1
Fólk

Sigfús selur notaðan bíl á 19 milljónir

2
Innlent

Móðir Hönnuh opnar sig um Krýsuvíkurslysið

3
Heimur

Sérstakt gjald lagt á fatnað frá Shein, Temu og AliExpress

4
Innlent

Búast megi við miklum umferðartöfum í dag

5
Fólk

Unnur Birna og Davíð Örn selja í Hafnarfirði

6
Innlent

Bókun 35 á mannamáli: „Þetta snýst um raunverulega Íslendinga“

7
Pólitík

Reykjavíkurborg leggst gegn áætlun Ingu

8
Peningar

Nítján á Austurlandi sem þurfa ekki að hrista sparibaukinn

9
Heimur

Survivor-keppandi missti fót í miðjum tökum

10
Innlent

Vinsæll Mercedes-Benz innkallaður

Til baka

Eitt dýrasta hús landsins komið á sölu

Var byggt árið 2011

góðakur
Góðakur 8

Glæsilegt og veglegt einbýlishús við Góðakur 8 í Garðabæ hefur verið sett á sölu fyrir 420 milljónir króna. Húsið, sem var byggt árið 2011, er 361,8 fermetrar að stærð og stendur á 964 fermetra eignarlóð.

Innbyggður bílskúr er 33,3 fermetrar. Húsið stendur innst í friðsælum botnlanga þar sem opin og gróin svæði eru allt í kring.

Eignin skiptist meðal annars í fimm svefnherbergi, þar af tvær rúmgóðar hjónasvítur, þrjú baðherbergi og gestasalerni. Stórt sérsmíðað eldhús með Miele-heimilistækjum tengist fjölskyldurými, stofu og borðstofu. Þá er sérstakt skrifstofurými í húsinu.

Mikil lofthæð einkennir stofurnar, þar sem einnig er arinn og útsýni yfir gróinn dal og læk. Á efri hæð eru tvennar svalir, annars vegar morgunsvalir og hins vegar síðdegissvalir.

Við húsið er stór og skjólgóð harðviðarverönd með heitum potti og sérstöku borðstofusvæði utandyra. Hluti verandarinnar er yfirbyggður og mikill gróður umlykur svæðið.

Húsið var teiknað af Sigurði Hallgrímssyni, arkitekt hjá Arkþingi, en Rut Káradóttir sá um innanhússhönnun. Mikill metnaður hefur verið lagður í efnisval og sérsmíðaðar innréttingar.

Við eignina eru jafnframt góð bílastæði, rafhleðslustöð og geymsluskúr á lóðinni.

góðakur2
góðakur3
góðakur4
góðakur5
góðakur6
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sóttvarnalæknir og forseti lagadeildar ósammála um „skyldubólusetningu“
Innlent

Sóttvarnalæknir og forseti lagadeildar ósammála um „skyldubólusetningu“

Umræða hefur skapast um lögin
Friðrik Dór er við og við
Menning

Friðrik Dór er við og við

Arkitekt lýsir yfir áhyggjum af „gúmmívæðingu“ leikvalla
Myndband
Innlent

Arkitekt lýsir yfir áhyggjum af „gúmmívæðingu“ leikvalla

Verður handtekinn mæti hann ekki sem vitni
Innlent

Verður handtekinn mæti hann ekki sem vitni

Áfengisneysla eldra fólks vaxandi og stærra vandamál en talið er
Innlent

Áfengisneysla eldra fólks vaxandi og stærra vandamál en talið er

Fjórtán á Suðurlandi sem stórgræddu
Peningar

Fjórtán á Suðurlandi sem stórgræddu

Sigríður Þorvaldsdóttir er látin
Minning

Sigríður Þorvaldsdóttir er látin

Ökumaður ók bifreið inn í garð
Innlent

Ökumaður ók bifreið inn í garð

Moses Hightower fyllti Kaffi Flóru
Myndir
Menning

Moses Hightower fyllti Kaffi Flóru

Sérstakt gjald lagt á fatnað frá Shein, Temu og AliExpress
Heimur

Sérstakt gjald lagt á fatnað frá Shein, Temu og AliExpress

Survivor-keppandi missti fót í miðjum tökum
Heimur

Survivor-keppandi missti fót í miðjum tökum

Búast megi við miklum umferðartöfum í dag
Innlent

Búast megi við miklum umferðartöfum í dag

Þorgerður Katrín kallar ógnir Rússa hryðjuverk
Pólitík

Þorgerður Katrín kallar ógnir Rússa hryðjuverk

Fólk

Eitt dýrasta hús landsins komið á sölu
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta hús landsins komið á sölu

Var byggt árið 2011
„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“
Fólk

„Hvernig dílar maður við gamla freka karla?“

Sigfús selur notaðan bíl á 19 milljónir
Myndir
Fólk

Sigfús selur notaðan bíl á 19 milljónir

Unnur Birna og Davíð Örn selja í Hafnarfirði
Myndir
Fólk

Unnur Birna og Davíð Örn selja í Hafnarfirði

Landsliðsmaður selur huggulega íbúð í Fossvogi
Myndir
Fólk

Landsliðsmaður selur huggulega íbúð í Fossvogi

Loka auglýsingu