
Skammdegið getur gert mörgum erfiðara fyrir að koma sér á fætur á morgnana og finna orkuna til að takast á við daginn. Styttri dagar og minna dagsljós yfir haust- og vetrarmánuðina geta haft veruleg áhrif á bæði líðan og orkustig fólks.
Shazna Khanom, yfirmaður klínískrar geðheilbrigðisþjónustu hjá Bupa, segir myrkrið ekki aðeins hafa áhrif á skap heldur geti það einnig dregið úr orku og valdið því að fólk upplifi sig hægara en venjulega. Slík tilfinning sé stundum túlkuð sem leti, sem geti síðan haft neikvæð áhrif á líðan.
Khanom bendir á tíu leiðir sem geti hjálpað fólki að takast betur á við dimma vetrarmorgna.
1. Vaknaðu á sama tíma á hverjum degi
Mikilvægt er að halda sem mestri reglu á svefninum og reyna að vakna á svipuðum tíma alla daga. Að sögn Khanom getur regluleg rútína hjálpað líkamanum að aðlagast og auðveldað fólki að komast á fætur.
2. Kveiktu strax á ljósunum
Þegar dimmt er úti getur verið freistandi að hafa lýsinguna daufa á morgnana. Khanom mælir hins vegar með því að kveikja strax vel á ljósunum. Birtan geti hjálpað líkamanum að vakna og gefið honum skýr skilaboð um að dagurinn sé hafinn.
3. Komdu líkamanum á hreyfingu
Hvers kyns hreyfing að morgni getur hjálpað til við að koma líkamanum í gang. Það getur verið einföld hreyfing heima, heimsókn í líkamsræktarstöð eða hlaup utandyra. Þeir sem hlaupa í myrkri ættu að klæða sig vel og nota höfuðljós.
4. Breyttu hugarfarinu gagnvart vetrinum
Í stað þess að líta eingöngu á myrkrið og kuldann sem neikvæða þætti mælir Khanom með því að fólk reyni að sjá jákvæðu hliðarnar. Kertaljós og notalegt andrúmsloft geti til dæmis gert dimma morgna ánægjulegri.
5. Gefðu þér meiri tíma
Það getur reynst vel að vakna nógu snemma til að þurfa ekki að flýta sér. Tebolli, útvarp eða hljóðbók getur gert morguninn rólegri og hjálpað fólki að undirbúa sig fyrir daginn.
6. Prófaðu hressandi ilm í sturtunni
Sumar ilmolíur og ilmvörur geta haft hressandi áhrif. Khanom bendir á að litlar breytingar á morgunrútínunni geti skipt máli þegar erfiðara er að vakna yfir vetrarmánuðina.
7. Hugsaðu um eitthvað sem þú hlakkar til
Gagnlegt getur verið að beina huganum að einhverju jákvæðu sem bíður manns yfir daginn. Það gæti verið að hitta skemmtilegan samstarfsfélaga, fara út að borða eða gera eitthvað ánægjulegt eftir vinnu.
8. Borðaðu morgunmat sem þú hefur gaman af
Góður og hollur morgunverður getur hjálpað til við að koma deginum vel af stað. Khanom nefnir meðal annars hafragraut eða heitan morgunverð sem fólk getur hlakkað til að borða.
9. Mundu eftir vatninu
Fólk getur átt það til að drekka minna vatn yfir kaldari mánuðina. Khanom hvetur því fólk til að muna eftir vökvanum og fá sér vatn fljótlega eftir að það vaknar.
10. Nýttu dagsbirtuna
Mikilvægt er að komast út í náttúrulega birtu þegar tækifæri gefst. Khanom mælir með að fólk reyni að vera utandyra í að minnsta kosti 20 mínútur á dag. Jafnvel þegar skýjað er geti dagsbirtan haft jákvæð áhrif á líðan.
Ef erfiðleikar yfir vetrarmánuðina verða viðvarandi og vanlíðan fer að hafa áhrif á vinnu, fjölskyldulíf eða sambönd hvetur Khanom fólk til að leita sér faglegrar aðstoðar.
