Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fyrrum landsliðshetja selur risastóra tveggja hæða íbúð

Húsið var reist árið 1983

Reykjás 49
Reykjás 49

Rúmgóð 161,1 fermetra íbúð á tveimur hæðum við Reykás 49 í Reykjavík hefur verið sett á sölu. Ásett verð eignarinnar er 106,9 milljónir króna.

Það er Ólafur Ingi Stígsson, fyrrum leikmaður Fylkis og íslenska lands­liðsins, sem selur íbúðina ásamt eiginkonu hans. Ólafur lék á sínum tíma níu lands­leiki fyrir Ísland.

Íbúðin er vel skipulögð fjölskyldu­eign með fjórum svefn­herbergjum, tveimur baðherbergjum, tvennum svölum og bílskúr. Frá eigninni er mikið útsýni og stutt er í skóla, leikskóla, íþrótta­mannvirki og aðra þjónustu. Þá eru náttúru- og göngu­leiðir í næsta nágrenni.

Samkvæmt skráningu HMS er neðri hæð íbúðarinnar 95,4 fermetrar og efri hæðin 35,7 fermetrar. Geymsla er 6,8 fermetrar og bílskúrinn 23,2 fermetrar. Nýtanlegt gólf­flatarmál er þó meira þar sem hluti efri hæðarinnar er undir súð.

Á neðri hæð er komið inn í forstofu og þaðan í hol. Þar er jafnframt rúmgóð stofa og eldhús sem er opið inn í stofu­rýmið. Á hæðinni eru tvö svefn­herbergi, baðherbergi og þvottahús auk þess sem útgengt er á tvennar svalir.

Á efri hæðinni er sjónvarps­stofa, tvö svefn­herbergi og annað baðherbergi. Fyrir­komulagið býður því upp á að svefn­herbergjum sé skipt á milli hæða og að efri hæðin nýtist sem sérstakt rými fyrir hluta fjöl­skyldunnar.

Bílskúr fylgir eigninni og er hann rúmir 23 fermetrar að stærð.

Reykás er í Árbænum og er stað­setning eignarinnar sögð hentug fyrir fjölskyldu­fólk, enda stutt í helstu stofn­brautir, þjónustu og afþreyingu auk útivistar­svæða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“