1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Pólitík

Afsögn Guðmundar Inga kveikti hörð orðaskipti Kristrúnar og Sigmundar

3
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

4
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

5
Heimur

Nöfn feðganna sem skotnir voru í Noregi birt

6
Heimur

Breskir hjúkrunarfræðingar slíta samstarfi við Teva

7
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

8
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

9
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

10
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Til baka

„Ég er ekki barnaníðingur“

Donald Trump reiddist í 60 Minutes viðtali

Donald Trump
Donald TrumpBandaríkjaforseti var afar ósáttur við þáttastjórnandann
Mynd: Shutterstock

Donald Trump lét reiði sína í ljós í viðtali við 60 Minutes eftir að þáttastjórnandinn Norah O'Donnell vitnaði í meinta yfirlýsingu skotmannsins á kvöldverði blaðamanna Hvíta hússins á laugardagskvöld.

Skotárásin átti sér stað á laugardag á viðburði í Washington Hilton-hótelinu þar sem gestir, þar á meðal Trump og eiginkona hans, leituðu skjóls undir borðum þegar skotum var hleypt af. Einn lögreglumaður særðist en var í skotheldu vesti og er ekki talinn í lífshættu. Yfirvöld telja að árásin hafi beinst að Trump og öðrum háttsettum embættismönnum í Bandaríkjunum.

Hinn grunaði árásarmaður er 31 árs gamall maður, Cole Tomas Allen að nafni en hann er frá Kaliforníu. Hann er sagður hafa sent fjölskyldu sinni skilaboð skömmu fyrir árásina þar sem hann kallaði sig „Friendly Federal Assassin“ og lýsti óánægju með stjórnvöld. Hann á að koma fyrir dóm í dag.

Í viðtalinu vitnaði O'Donnell í texta úr meintri stefnuyfirlýsingu mannsins þar sem vísað var til „barnaníðings, nauðgara og landráðamanns“, sem vakti hörð viðbrögð Trump. „Ég beið eftir að þú myndir lesa þetta því ég vissi að þú myndir gera það… þið eruð hræðilegt fólk. Hræðilegt fólk… Ég er ekki nauðgari. Ég hef ekki nauðgað neinum. Ég er ekki barnaníðingur… Þú ættir að skammast þín fyrir að lesa þetta,“ sagði hann og bætti við að hann hefði verið „algerlega hreinsaður“ af slíkum ásökunum.“

O´Donnell náði að skjóta inni í einni spurningu áður en Trump hélt áfram reiðilestri sínum: „Nú, tókstu því þannig að hann væri að tala um þig?“

Trump hélt áfram:

„Vinir ykkar hinum megin við borðið eru þeir sem tóku þátt í, segjum, Epstein eða annað slíkt. En ég sagði við sjálfan mig: „Veistu, ég fer í þetta viðtal og þeir munu líklega ... lesa stefnuyfirlýsinguna“. En þið ættuð að skammast ykkar fyrir að lesa það því ég er ekkert af þessu.“

Allen sagði skotmörk sín vera „embættismenn stjórnvalda: í forgangsröð frá þeim hæst settu til þeirra lægst settu“, þótt hann virtist undanskilja Kash Patel, forstjóra FBI, af listanum. Allen virðist vísa til Trumps þegar hann skrifar: „Ég er ekki lengur tilbúinn að leyfa barnaníðingi, nauðgara og svikara að ata hendur mínar út í glæpum sínum.“

Rannsakendur hafa einnig fundið efni á samfélagsmiðlum hins grunaða þar sem hann gagnrýnir bæði Trump og kristni. Í einu slíkra skrifa hélt hann því fram að það væri ekki rétt að „bjóða hina kinninni“ þegar aðrir væru kúgaðir.

„Að bjóða hina kinnina er fyrir þegar þú ert sjálfur kúgaður. Ég er ekki manneskjan sem var nauðgað í fangabúðum. Ég er ekki sjómaðurinn sem var tekinn af lífi án dóms og laga. Ég er ekki skólakrakki sem var sprengdur í loft upp, eða barn sem sveltur, eða unglingsstúlka sem er misnotuð af hinum mörgu glæpamönnum í þessari stjórnsýslu. Að bjóða hina kinnina þegar einhver annar er kúgaður er ekki kristileg hegðun; það er samsekt í glæpum kúgarans.“

Trump sagði jafnframt að eiginkona hans, Melania Trump, hefði verið mjög brugðin eftir atvikið, þó hún hafi brugðist við af yfirvegun. „Henni var mjög brugðið… hver væri það ekki í svona aðstæðum?“ sagði hann.

Hér fyrir neðan má sjá viðtalið í heild sinni en reiðilesturinn hefst þegar 19 mínútur og 40 sekúndur eru liðnar af viðtalinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Maðurinn ók bifreið um Þjóðbraut og inn á bifreiðastæði á Akranesi
Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu