Nýlegt heilsárshús á rúmlega tveggja hektara eignarlóð skammt frá Selfossi hefur verið sett á sölu. Um er að ræða Litla kot í Byggðarhornslandi í Sveitarfélaginu Árborg og er ásett verð 64,9 milljónir króna.
Eignin stendur á 2,4 hektara lóð, um sex kílómetra sunnan við Selfoss, en aðkoma að landinu er frá Votmúlavegi. Húsið er 40,5 fermetrar að stærð og var byggt árið 2021. Við það hefur jafnframt verið reistur sólskáli og stór sólpallur.
Húsið er skráð sem einbýlishús og er byggt úr timbri. Að utan er það klætt máluðu timbri og járn er á þaki. Innandyra eru marglitar náttúruflísar á gólfum og húsið hitað með svæðaskiptum gólfhita. Loft er upptekið að stærstum hluta.
Í húsinu er eitt svefnherbergi og inn af því rúmgott baðherbergi. Þar er meðal annars „walk-in“ sturta með glervegg, baðinnrétting og upphengt salerni.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda eitt opið og bjart rými. Þaðan er gengið út í sólskálann og áfram á rúmgóðan sólpall.
Í fasteignaauglýsingu er vakin athygli á friðsælli staðsetningu eignarinnar og þeim möguleikum sem henni fylgja. Þar er sérstaklega nefnt að landið og húsið geti hentað bæði til búsetu og starfsemi tengdri ferðaþjónustu.
Ásett verð fyrir Litla kot og 2,4 hektara eignarlóðina er 64,9 milljónir króna.

