1
Heimur

Ekkja mannsins sem lést útskrifuð af sjúkrahúsi

2
Innlent

Guðmundur Stefán og Íris Anna vilja stýra skóla

3
Pólitík

Skiltin sem Ari Edwald sá ekki

4
Innlent

Askja innkallar KIA-bíla

5
Pólitík

Guðmundur Ingi hættur í Flokki fólksins

6
Heimur

Leikkonan Ruby Rose sakar Katy Perry um kynferðislegt áreiti

7
Innlent

Maður metinn öryrki eftir að full kona ók yfir fót hans

8
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

9
Heimur

Maður grunaður um að myrða tvíbura

10
Innlent

Ákærður fyrir fíkniefni í verbúð

Til baka

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér“

Bubbi varar við ótta sem stjórntæki í samfélaginu

Bubbi
Bubbi MorthensBubbi veit hvað hann syngur
Mynd: Instagram-skjáskot

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens gagnrýnir harðlega það sem hann kallar notkun ótta sem stjórntækis í samfélaginu í nýrri Facebook-færslu sem hann birti í morgun.

Í færslunni lýsir hann ótta sem skaðlegu afli sem hafi víðtæk áhrif á einstaklinga og samfélag.

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér. Hann rænir mann rökhugsun, hann rænir mann orku, gerir mann dimman, útilokar rök, gerir mann árásargjarnan,“ skrifar hann.

Bubbi segir að ótti sé víða nýttur til að hafa áhrif á fólk, meðal annars af fyrirtækjum og hagsmunaaðilum.

„Ótti er líka notaður til að stjórna fólki. Til eru fyrirtæki, moldrík, sem nýta til dæmis óttann sem stjórnunartæki til að verja hagsmuni sína,“ segir hann og bætir við að slíkir aðilar starfi oft „bakvið tjöldin“.

Hann nefnir jafnframt dæmi úr samfélagsumræðunni þar sem ótti sé notaður, meðal annars í tengslum við hinsegin fræðslu í skólum.

„Hinsegin fræðsla í skólum fer í taugarnar á sumu fólki sem fer mikinn um lífshættuna sem börn eru sett í, eða þannig tala þau,“ skrifar hann.

Þá gagnrýnir hann einnig ummæli kaþólskra presta sem hann segir hafa talað í svipuðum anda og jafnvel gefið í skyn að hægt sé að „afhomma fólk“. Í því samhengi bendir hann á ásakanir um misnotkun innan kirkjunnar

„Þá væri kannski best að byrja á prestum kirkju hans sem hafa stundað skefjalaust barnaníð í skjóli kirkjunnar eins og hefur verið að koma uppá yfirborðið á undanförnum árum.“

Bubbi fjallar einnig um umræðu um Evrópusambandið og efnahagsmál hér á landi og segir að þar sé ótta einnig beitt sem vopni. Hann nefnir meðal annars stöðu krónunnar, háa vexti og erfiða stöðu ungs fólks á húsnæðismarkaði.

Í lok færslunnar hvetur hann fólk til að horfast í augu við óttann.

„Eina leiðin til að sigrast á óttanum er að stíga inní hann, þá verður maður frjáls og myrkrið hverfur,“ skrifar hann og bætir við að þrátt fyrir allt séu til öfl sem líti á ótta sem „góða fjárfestingu“.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Bleikja strauk
Landið

Bleikja strauk

Talið er að þeir hafi verið um það bil 500 talsins
Kína ögrar Bandaríkjunum við Hormuz-sund
Heimur

Kína ögrar Bandaríkjunum við Hormuz-sund

Jóhann Páll í uppáhaldi hjá Sjálfstæðismönnum
Pólitík

Jóhann Páll í uppáhaldi hjá Sjálfstæðismönnum

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu
Innlent

Brimborg innkallar Ford-bíla vegna eldhættu

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa
Innlent

Reykvíkingur tók við eiturlyfjum í „Airfryer“-kassa

Dularfull vera á mynd Trumps ýtir undir samsæriskenningar
Heimur

Dularfull vera á mynd Trumps ýtir undir samsæriskenningar

Hljómsveitin VÆB snýr aftur
Menning

Hljómsveitin VÆB snýr aftur

Ásmundur Friðriksson býður sig fram til kirkjuþings
Innlent

Ásmundur Friðriksson býður sig fram til kirkjuþings

MAST varar við neyslu á kóríanderfræjum
Innlent

MAST varar við neyslu á kóríanderfræjum

Semja við gervigreindarfyrirtæki um að þróa lyf
Heimur

Semja við gervigreindarfyrirtæki um að þróa lyf

Sósíalistar hæðast að bílastæðavandræðum Ara
Myndband
Pólitík

Sósíalistar hæðast að bílastæðavandræðum Ara

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum
Myndir
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

Fólk

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér“
Fólk

„Óttinn er versti ferðafélagi sem maður getur hugsað sér“

Bubbi varar við ótta sem stjórntæki í samfélaginu
Læknir og tónskáld selja á Akureyri
Myndir
Fólk

Læknir og tónskáld selja á Akureyri

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum
Myndir
Fólk

Verðlaunaleikstjóri selur í Þingholtunum

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum
Myndir
Fólk

Blaðamaður Morgunblaðsins selur útsýnisíbúð í Árbænum

„Þar var ég næstum því dauður“
Myndband
Fólk

„Þar var ég næstum því dauður“

Linda Ben í góðum gír í sólinni
Myndir
Fólk

Linda Ben í góðum gír í sólinni

Loka auglýsingu