Vandað 250 fermetra einbýlishús við Tunguás 1 í Ásahverfi í Garðabæ hefur verið sett á sölu. Eignin stendur á hornlóð og býður meðal annars upp á víðáttumikið útsýni í átt að Bessastöðum og Snæfellsjökli.
Húsið var reist árið 2000 og er 250,6 fermetrar að stærð. Þar af er 38,7 fermetra bílskúr. Að auki stendur um tíu fermetra geymsluskúr með rafmagni á lóðinni. Óskað er eftir tilboði í eignina.
Húsið er á tveimur hæðum og í því eru fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi. Á efri hæð eru anddyri, stofa, eldhús og gestasnyrting auk bílskúrs og geymslu. Á neðri hæð er hjónasvíta, sjónvarpshol, þrjú rúmgóð barnaherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Garðurinn hefur sömuleiðis verið vandlega hannaður. Þar er afgirt timburverönd með heitum potti á neðri palli, auk geymsluskúrs. Lýsing hefur verið sett upp í garðinum og þar er gróskumikill gróður.
Í fasteignaauglýsingu er eigninni lýst sem einstaklega vel hönnuðu útsýnishúsi þar sem vandað hafi verið til hvers smáatriðis. Staðsetningin í Ásahverfi er jafnframt sögð mjög góð.

