1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

8
Fólk

Millie Bobby Brown á Íslandi

9
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

10
Innlent

Ráðist á leigubílstjóra

Til baka

Lét talsmann Ísraelshers fá það óþvegið í beinni útsendingu

„Hvernig sefurðu á nóttunni?“

Spielman
Doron SpielmanSpielman átti fá svör við orðahríð Hasans
Mynd: Skjáskot

Breski blaða-og fjölmiðlamaðurinn Medhi Hasan lét majór í Ísraelshers og talsmann hersins, Doron Spielman, heyra það í viðtali í þætti Piers Morgan, Piers Morgan: Uncencored í gær en myndskeið úr þættinum hefur farið á dreifingu á samfélagsmiðlunum.

Í klippunni segir Medhi, sem er harður andstæðingur ríkisstjórnar Benjamins Netanyahu, við Piers að Íran sé ekki aðal „skúrkaríki“ Miðausturlanda, heldur Ísrael.

„Ég heyri hann [Spielman] tala um skrímsli sem stjórni ríkisstjórn, andlit óttans, kjarnorkuvopn. Hvaða þjóð erum við að tala um hér? Íran eða Ísrael? Því mig langar að spyrja áhorfendur nokkurra spurninga sem þeir geta hugsað um á meðan þeir hlusta á Donan hér. Hvaða land í Miðausturlöndum er með kjarnorkuvopn? Það er ekki Íran, það er Ísrael. Hvaða land hefur ekki skrifað undir samninginn um bann við dreifingu kjarnavopna? Það er ekki Íran, það er Ísrael. Hvaða land hefur hunsað ályktur Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem kveður á um að landið opni kjarnorkuaðstöðu fyrir rannsakendum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar? Það er ekki Íran, það er Ísrael. Hvaða land réðist á sex lönd í Miðausturlöndum á síðasta ári? Sex. Það var ekki Íran, það var Ísrael. Þannig að þrátt fyrir margar syndir Írans og glæpi, er Íran ekki skúrkaríkið með kjarnorkusprengjurnar í Miðausturlöndum núna, það land er Ísrael.“

Medhi heldur áfram og bendir á fyrri orð Piers Morgan í þættinum þar sem hann sagði flesta telja Ísrael vera ógn við frið í Miðausturlöndum og heiminum öllum. Hann bendir einnig á að Piers hafi sagt að Benjamin Netanyahu, forsætisráðhera Ísraels, hafi dregið bandaríska forseta úr Repúplikanaflokknum inn í stríð og nefnir Íraksstríðið og nú Íransstríðið.

Í öðru myndskeiði úr þættinum, sem sjá má hér að neðan spyr Medhi Spielman hvernig hann sofi á nóttunni.

„Doron, herinn þinn var að drepa 300 manns á aðeins 10 mínútum í síðustu viku. Þið sprengduð upp börn í barnavögnum. Þið drápuð ársgamalt barn í jarðarför. Þið drápuð 300 manns á einum degi í Líbanon í síðustu viku. Þið fylltuð sjúkrahúsin. Þið sprengduð hjálparmiðstöðvar.“

Spielman reynir að malda í móinn spyr Medhi hver hafi skapað þann vígvöll en Medhi svarar að bragði:

„Þið gerður það. Þið rifuð vopnahléið við Hezbolla 15.000 sinnum. Þið rifuð vopnahléið 15.000 sinnum samkvæmt Sameinuðu þjóðunum.“

Þegar Spielman segist ekki hafa heyrt þessar tölur segir Medhi: „Doron, ég veit að þú ert ekki mikið fyrir staðreyndir, er það nokkuð? En þú hefur ekki komið með eina einustu staðreynd í þessu samtali. 15.000 vopnahlésbrot. Af hverju rifuð þið vopnahléið við Hezbollah?“

Spielman heldur því þá fram að herinn hafi varað fólk við árásum, svo hægt væri að drepa Hezbollah-liða en því mótmælir Medhi.

„Nei. Af hverju drápuð þið þá 300 manns á 10 mínútum? Af hverju frömduð þið 7. október Líbanons í síðustu viku? Af hverju drápuð þið 300 manns? Doran, skammastu þín ekkert fyrir það að herinn þinn slátraði 300 manns á 10 mínútum? Hvernig sefurðu á nóttunni, styðjandi her sem slátrar 300 manns á 10 mínútum?“

Hið magnþrungna rifrildi hélt áfram en hægt er að horfa á allt myndbandið hér fyrir neðan.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn
Pólitík

Bergþór líkir skorti á samráði við að senda landsmönnum fingurinn

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu
Innlent

Ryskingar á Ölhúsinu enduðu með sýknu

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu
Menning

Benedikt Freyr byggir upp íslenska rappmenningu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir
Innlent

Viðurkenndu óhóflegar tafir eftir margítrekaðar fyrirspurnir

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Brotin klósettseta varð að kærumáli
Innlent

Brotin klósettseta varð að kærumáli

Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

Farþeginn vakti grun við komuna til flugvallarins
Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö
Heimur

Strætisvagn hafnaði á tré í Malmö

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park
Heimur

Hjólreiðamaður lést eftir árekstur við hund í Central Park

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“
Myndband
Heimur

Trump segir árás á Los Angeles og San Diego „mjög lítið gjald“

Loka auglýsingu