Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Laufskógar 15A
Lauf­skógar 15A

Einbýlishús við Laufskóga 15A í Hvera­gerði hefur verið sett á sölu. Um er að ræða 57,2 fermetra, þriggja herbergja timburhús sem reist var árið 1940. Ásett verð eignarinnar er 54,9 milljónir króna.

Húsið stendur á um 220 fermetra lóð á eftir­sóttum stað skammt frá Hamrinum í Hvera­gerði, þar sem fjölmargar göngu­leiðir eru í næsta nágrenni.

Í húsinu er forstofa og opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa eru saman. Þá eru þar stórt hjóna­herbergi, annað minna herbergi, baðherbergi og þvottahús sem jafnframt nýtist sem geymsla.

Auk þess fylgja húsinu tvær kaldar geymslur sem eru aðgengilegar utan frá.

Samkvæmt fasteigna­auglýsingu hafa tölu­verðar endur­bætur verið gerðar á húsinu að innan á undan­förnum árum. Húsið heldur þó yfir­bragði eldra timbur­húss, enda orðið 86 ára gamalt.

Ásett verð, 54,9 milljónir króna, jafn­gildir um 960 þúsund krónum á hvern skráðan fermetra.

Í fasteigna­auglýsingunni er eigninni lýst sem „litlu krúttlegu“ einbýlis­húsi og tekið fram að eignir sem þessi komi sjaldan á markað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“