vegna aðskotahlutur

Loka auglýsingu