1
Sport

Carla Jade vann Eriku Nótt naumlega eftir dramatískan bardaga

2
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

3
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

4
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

5
Pólitík

Sveinn Andri spyr hvar Sjálfstæðisflokkurinn standi í málefnum Palestínu

6
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

7
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

8
Innlent

Þrír réðust á einn og barnavernd komin í málið

9
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

10
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

Til baka

Fremstu sérfræðingar á sviði þjóðarmorðs staðfesta að Ísrael sé að fremja þjóðarmorð

Helför Ísraela gegn Palestínumönnum heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist

Benjamin Netanyahu
Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ÍsraelsFræðimenn hafa lýst yfir að aðgerðir þeirra séu þjóðarmorð
Mynd: RONEN ZVULUN/POOL/AFP

Í dag eru það ekki margir sem mótmæla því að Ísrael stundi þjóðarmorð gegn Palestínumönnum og nú hafa fremstu þjóðarmorðsfræðimenn heimsins sagt opinberlega að Ísrael sé fremja þjóðarmorð.

Nú þegar helför Ísraela gegn íbúum Palestínu er enn á ný að ná nýjum hæðum hafa Alþjóðasamtök þjóðarmorðsfræðimanna lýst því yfir og ályktað um að stefna sem og aðgerðir Ísraels á Gaza uppfylli lagalega skilyrði þjóðarmorðs, samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Hinn tæknivæddi og vel þjálfaði her Ísraela heldur morðæði sínum áfram í áköfum hernaði í Gaza-borg, sem sami her skilgreindi sem vígvöll fyrir helgi þótt þar sé eingöngu að finna rústir og vopnlaust fólk sem er aðframkomið af hungri og hryllilegum sjúkdómum því tengdu.

Í helför Ísraels gegn vopnlausu fólki, körlum, konum og börnum hafa minnst þrettán verið myrt með köldu blóði í dag.

Alþjóðasamtök þjóðarmorðsfræðimanna (IAGS), voru stofnuð fyrir 30 árum síðan. Telja samtökin um 500 meðlimi og samþykktu þeir sameiginlega ályktun þar sem kemur skýrt fram að stefna Ísraels og hernaðaraðgerðir þess á Gaza uppfylli skilgreiningu þjóðarmorðs samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð frá árinu 1948 - sem er einmitt sama ár og Ísrael lýsti yfir sjálfstæði sínu.

Mikill meirihluti félagsmanna, eða 86 prósent talsins, kaus með ályktuninni:

„Hér er afdráttarlaus yfirlýsing frá sérfræðingum á sviði þjóðarmorðsrannsókna um að það sem Ísrael er að gera á Gaza sé ekkert annað en þjóðarmorð,“ sagði Melanie O'Brien sem er forseti IAGS, við Reuters fréttastofuna.

Að minnsta kosti 63 þúsund íbúar Palestínu hafa verið myrtir í ofsafengnum hefndaraðgerðum Ísraelshers á Gaza síðan 7. október 2023.

Morðin halda áfram á hverjum degi og hafa ísraelsk stjórnvöld takmarkað nær algjörlega flæði hjálpargagna til Gaza; hafa leikið sér að því að myrða með köldu blóði hundruð manna að minnsta kosti við dreifingarstöðvar hjálpargagna; svangt, allslaust fólk - mikið af börnum og konum - hefur verið slátrað eins og búfénaði fyrir það eitt að reyna að sækja sér hjálpargögn því helförin heldur áfram og ef eitthvað er þá hefur þungi hennar aukist jafnt og þétt og er Gaza í raun orðin að einni stórri útrýmingabúð sem er að einu leyti ólík þeim er nasistar settu upp í síðari heimsstyrjöldinni; hún er öllum opin og enginn ber stjörnu.

RÚV sagði frá málinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu
Innlent

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu

Aðili fjarlægður úr verslun vegna ofbeldisfullrar hegðunar.
Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki
Myndband
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi
Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar
Innlent

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

Páll og Selma Eir eiga von á dreng
Fólk

Páll og Selma Eir eiga von á dreng

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks
Pólitík

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi
Heimur

Maður á sjötugsaldri stunginn með hnífi í Þrándheimi

Íbúi stofnunar talinn hafa stungið nágranna sinn
Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú
Heimur

Hitler Mussolini kjörinn sveitarstjóri í Perú

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

Loka auglýsingu