1
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

2
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

3
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

4
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

5
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

6
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

7
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

8
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

9
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Til baka

„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu“

Anna Kristjánsdóttir opnar sig í nýju viðtali

Anna Kristjánsdóttir
Anna Kristjánsdóttir vann lengi sem vélstjóri á sjó

Í nýju viðtali hjá Aríeli Péturssyni í Sjókastinu segir Anna Kristjánsdóttir frá uppvaxtarárunum sínum, tímanum á sjónum og fjölskyldulífinu. Meðal þess sem hún ræðir um er leiðréttingarferlið.

„Ég hefði viljað byrja miklu fyrr á leiðréttingarferlinu, sem var alls ekki möguleikinn á þeim tíma. Það breytir samt ekki því að ég er alltaf hluti af sjómennskunni, það fer ekkert í burtu. Ég segi stundum, kallið í mig þegar þið eruð að ráða inn nýja á skipin ykkar,“ segir Anna þegar hún er spurð hverju hún myndi breyta ef hún gæti hitt tvítuga sjálfa sig. Anna vann lengst af sem vélstjóri og sjómaður og er nú flutt aftur heim eftir áralanga dvöl á Tenerife.

Ótal margt hefur drifið á daga hennar svo að það mætti halda að hún hefði lifað mörgum lífum. Hún ólst upp í Höfðaborginni og varði stórum hluta bernskunnar á barnaheimilum. Hún fór á sjóinn 14 ára, gifti sig síðar og eignaðist þrjú börn. Um þriggja til fjögurra ára aldur fór hún að finna fyrst fyrir því að hún væri í vitlausum líkama, en Anna varð önnur konan á Íslandi sem lét leiðrétta kyn sitt og sú fyrsta sem sagði opinberlega frá því. Hún barðist lengi ein fyrir réttindum trans fólks á Íslandi.

Aðspurð hvenær á hennar viðburðaríku ævi hún hafi verið hamingjusömust, segir hún að fyrstu árin í hjónabandinu hafi verið góð og svo eftir að allt var komið í ró á Íslandi. „Þegar ég kem 1996 til Íslands var staðan sú að landið var alls ekki tilbúið til að taka á móti mér. Næstu tíu árin á eftir bjó ég við það að vera „the only trans in the village“. Fyrstu árin á Íslandi vildi enginn koma fram sem trans, það voru vissulega nokkrir trans, en þeir vildu ekki koma fram. Það er ekki fyrr en 2005/2006 sem fleiri trans fara að koma fram opinberlega og þá fer að koma meiri ró. Og um það leyti fór almenningur að sætta sig við þetta og það breytti öllu. Svo stofnuðum við Trans Ísland félagið 2007 þó svo að ég sé löngu hætt þar og félagarnir teknir við.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð
Heimur

Dánarorsök glímukappans PAC opinberuð

Lést degi eftir bardaga
Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum
Myndband
Heimur

Ólöglegir landnemar réðust á bandarískan blaðaljósmyndara á Vesturbakkanum

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum
Menning

Glæpir, örlög og góður félagsskapur í Árbænum

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu
Heimur

Ætlaði að fæla burt könguló en brenndi niður lúxusvillu

Elko innkallar ofn vegna brunahættu
Innlent

Elko innkallar ofn vegna brunahættu

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna
Innlent

Ökumenn reyndu bæði bensíngjöfina og hlaupaskóna

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg
Myndband
Innlent

Spreybrúsamaðurinn handtekinn fyrir ógnandi hegðun á Skólavörðustíg

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn
Pólitík

Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Innlent

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár
Heimur

Glæpamaður þóttist vera látinn tvíburabróðir sinn í 19 ár

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar
Myndband
Heimur

Björn stal hunangi á 100 ára afmæli Bangsímonar

Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið
Fólk

Fimm algeng mistök sem geta eyðilagt sambandið

Góð samskipti og tilfinningalegt öryggi geta skipt verulegu máli þegar kemur að ánægju fólks í langtímasamböndum
Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn
Myndir
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum
Myndir
Fólk

Tískudrottning og frétta­maður selja í Vesturbænum

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari
Fólk

Tíu ráð sem gera dimma vetrarmorgna auðveldari

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð
Myndir
Fólk

Fréttamaður RÚV selur krúttlega íbúð

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann
Fólk

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Loka auglýsingu