Fimm herbergja íbúð við Drápuhlíð 43 í Reykjavík hefur verið sett á sölu fyrir 104,9 milljónir króna. Íbúðin er 108,5 fermetrar að stærð og er á efri hæð í þríbýlishúsi sem reist var árið 1957.
Það eru þau Anthony Karl Gregory, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu, og konan hans Eva Petersen sem eru að selja húsið.
Eignin er með sérinngangi og hefur verið talsvert endurnýjuð á undanförnum árum. Árið 2018 var ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir þar sem meðal annars var skipt um innréttingar, innihurðir og gólfefni. Þá var baðherbergi endurnýjað og breytingar gerðar á skipulagi íbúðarinnar.
Ári áður hafði verið skipt um þakjárn og þakpappa á húsinu. Sameiginlegar tröppur voru múrviðgerðar og lagfærðar árið 2025 og brunnur við húsið hreinsaður árið 2026.
Íbúðinni fylgir bílskúrsréttur samkvæmt eignaskiptasamningi, en sækja þyrfti um heimild byggingarfulltrúa til að virkja réttinn að nýju. Á lóðinni eru að sögn næg bílastæði fyrir íbúa hússins.
Þá er á lóðinni sameiginlegur geymsluskúr sem nýttur er meðal annars fyrir reiðhjól og aðra geymslu.
Eignin er staðsett í Hlíðunum, skammt frá miðborg Reykjavíkur. Húsfélag hefur nýlega verið stofnað og samkvæmt upplýsingum frá seljendum er gott samkomulag meðal íbúa hússins.

