1
Innlent

„Aumingi sendir frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla“

2
Innlent

Stefán Einar blæs lífi í samsæriskenningu

3
Fólk

Bubbi lýsir yfir andláti miðborgarinnar

4
Fólk

„Vottar Jehóva reyndu að drepa mig”

5
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

6
Innlent

„Þetta er svaka adrenalínsjokk“

7
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

8
Pólitík

Þórdís Kolbrún gerð að sendiherra

9
Heimur

Þrír látnir eftir bruna á Tenerife

10
Innlent

Albanskur aðkomumaður ákærður á Akureyri

Til baka

Fáir hundar í Reykjavík löglega skráðir

Talið er að um 20 þúsund hundar séu í höfuðborginni

Maður með hund
Mikill fjöldi hunda er í ReykjavíkMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Um 13% hunda í Reykjavík eru löglega skráðir en þetta fram kemur í svari Dýraþjónustu Reykjavíkur.

Í svari við fyrirspurn Mannlífs kemur fram að 2614 hundar eru skráðir í samræmi við skráningarskyldu hjá borginni. „DÝR telur að það séu um 15-20.000 hundar í Reykjavík og því miklu færri á skrá en ætti að vera og ljóst að verulegur fjöldi hundaeigenda er ekki að fylgja þeim skyldum sem á þeim hvíla samkvæmt lögum og samþykktum sem um hundahald gilda,“ segir Helena Gylfadóttir, deildarstjóri hjá DÝR, um málið.

„Árlegt hundagjald fer í ýmislegt er snýr að hundum og hundahaldi í borginni,“ segir einnig í svarinu en árlegt gjald fyrir hund er 17.800 krónur en skráning hunda hjá sveitarfélagi er lögbundin og í henni er innifalin ábyrgðartrygging gegn þriðja aðila sem tryggingafélög bjóða einstaklingum ekki uppá.  

„Þá sinnir DÝR eftirliti og utanumhaldi við hundagerði í Reykjavík, s.s. með áfyllingu á pokum við tunnur auk þess að leggja til leiktækin sem finnast víða í hundagerðum,“ heldur Helena áfram.

„DÝR sinnir eftirliti sem tengist ónæði eða lausagöngu og skráningu eftir ábendingar fólks. DÝR heldur úti aðstöðu fyrir þá hunda sem finnast og koma inn í vörslu DÝR þar til eigandi hefur tök á að sækja þá. Þá sinnir tarfsfólki DÝR öllum öðrum hundamálum sem koma upp í borginni, hvort sem það eru þessar fyrrnefndu ábendingar eða bitmál eða bara að ráðleggja borgarbúum þegar kemur að hundahaldi.“

Helena segir að hluti gjalds fari einnig í kaup á ýmsum búnaði til þess að geta brugðist við hundamálum eins vinnubíla, búr, tauma og annað slíkt.  

„Mörg hundamál geta verið mjög erfið, flókin og tímafrek og í sumum tilfellum þarf að leita aðstoðar til utanaðkomandi aðila og þá kann að falla til kostnaður. DÝR veitir ýmiss konar ráðgjöf og þjónustu og er hægt að hafa samband í síma, tölvupósti eða í gegnum samfélagsmiðla þótt frekar sé mælst til þess að fólk hringi eða sendi póst ef erindið er brýnt.“

Þá fái allir skráðir hundar merki á hálsól sína frá borginni og er hægt að biðja um eitt slíkt á ári segir Helena. Þá er jafnvel hægt að semja um að fá þau merki oftar ef hundar eru gjarnir á að týna þeim. Skráðir og stilltir hundar einnig velkomnir í Húsdýragarðinn á miðvikudögum en það er samstarfsverkefni við Dýraþjónustuna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu
Heimur

Heimildarmynd Amöndu Knox stöðvuð rétt fyrir frumsýningu

„Í hreinskilni sagt er þetta komið gott.“
Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða
Heimur

Telja skotárásina á pýramídanum hafa verið skipulagða

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku
Heimur

Nýr forsetisráðherra Ungverjalands hótar Netanyahu handtöku

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland
Sport

Svíar sektaðir eftir landsleik við Pólland

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“
Heimur

Húsleit gerð vegna „hinsegin áróðurs“

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum
Peningar

Magnús Jón Magnússon ráðinn af Dögum

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu
Landið

Fornverkaskólinn í Skagafirði hlýtur virtustu minjaverndarverðlaun Evrópu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Laufey sló í gegn á frumsýningu
Myndir
Fólk

Laufey sló í gegn á frumsýningu

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn
Heimur

Slysasprenging í skriðdreka drap hermenn

Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal
Innlent

Gló safnar fyrir nýjum matsal í Reykjadal

„Við ætlum okkur að byggja eitthvað miklu meira en bara eitthvað hús.“
Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu
Innlent

Vinsælt íslenskt nautahakk innkallað vegna salmonellu

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola
Innlent

Bylmingshögg Birgis Bjarnar braut brotaþola

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu
Innlent

Sigríður Björk skiptir aftur um vinnu

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Innlent

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi
Innlent

Íslenskri konu ekki gerð refsing fyrir að beita lögreglumann ofbeldi

Loka auglýsingu